Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2004, Síða 12
72 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Rekinn fyrir
skilaboð til
kærustu
Sænska stórblaðið Dag-
ens Nyheter hefur rekið
einn af blaðamönnum sín-
um. Blaðamaðurinn notaði
ihge\s \thrtrr
í Qórgang dálka blaðsins til
að koma duldum skilaböð-
um til þáverandi kærustu.
Hann notaði dulið stafróf
sem þau ein skildu. Hann
hafði skrifað skilaboðin
duldu í texta um stóra ráð-
stefnu, og í annað skipti
þar sem hann ritaði um
neytendamál. Ritstjórinn
segir það ótrúlega alvarlegt
þegar starfsmenn nota
blaðið til persónulegra
skilaboða. Blaðamaðurinn
segist svekktur því allir
skrifi í sína texta það sem
byggist á eigin reynslu.
Keith
Richards á áð
vera dauður
Rolling Stonesarinn Keith
Richards býður dauðanum
birginn. í viðamikilli könnun
sem David Demko gerði fyrir
breska tímaritið Blender spá-
ir hann því hvenær helstu
rokkstjörnur samtímans
munu deyja. Þannig á
Ozzy Osborne að
deyja 65 ára, Whitney
Houston 59 ára og
Michael Jackson 76
ára. Mesta athygli vek-
ur þó Keith Richards
en hann átti samkvæmt
könnuninni að vera löngu
dauður. „Ég veit ekki hvernig
hann fer að þessu,“ segir
David Demko. „Hann hefði
átt að deyja fyrir átta árum.“
Fráskilinn
Eddie Skoller
Kristján Kristjánsson er lamaður og gæti ekki búið einn án heimahjúkrunar. Hann
furðar sig á afstöðu stjórnar heimahjúkrunar og telur að eitthvað meira búi að
baki en bifreiðarnar sem starfsfólkinu er gert að nota. Hann er alfarið háður reglu-
legum heimsóknum heimahjúkrunar og gæti ekki búið heima annars.
Kristján Kristjánsson Hann gæti ekki búið
einn án heimahjúkrunar og trúir ekki að yf-
irstjórnin haldi fast við sitt.
Ætlar í mál vit yfir-
stjórn heimahjúkrunar
Hinn frægi íslandsvinur
og grínisti Eddie Skoller
hefur sagt skilið við konu
sína, Sissel
Kyrkjebo. „Við
skiljum sem vin-
ir,“ segir í frétta-
tilkynningu sem
þau sendu frá
sér. Það vakti athygli að
Kyrkjebo væri að fara í
langt ferðalag til Bandaríkj-
anna. Ýmsar kenningar
voru á lofti en í gær til-
kynntu þau opinberlega að
þau væru skilin. 15 ár eru
síðan Eddie Skoller liitti
Sissel Kyrkjebo. Þau hafa
verið saman í 11 ár og eiga
tvö börn saman.
Auðvitað er ég kvíðinn en ég hef ekki nokkra
trú á þessari manneskju sem stjórnar heima-
hjúkrun og er eiginlega alveg hættur að trúa því
sem frá henni kemur, „ segir Kristján Kristjánsson
einn skjólstæðinga heimahjúkrunar.
Kristján er lamaður og alfarið háður heim-
sóknum heimahjúkrunar. Komið er til hans
þrisvar á dag en hann gæti ekki búið einn ef
heimahjúkrunar nyti ekki við. „Þær koma til mín
þrisvar á dag og ég er vissulega farinn að þekkja
þær allar sem koma til mín. Það er líka mjög mik-
ilvægt að sömu konurnar komi reglulega því þeim
er maður farinn að treysta," segir Kristján sem líst
illa á að fá nýtt fólk í stað þeirra sem sagt verður
upp. „Ég er nú ekki farinn að sjá það gerast og trúi
ekki fyrr en ég tek á að þannig verði staðið að mál-
um,“ segir hann og skilur ekkert í þessum bréfa-
sendingum sem stjórnandi heimahjúkrunar hefur
verið áð sénda undanfarið. „Mér sýnist að það séu
300 mistök í jafnmörgum bréfum sem hún hefur
verið að senda. Verstu mistökin eru að segja upp
meira en helmingi þeirra sem vinna hjá heima-
hjúkrun og ég skil ekkert í þessari ráðstöfun. Það
er eitthvað bogið við þetta," segir hann og ítrekar
að hann átti sig ekki á hvernig þetta eigi að ganga
upp eftir helgi.
Kristján hefur verið lamaður í rúm tuttugu ár.
Hann féll ofan af bita á verkstæði þegar hann var
liðlega tvítugur og hefur verið háður utanaðkom-
andi hjálp síðan. Hann segist vissulega vera með
hnút í maganum nú. Hann vill ekki trúa að stjórn
heimahjúkrunar standi fast á sínu en það bitnar
fyrst og fremst á skjólstæðingum eins og honum.
„Það þarf enginn að segja mér að það sé sparnað-
ur af því að setja undir þær nýja bíla. Það er eitt-
hvað annað þarna á bak við. Ég reiknaði fyrir
nokkrum árum út hvað ríkið sparaði á þvf að
bjóða upp á heimahjúkrun í stað þess að fólk í
mfnum sporum væri inni á stofnun og komst að
því það væru um það bil þrjá milljónir á ári. Það
sem verra er að ef skerða á þjónustuna eins og
þessi kona sem stjórnar heimahjúkrun lætur
liggja að þá er hætt við að fólk geti ekki verið
heima og gefist upp,“ segir Kristján og vonar í
lengstu lög að samningar náist og lýsir ábyrgðinni
alfarið á hendur stjórn heimahjúkrunar en ekki
konunum sjálfum.
„Ef á að taka þessi sjálfsögðu mannréttindi af
mér fer ég í mál við stjórn heimahjúkrunar. Mér
finnst ekki hægt að komið sé fram við okkur á
þennan hátt,“ segir hann og bendir á að í fyrra
hafi þessi sami ótti gripið um sig meðal fólks. „Þá
drógu þeir allt til baka og fara svo aftur af stað nú.
Mér finnst fyrir neðan allar hellur að þeir skuli
leika sér að tilfmningum fólks aftur og aftur," seg-
ir Kristján.
bergljot@dv.is
-----------------------------,--—----------------,---|--—
P ' |j llllp * • ’
VELKOM
' :■
ÍSLANDSFUGL KYNNIR NÝJAR OSTAFYLLTAR KJÚKLINGAPYLSUR.
FRÁBÆR SÝNINGARTIL^OÐ ALLA HELGiNA.
^erskuv