Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2004, Blaðsíða 31
DV Fókus LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 31 r Björgólfur Guömundsson i að geta sakkiö smiðurinn á bak við sameininguna, sem átti sér stað sumarið 2000, og varð síðar framkvæmdastjóri hins nýja fyrirtækis. Eins og áður sagði var Mál og menning nokkuð sterkt félag fjár- hagslega þegar sameiningin átti sér stað. Fyrirkomulag samrunans var þó ekki með þeim hætti að nýtt fé væri lagt inn í Eddu heldur voru eignarhlutföllin jöfn og reiknuð út frá framlagi Vöku-Helgafells. Það sem Mál og menning hafði umfram Vöku-Helgafell var síðan fært inn sem skuld við Mál og menningu í efnahagsreikningi Eddu. Þannig var Edda vanfjármögnuð frá upphafi, en haldið var áfram að reka félögin tvö hvort í sínu lagi undir merkjum hins nýja fyrirtækis. Bókaforlögin sem til- heyrðu Eddu eftir sameiningu voru því Mál og menning, Forlagið, Vaka- Helgafell, Aimenna bókafélagið og svo Iðunn og Þjóðsaga. Edda miðlun og útgáfa hf. hófst þegar eftir sameiningu að færa sig inn á ný svið og stækka þau sem fyr- ir voru. Fyrirtækið flutti að auki í nýtt húsnæði og stofnaði dreifingarmið- stöð og tónlistardeild með tilheyr- andi kostnaði. Vaxtarmöguleikarnir voru ofmetnir og fjárhagslegur styrk- ur einnig. Verðmætamat fyrirtækj- anna hafði ekki verið unnið nægilega vel og ári eftir sameiningu áttuðu menn sig á því að þeir hefðu einfald- lega keyrt fram úr sjálfum sér. Klúðra málunum á einu ári Á sama tíma og þetta gerðist varð mikill samdráttur í þjóðfélaginu og mikill viðbótarkostnaður vegna sam- einingarinnar kom í ljós. Efnahags- reikningar fyrirtækjanna tveggja höfðu heldur ekki verið skoðaðir nægilega vel og engar áreiðan- leikakannanir gerðar á þeim, eins og oft tíðkast. Fljótlega tók því mikill rekstrarvandi að myndast vegna sam- dráttar í tekjum, auk þess sem sam- legðaráhrif sameiningarinnar skiluðu sér mjög seint. Fyrir sameiningu hafði Mál og menning verið rekin á sérstakan hátt. Fornar aðferðir vom notaðar í bók- haldi, höfundarréttargreiðslur greidd- ar rithöfundum eftir hentisemi og laun flestra starfsmanna voru í lægra lagi. Samt gekk dæmið alltaf upp. Vaka-Helgafell var hins vegar rekið á nútímalegri hátt þar sem markmiðið var skýrt - að skila hagnaði. Þegar af sameiningunni varð var Halldór Guð- mundsson tregur til að tileinka sér nýjar starfsaðferðir, enda hafði Mál og menning nánast rekið sig sjálf. Hann hefur því líklega haldið að þær aðferð- ir gengju áfram og reiknaði ekki með ýmsum þáttum sem áttu eftir að draga úr tekjum hins nýja félags. Halldór sagði gjarnan „góðar bækur finna sína kaupendur" og rak fyrirtækið í raun með því hugarfari - falleg hugsun en líklega ekki sú árangursríkasta ef menn vilja reka stórfyrirtæki og keyra um á fínum jeppa, líkt og hann gerði á þessum tíma. Loks, ári eftir að íyrir- tækið hafði verið stofnað, áttuðu menn sig svo á þvf að Edda væri í mikl- um vanda stödd og þyrfti nýtt hlutafé upp á 100 milljónir til þess að geta starfað áfram. Bækurnar höfðu ekki fundið sína kaupendur og félagið skuldaði þá meira en 30 milljónir í höf- undarréttargreiðslur, auk þess sem eignir höfðu verið oftaldar og skuldir vantaldar. Björgólfur til bjargar Forsvarmenn Eddu leituðu því til Björgólfs Guðmundssonar, snemma árs 2002, um að koma með nýtt fjár- magn inn í fyrirtækið. Langt samn- ingaferli fór þá af stað sem endaði með því að Björgólfur skráði sig fyrir hlutaíjáraukningu í Eddunni upp á 100 milljónir, undir lok maí 2002. Þá seldu Ólafur Ragnarsson og fjölskylda hans sinn hlut í félaginu. Við þetta eignaðist Björgólfur 68% í fyrirtækinu en nokkrir aðilar frá Máli og menn- ingu töldu sig bera skarðan hlut frá borði við samningana, Loftkastalarn- ir, sem byggðir vom í kringum Eddu í upphafi, urðu henni þannig að falli. í stuttu máli hefur Mál og menning farið iír því að vera sjálfs- eignarstofnun með stöðuga innkomu og góða markaðsstöðu yfir í stórfyrirtæki þar sem allt fór úrskeiðis og er nú í eigu auð- jöfurs. Menn ætluðu sér um of, vönduðu ekki sameiningarferlið og náðu þannig að koma sér í tóm vandræði á innan við ári. Síðasta eitt og hálft árið hefur Edda svo hægt og rólega verið að draga sam- an seglin. Sem dæmi má nefna að starfsfólki hefur fækkað, tímaritadeild og tónlistarsviðið fyrirtækisins vom seld og nú síðast bámst fregnir af því að eitt af bókaforlögunum sem undir Edduna heyrðu, Forlagið, hefði verið lagt niður. Þá hefur DV heimildir íyrir því að til standi að leggja einnig niður Iðunni og Þjóðsögu, þannig að eftir munu standa þrjú bókaforlög. Af hverju sameining? Margir kunna því að spyrja þeirrar spurningar af hverju Halldór Guð- mundsson haii viljað þessa samein- ingu þegar Mál og menning hafði eins góða stöðu á markaðnum og raun bar vitni. Félagið stóð undir sér sjálft, hafði stöðugan markað og rekstur, enda með marga af vinsælustu rithöfund- um landsins á borð við Guðmund Andra Thorsson, Hallgrím Helgason og Einar Má Guðmundsson á sínum snæmm. Félagið var kannski ekki vel rekið en skilaði þó alltaf hagnaði og átú í raun ekki að geta klikkað. Sjálfur hefur Halldór sagt að ákveðin stöðnun hafl verið í félaginu og ekki hafi verið hægt að komast lengra í framþróun. Þess vegna var hafist handa við að byggja loftkastala sem greinilega stóð ekki undir sér. Mál og menning á nú minnihluta í Eddu, Halldór er horfinn á braut og margir af þeirn sem áður tilheyrðu Máli og menningu em ósáttir við hlutskipti sitt eftir að Björgólfur eign- aðist meirihlutann. Fjöldi rithöfunda hefur því á síðustu árum fært sig frá Máli og menningu yfir til annarra for- laga. I stuttu máli hefur Mál og menn- ing farið úr því að vera sjálfseignar- stofnun með stöðuga innkomu og góða markaðsstöðu yfir í stórfyrirtæki þar sem allt fór úrskeiðis og er nú í eigu auðjöfurs. „Félagið átti sig að mestu sjálft og var utanaðkomandi að- ilum svo gott sem óháð. Höfðu menn á orði að félagið væri komið í þástöðu að það ræki sig sjálft - hafði góða mark- aðsstöðu og stöðug- ar tekjur þannig að erfitt var að klúðra rekstrinum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.