Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egiísson Ritstjórar: lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar Kristinn Flrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- ar auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Árnifærvinnu Ste£nt er að því að Ami Johnsen, fýrrver- andi alþingismað- ur, komi til starfa hjáVesturbyggð og taki að sér tímabundin verk- efni í atvinnu- og ferðamálum. Hef- ur Arni verið fyrir vestan til skrafs óg ráða- gerða. Innfluttir Indverjar verspyrna læknafélagsins gegn inn- flutningi á indverskum Iækni stafar ekki af ótta við, að hann kunni ekki fag- ið. Þvert á móti óttast félagið, að í ljós komi, að sá indverski sé hæfari en þeir, sem fyrir eru. Eins og í Bredandi, þar sem hámenntaðir Ind- verjar eru að taka við læknisþjónustunni. Bretar hafa góða reynslu af Indverjum á fleiri sviðum. Þeir eru að taka við hlutverki kaupmannsins á horninu, hugsa vel um við- skiptavininn og hafa alltaf opið, þegar hann kærir sig um að verzla. Þetta er iðið og heil- steypt fólk, sem vinnur sig ört til vegsemdar og virðingar í brezku samfélagi. Við höfum fleiri dæmi um eftirsótta Ind- verja. Þýzka stjómin ákvað að auglýsa eftir 10.000 indverskum tölvumönnum. Þeir áttu að verða ríkisborgarar með hraðferð gegnum kerfið, ef þeir vildu gera svo vel að nýta hæfni sína í þágu lands, sem hefur sjálft alið upp of fáa tölvumenn og tölvusnillinga. Nú er ekki svo, að Indverjar séu einir um hituna. Margar rannsóknir í Bandaríkjunum sýna, að fólk frá Austur-Asíu stendur sig bet- ur en heimamenn, fær hærri einkunnir í skól- um, skilar meiru í vinnunni og klifrar þjóðfé- lagsstigann á sama hátt og Indverjar gera í Bretlandi og Þýzkalandi. Okkur vantar raunar ekki bara einn ind- verskan lækni, heldur marga. Okkur vantar marga indverska kaupmenn á horninu. Og ekki síður marga indverska tölvusnillinga. Þeir þurfa ekki einu sinni að vera indverskir, heldur mega þeir líka vera frá Kína eða Taív- an, Kóreu eða Japan, Víetnam eða Malasíu. Aðalatriðið er að fá hingað menntað og duglegt fólk, sem spjarar sig. Það vilja hags- munaaðilar hins vegar alls ekki. Helzt vilja menn fólk, sem kann ekki neitt, svo að hægt sé að manna færibönd í fiskvinnslu, hreinlæti í stofnunum og verkamannavinnu uppi á hel- frosnum heiðum Austurlands. Við eigum að losna við forneskju af þessu tagi, koma okkur upp vélmennum í fisk- vinnslu og skúringum og hætta að niður- greiða orkuframkvæmdir á heiðum og skak í álpottum niðri á Reyðarfirði. Með verndun færibandavinnu allt frá fiski yfir í ál erum við að hamla gegn bættum lífskjörum. Bezt væri að leyfa frjálsan innflutning á fólki, sem hefur yfir 130 stig í viðurkenndu greindarprófi. Við þurfum ekki einu sinni að hjálpa því að koma sér fyrir, því að það biður bara um ríkisfang og vinnufrið í frjálsara þjóðfélagi en er á heimaslóðum þess. Það gerir þjóðfélagið ríkara og betra. Ekki veitir af að fá nýja borgara til að halda þjóðfélaginu gangandi meðan heimafæddir tossar drepa tímann við að horfa á fullorðið fólk gera sig að athlægi í raunveruleikasjón- varpi. Jónas Kristjánsson Sumarvinna! Vinnumiðlun ungs fólks tekur tU starfa á mánu- daginn. Þeir sem eru fæddir 1987 eða fyrr og eru með lögheimUi í Reykjavík geta sótt um hjá Vinnumiðluninni. í boði eru sumarstörf hjá stofnunum Reykjavíkur- borgar. Einungis er hægt að sækja um á Netinu á heimasfðu Vinnumiðlun- arinnar, www.vuf.is. Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að netinu geta þeir komið í Vinnumiðl- unina og nýtt sér tölvur þar með netaðgangi. Tek- ið er á móti umsóknum tU21.aprfl. lausu lotti liann Og fer ekki tnilli mála að foríngjaræðið í Framsóknarflokknum er orðið býsna mikið þegar allir flokksmenn virðast ekki aðeins sætta sig við, heldur bein- línis taka sem eðlilegum hlut, að for- maðurinn einn muni ráða þessu. Dagskráin á enda Dagskráin er hætt að koma út íVestmannaeyj- um. AfþvítU- efni segir Lúð- vík Bergvins- son alþingis- maður: „Ut- gáfa Dagskrár hefurverið mikUvægur hlekkur í fjöl- miðiastarfsemi íVest- mannaeyjum undanfarin 33 ár. Elja og atorka rit- stjórans, Hermanns Ein- arssonar, á sér vart líka, enda ritstjórinn án efa einn langlifasti einyrki sem um getur.“ Kirkjuhálp Sveitarstjómin á Raufar- höfii hefúr ákveðið að veita kirkjunni á staðnum fjárstyrk . sem nemur fast- eignagjöldum af kirkjunni. Er þetta i. gert tU að mæta ósk safnaðarins um niður- feUingu á gjöldunum og þótti við hæfi að hafa þennan hátt á. Borga laun Launagreiðendum á landinu hefur fjölgað um þrjú prósent á undiðnum árum. Þeir voru um 22 þúsund tals- ins í fyrra. f Vx, Þeim hefúr íJv fjölgað á höf- w uðborgar- svæðinu en fækkað að sama skapi á landsbyggð innL Siv Friðleifsdóttir sagði í viðtali við DV í fyrradag að engirm af ráð- herrum Framsóknarflokksins væri ömggur um embætti sitt þegar stokkað verður upp I rfldsstjóminni ( haust, nema formaðurinn HaUdór Ásgrímsson. Þá mun Halldór setjast í stól forsætisráðherra en kostar því til að ráðherrum framsóknarmanna fækkar um einn. Umhverfisráðu- neytið færist til Sjálfstæðisflokksins þar sem Sigurður Anna Þórðardóttir tekur við lyldavöldum og Siv verður því atvinnulaus. Spumingin er því sú hvort hún fái annað ráðherra- embætti eða hvort einhver af hinum „óbreyttu" ráðhemmum fiórum verði íátínn hætta en hún fái starfið hans. Orð Sivjar um að enginn ráðherr- anna vití hvað muni gerast þann 15. september em athyglisverð. Nú er að sönnu langt tíl hausts og út af fyr- ir sig engin þörf á að ákveða þetta strax. Hins vegar liggur í orðum Sivj - ar - sem og annarra framsóknar- manna sem tjáð hafa sig um málið - að þetta verði einfaldlega ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar og einskis annars. Og fer ekki milli mála að for- ingjaræðið f Framsóknarflokknum er orðið býsna mikið þegar allir flokksmenn virðast ekki aðeins sætta sig við, heldur beinlínis taka sem eðlflegum hlut, að formaðurinn einn muni ráða þessu. Sama er í reynd uppi á teningn- um í Sjálfstæðisflokknum þar sem þarf ekki einu sinni að ræða það að auðvitað muni Davíð Oddsson ráða því sem hann vill ráða um hvernig ráðherrastólar flokksins verða skip- aðir. „Það er þingflokkurinn sem ræður þessu," sagði Geir Haarde að vísu fyrir siðasakir á Pressukvöldi Sjónvarpsins í hitteðfyrrakvöld þeg- ar hann var spurður hvort hann yrði utanríkisráðherra í kjölfar um- ræddrar uppstokkunar. Það var auð- Fyrst og fremst vitað virðingarverð viðleitni hjá Geir að orða þetta svona og sýnir að þeir sjálfstæðismenn eru ekki alveg bún- ir að gleyma lýðræðislegum fram- gangi mála þótt þeir hafi með gleði og ánægju framselt flestar sínar skoðanir og allt vald í hendur Davíð nú um stundarsakir. En bæði þar Og í Framsóknar- flokknum viðurkenna menn bara hreinskilnislega í reynd - og í öllum einkasamræðum - að það eru bara foringjarnir sem ráða þessu. Þeir einir og enginn annar. Það er til dæmis furðuleg staðreynd að vara- formaður Framsóknarflokksins skuli vera í „lausu lofti" varðandi ráð- herraembætti af því að Halldóri hef- ur ekki enn þóknast að kveða upp úr með að varaformaður hans fái að vera ráðherra áfram. Er ekki foringjaræðið í íslenskum stjórnmálaflokkum farið að taka út yfir allan þjófabálk? XXX Ásgeir Sverrisson á Morgunblað- inu skrifaði í gær Viðhorfsgrein um þær umræður um „leikreglur" sem borið hefur á í þjóðfélaginu undan- farið. Og hann spyr: „I hvaða að- stöðu em íslenskir stjómmálamenn tíl að setja almennar og réttlátar leikreglur?" - og bendir síðan á að svo vilji til að þjóðin hafi einmitt fengið á umliðnum mánuðum ágæt tækifæri til að velta því fyrir sér. Annars vegar á hann við þingkosn- ingamar á síðasta ári og hins vegar við eftírlaunafrumvarpið alræmda. Um það segir Ásgeir: „Enn á ný era leikreglumar markaðar með til- liti til hagsmuna þeirra sem þær setja en ekki alþýðunnar sem landið byggir. Umræðan sem fylgdi fram- varpi þessu var í meira lagi átakan- leg og líður seint þeim úr minni sem með fylgdust. Loks náði stjóm og stjómarandstaða að sameinast; í siðferðislegu „harakíri" frammi fyrir forviða almenningi í landinu." Og sé þörf að rifja það upp fyrir einhverjum, þá þýðir japanska orðið „harakíri" yfhvegað sjálfsmorð... En um alþingiskosningarnar og hvaða sýn þær birta af umræðum um leikreglur hér á landi segir Ás- geir: „Þingkosningarnar fóru fram samkvæmt forskriftum sem ekki standast skoðun þar sem sú sjálf- sagða leikregla að atkvæði manna skuli vega jafn þungt þegar þjóðin kýs sér fulltrúa var hunsuð enn á ný. Því fyrirkomulagi sem ríkir í þessum efnum á íslandi veðrur ekki lýst á annan veg en þann að stórnmála- stéttin sé ábyrg fyrir skipulögðu mannréttindabroti gagnvart al- menningi. Með því að sammælast um að atkvæði kjósenda skuli vega misþungt eftir því hvar viðkomandi er búsettur hafa stjómmálamenn sett hagsmuni sína og flokka sinna ofar réttindum almennings. Þetta fyrirkomulag er gjörsamlega for- kastanlegt og íslenskum stjórn- málamönnum til viðvarandi minnkunar." Leikreglurnar á þessu tiltekna sviði eru óréttlátar vegna þess að það fyrirkomulag hentar þeim sem setja almennu leikreglurnar í sam- félaginu, íslenskum stjórnmála- mönnum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.