Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Blaðsíða 30
... 30 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004 Fókus DV Skáldsagan var sknifuö Allir ríthöfundar eiga í fórum sínum drög, uppköst eða hugmyndir að bókum sem þeir náðu aidrei neinum tökum á. Ástæðurnar erujafn mismunandi og rithöf- undarnir eru margir. DV gramsaði ískúffum nokkurra íslenskra skálda og forvitnaðist um afhverju við höf- um ekki fengið að njóta þessara verka. Islenska ofurkonan „Hugmyndin var að gera kvikmynd um ís- lenska nútíma valkyrju. Svona ofurkonu sem væri mótvægi við Súpermann og önnur ofurmenni," j segir rithöfundurinn Bergljót Arnalds. „íslenska ofurkonan er kraftmikil, sterk og sjálfstæð um leið og hún býr yfir óumræðilegri mýkt og blíðu. Hún býr í íshelli í Vatnajökli og ríð- ur ekki hestum heldur hvölum. í stað spjóts notar hún risavaxin grýlukerti sem hún „ræktar“ í helli sínum. Þá berst hún fyrir réttlæti og upprætir glæpi. Sérstaklega verður hún hatrömm þegar ráðist er á minni máttar. Eini veikleiki Valkyrjunn- ar er sjálfstæðir, fallegir karlmenn sem bera virð- ingu fyrir konum, en líkt og James Bond bindur hún sig ekki til lengri tíma. Ég er viss um að íslensk valkyrja af þessu tagi myndi vekja mikla athygli er- lendis og kveikja enn frekari áhuga á landi og þjóð. Nú bíð ég bara eftir fjárfestum sem hafa áhuga á að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd. Þegar þeir eru komnir skal ég greina frá leynivopni ofur- kvendisins sem fær alla til að liggja í valnum." BeigLjótAmalds Dóp, kynlíf og Britney Spears „Það getur vel verið að ég skrifi þessa bók einhvern tímann eða geri kannski frekar kvik- mynd. Hugmyndin spratt upp úr „brainstorm- ing“ milli mín og Einars Bárðar þegar við hitt- umst á bar. Hann sagði mig Alistair McLean ís- lands og ég held það hafi verið hrós. Ég er með mikið af hugmyndum en það þarf alltaf eitt- hvað meira en bara hugmynd, hún verður að kalla virkilega sterkt á mann. Það getur tekið alveg tvö ár að skrifa eina skáldsögu þannig að maður verður að velja í hvaða hugmyndir maður ætlar að eyða lífinu. Ég held samt að ég geti alveg skrifað þessa sögu á einni helgi og selt hana Warner Brothers. Ég geri það kannski þegar mig vantar pening. Þetta er hasarsaga um ungan mann sem er að flytja Britney Spears inn til landsins fyrir tónleika. Hann er líka að flytja inn eiturlyf og er nýbúinn að svíkja spillta hermenn á Ketla- víkurflugvelli. Hann rændi sem sagt af þeim 100 kg af kókaíni. Þegar Britney er komin fer hann með hana á Langjökul í vélsleðaferð en þá hefna hermennirnir sín á honum og ráðast á hann með F 27 orrustuþotu en þeir vita ekki að Britney er með honum. Úr þessu verður mikið ævintýri og hasar og eldheit ást í snjó- húsi.“ Andrí SnæiMagnason pf B „Sumarið 2001 fór ég alveg eftir rithöfundabókinni, leigði mér lít- j ið hús í þorpi úti á landi, settist þar við fartölvuna og hlustaði bara á j I Rás eitt,“ segir Gerður Kristný Guðjónsdóttir. „Ég var að vinna að sögu um ótrúleg ævintýri konu nokkurrar á erlendri grund þar sem hættur leyndust við hvert fótmál. Einn kennaranna minna í Háskól- anum sagði einhverju sinni að ekkert markvert hefði gerst í frönsk- um skáldsögum á stríðstímum. Mig minnir að hann hafi átt við Napóleonsstríðin. Fólk hefði einfaldlega ekki þurft á því að halda að dikta upp hasar þegar líflð var hvort eð var lyginni líkast. Á friðartím- um jókst ímyndaraflið á nýjan leik og skáldskapurinn blómstraði. Líklega var þetta tilbreytingarsnauða þorpslíf ástæðan fyrir því ; að smám saman tók að bera á óróa í sögunni minni. Persónurnar, sem verið höfðu hæglætisfólk, færðu sig sífellt lengra upp á skaftið. Áður en við var litið voru þær farnar að sitja hver fýrir annarri í dimmum sundum og gengu jafnvel svo langt að berjast með hnúum og hnefum. Sæl og rjóð sneri ég aftur heim úr sveitinni með tölvuna úttroðna af ævintýrum. Nokkrum vikum síðar fór ég yfir afrakstur- inn og þá runnu á mig tvær grímur. Þetta var ekki alveg jafn- skemmtilegt og mig minnti. Eiginlega var þetta bara ein óttaleg vit- leysa og sagan rataði í ruslið. Það var allt í lagi. Mér leið að minnsta kosti betur með það heldur en að birta þetta. I fyrra sat ég svo í Suður-Frakklandi mánuðum saman og vann við aðra sögu. Þá var Íraksstríðið í öllum fjölmiðlum og viti menn, í stað þess að persónurnar ólmuðust eins og vitleysingar gat ég talað við þær eins og eðlilegt fólk.“ GeiÖui Krístný Guöjónsdóttir Kraftaverkasögur sem leiddu til of- sókna gegn börnum „Ég hef verið að safna Maríusögum tuttugustu aldarinnar og ætlunin er að setja safnið saman í eina bók,“ segir rithöfundurinn Gunnar Dal. „Sumar þessar sögur gerðust í Júgóslavíu og Belg- i íu og þetta eru mjög undarlegar frásagnir. Þessar | birtingar leiddu til uppþota en urðu smám saman j að heimshreyfingu á pólitískum grundvelli þar j sem börnin, sem María birtist, voru ofsótt. Margar j þessar sögur eru afskaplega vel skrifaðar bók- ! menntir og kraftaverkasögur." GunnaiDal Fausi og Fúfúfuglar „Fyrir rúmum 20 árum komu út eftir mig tvær bækur um Fjallakrílin. Hugmyndir að persónun- um voru sóttar í bekk sem ég kenndi þá. Þessi kríli eru undarleg í útliti en hafa þroska og vitsmuni 7- 8 ára barna,“ segir Iðunn Steinsdóttir. ,/Etlunin hjá mér var að skrifa þriðju bókina um þau en af ýmsum ástæðum varð ekki af því. Ég geymi þessa óskrifuðu bók í hugskotinu og hef stundum leikið mér með það sem þar gæti gerst. En allt hefur sinn tíma og úr þessu lítur hún tæplega dagsins ljós. Síðari bókin endaði með því að Fausi, sem er afar sérstakt kríli með 100 hendur og 100 fætur og glysgjarn með afbrigðum, kveður og flýgur með Fúfúfuglinum inn í gullinn morgunroðann, vit- andi að hann mun aldrei koma til baka af því að Fúfúfuglar koma aðeins einu sinni á hvert fjall. í óskrifuðu bókinni áttu krflin að lappa upp á hálf- ónýtt loftfar sem þau höfðu undir höndum og fljúga af stað til að leita að fjallinu þar sem Fausi væri nú.“ Iðunn Steinsdóttii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.