Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: GunnarSmári Egilsson Ritstjórar. Illugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar ReynirTraustason Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rítstjóm: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- ar. auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Tvöfaldur leikstjóri Um næstu helgi verða tvö leikverk frumsýnd á Höfh í Hornafirði. Leik- félag Horna- fjarðar frumsýn- ir leikritið Bar Par eftir Jim Cartwright í Mánagarði á föstudagskvöld í leikstjóm Magnúsar J. Magnú ssonar. Á sunnu- daginn frumsýnir síðan leikhópurinn Lopi barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjarnar- son eiimig í leikstjórn Magnúsar J. Magnússon- ar. Ingi fyrir Börk Ingi Sigurðsson hefur verið ráðinn úti- bústjóri fslands- bankaíVest- mannaeyjum. Tekur hann við af Berki Gríms- syni sem fýrir bragðið snýr sér að öðmm störfum. Hundalæknar f síðustu viku gerðu tveir dýralæknar á vegum Umhverfisstofnunar út- tekt á heilsufari og að- búnaði hundanna í Dals- mynni á Kjalarnesi. Fjöl- margir hundaeigendur bíða niðurstöðu þeirra með óþreyju en Ijóst er að mat dýra- læknanna ræð- ur miklu um til hvaða aðgerða Umhverfisstofn- un grípur vegna meintra brota eiganda á reglum stofnunarinnar. Dýra- læknunum var falið að skoða hvert dýr fyrir sig og kanna líkamlegt og andlegt ástand þess. Ógleymanleg veisla Árshátíð alþing- ismanna sem haldin var á dögunum á Hót- el Sögu er þeim sem þátt tóku enn í fersku minni. Þóttu nokkmm gesta mikið til koma heimsóknar á heimili Sólveigar Péturs- dóttur fyrir veisluna þar sem dómsmálaráðherr- ann fyrrverandi sýndi völdum hópi nýtt heimili sitt við Fjólugötu 1. Ekki vakti síður athygli þegar Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi félagsmála- ráðherra, mætti til fagn- aðarins með sambýlis- konu sinni, Jónínu Leós- dóttir. Þótti veislan öll með skemmtilegra móti og eru sumir enn að jafna sig. 'O X Bush og Miðausturlönd Ifyrradag nötruðu Miðausturlönd af sprengingum þegar mörg hundruð manns létu lífið í árásum á helgihald og hátíðir sjíta múslima í frak og Pakistan. Þetta gæti bent til þess að nú væri að verða að veruleika einhver skelfilegasta martröðin sem kunnugir hafa látið sér detta í hug að henti Miðausturlönd; að allt færi í bál og brand milli sjíta og súnníta. Það sem skilur að sjíta og súnníta í löndum múslima er að sumu leyti sambærilegt við það sem skilur að lúterstrúarmenn og kaþ- ólska innan kristninnar. Það er að segja, flestum utanaðkomandi finnst það vera tómur tittlingaskítur og felast aðallega í einhverjum óskiljanlegum hártog- unum aftan úr grárri forneskju sem vart sé hægt að ímynda sér að skipti nokkurn mann nokkru einasta máli. En fyrir innvígða er um að ræða djúp alvörumál sem í öfgafyllstu til- fellum er fyllilega réttlætanlegt að láta lífið fyrir. Sjíar og súnnítar hafa hins vegar yfirleitt haldið prýðilegan frið sín á milli þótt í sög- unnar rás megi vissulega finna grimmileg dæmi um hið gagnstæða. Ef núna allt er að fara upp í loft milli þeirra er að minnsta kosti ekki nema í litlum mæli um að kenna ein- hverjum verulegum sögulegum ástæðum - hitt er sönnu nær að menn sem telja sig hafa hag af því að styrjaldarástand ríki í löndun- um kyndi undir og kveiki jafnvel sjálfir þá elda sem nú virðast á góðri eða réttara sagt vondri leið með að brjótast út. Það er ekki hægt að kenna Bandaríkja- mönnum um sprengjuárásirnar í Miðaustur- löndum nú. Þau eru greinilega runnin undan rifjum öfgamanna sem myndu reyna að fara sínu fram á hverju sem gengið hefði. En þó er jafnljóst að framferði Bandaríkjamanna í Miðausturlöndum undanfarið hafa auðveld- að fyrrnefndum öfgamönnum mjög illvirki sín. Að George W. Bush forseti Bandaríkjanna hafi brugðist við árásunum í fyrradag með því að segja að tilræðin sýndu að alþjóðlegir hryðjuverkamenn vildu enn skaða Bandarík- in er hins vegar hneyksli. Nú þegar hafa þús- undir óbreyttra borgara fallið í írak og Afganistan efdr að Bandaríkjamenn byrjuðu hernað sinn í kjölfar hryðjuverkaárása á New York og Washington. Og nú falla enn hund- ruð manna og þá vogar heimalningurinn í Hvíta húsinu sér að halda því fram að Banda- ríkjamönnum hafi verið gerður einhver skaði. Með þessu hefur Bush ekki aðeins opin- berað fávisku sína um gang mál í heiminum, annars staðar en í Texas, heldur einnig svívirt fórnarlömb sprengjuárásanna. Með því að reyna að nota sér blóð þeirra í valdabaráttu heima fyrir. Þeim mun fyrr sem Bush og nótar hans kveðja Hvíta húsið í síðasta sinn, þeim mun betra. Áfram Kerry! Illugi Jökulsson Afi skera niður og sleppa Nýtt tímarit Máls og menningar er komið, hið fyrsta eftir endurreisn þess undir stjóm Silju Aðalsteins- dóttur, fyrrum menningarritstjóra DV. Eins og menn muna var tímarit- inu breytt fyrir nokkrum misserum, í kjölfar þess að Mál og menning og Vaka-Helgafell sameinuðust í Eddu útgáfu, en sú breyting gekk ekki sem best og nýir eigendur Eddu ákváðu síðan að leggja tfmaritíð niður. Bjuggust þá flestir við að saga þessa fomfræga tímarits væri öll og þótti óneitanlega sjónarsviptir að, enda var TMM mikilsverður þáttur í ís- lenskri menningarumræðu allt frá því fyrir miðja tuttugustu öld. En þá kom til skjalanna Mál og Menning-Heimskringla, gamla fyr- irtækið sem á sfnum tíma gaf tfma- ritið úL Það er enn til og á sinn hlut í Eddu þótt Björgólfur Guðmunds- son eigi þar stærstan hlut. Félagið ákvað að gera tilraun til að endur- vekja TMM upp á sitt eindæmi, án hlutdeildar Eddu, og nú er fyrsta eintakið sem sagt komið út. Það lít- ur kunnuglega út í augum þeirra sem ólust upp með TMM og í inn- gangserindi segir ristjórinn Silja að ætlunin sé að „gefa út fjölbreytt bókmenntatímarit sem þó hefúr lfka áhuga á öðrum listgreinum". Aðeins mun um tímabundna til- raun að ræða og ræðst framhaldið af því hvort tekst að safria nægileg- um Qölda áskrif- enda. í tímaritinu kennir margra grasa. Ljóð eru birt eftir Vilborgu Dag- bjartsdóttur, Matthías Johann- essen, Steinar Braga og Kristínu Eiríksdóttur. Smá- sagan Línudans er eftir glæpasagna- höfundinn Ævar Örn Jósepsson og segir í fréttatilkynningu frá TMM að ,,[m]orð [sé] framið nóttina eftirher- balife-partý heima hjá handbolta- kappanum Kalla Bergsveins og spurningin er sú hvort lausnina er að finna í lagavali gesta í karaókí- keppninni kvöldið áður þar sem Rolling Stones voru vinsælastir allra“. Þá er í blaðinu afar merk ritgerð eftir Þorstein Þorsteinsson um kveð- skap Sigfúsar Daðasonar, einkum góðkunnu „bjartsýnisljóð" hans. Eins og menn vita var „bjartsýnin" í þeim ljóðum nokkuð beggja blands, enda heitir ritgerð Þorsteins „Nei- Óhætt er að segja að Hannes Hólmsteinn ríður ekki feitum frá þessum ritdómi [í hinu endurreista Tímariti Máls og menn- ingar], frekar en ýmsum öðrum. Kristján Jó- hann hirðirað vísu lítið um þau álita- mál sem mest voru í sviðsljósinu kring- um áramótin, en honum þykir margt baga bókina þar fyrir utan. Fyrst og fremst kvæðið í tilverunni og tímunum". Þá birtist í blaðinu viðtal Silju við Stefán Jónsson leikstjóra og leikara; Aðalsteinn Ingólfsson skrifar um myndlistarárið 2003; Jónas Sen ger- ir upp árið frá sjónarhóli tónlistar- gagnrýnandans; Jón Yngvi Jóhanns- son skrifar um skáldsögur og ævi- sögur síðasta árs, og Halla Sverris- dóttir um leikgerð Meistarans og Margarítu í Hafnarfjarðarleikhús- inu. Þá skrifar Silja sjálf um menn- ingarviðburði síðasta. árs og þess nýhafna í greininni Á líðandi stund. Þótt hér sé margt læsilegt er vart efi á því að tvær greinar tímaritsins munu velqa mesta athygli. Annars vegar eru birt í fyrsta sinn drög að kvikmyndahandritinu Sölku Völku sem Halldór Laxness skrifaði f Hollywood árið 1928 meðan hann dvaldist þar og var staðráðinn í að slá í gegn í kvikmyndaborginni. Halldór Guðmundsson, væntanleg- ur ævisagnahöfundur HKL, ritar inngang og birt er bæði ensk útgáfa Halldórs sjálfe og íslensk þýðing Silju. í inngangskafla lýsir Halldór yfirbragði þorpsins þar sem myndin átti að gerast og sögunnar sjálfrar: „Það er heillandi frumstæður blær á allri sögunni. Yfirbragð harðr- ar lífsbaráttu og fátæktar. Oheflaðar tilfinningar. Persónumar eru rudda- legar, einfaldar og frumstæðar. Náttúran er makalaust hrjóstrug og villt; hafið venjulega órólegt, og sál- arlíf persónanna er nátengt þessari villtu náttúru. Vandlega og listilega útfeerð smáatriði gefa sögunni stað- fúndinn svip og auka á sérkennileg- an stfl hennar... Ung kona stígur upp á bryggju úr bát og gengur í átt til þorpsins. Hún er há og sterklega vaxin. í svip henn- ar má sjá ósnortinn hreinleika, fífldirfeku, frumstæðan þokka. Hún er búin eins og sjómaður: víðar bux- ur, stígvélaskálmamar ná upp fyrir hné, pípa í munni." Og myndin átti að enda á því að Salka Valka fer höndum, og gott bet- ur, um svipu hins brotthorfna Am- alds: „Hún strýkur úr tvöfoldum leður- ólum svipunnar og kyssir hana með allri munúð og viðkvæmni hins frumstæða manns." Hmmmmm, segjum við nú bara. Hins vegar er líka um að ræða efni sem snertir Halldór Laxness. Það er ritdómur Kristjáns Jóhanns Jónssonar um Halldór, fyrsta bindi ævisögu Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. í ljósi þess hversu umdeild sú bók var fyrir jólin - svo vægt sé nú til orða tekið - hlýt- ur hver ritdómur um hana að vekja athygli. Óhætt er að segja að Hannes Hólmsteinn ríður ekki feitum hesti frá þessum ritdómi, frekar en ýmsum öðrum. Kristján Jóhann hirðir að vísu lítið um þau álitamál sem mest voru í sviðsljósinu kringum áramót- in, en honum þykir margt baga bókina þar fyrir utan. Hann gagn- rýnir til dæmis hversu gagnrýnislítið Hannes fylgir forskrift minninga- bóka þeirra sem Halldór skrifaði kominn á gamals aldur og bendir til samanburðar á grein sem Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifaði urn þær bæk- ur: „Þeirrar sjálfstæðu og tortryggnu túlkunarfræði sem einkennir grein Sigþrúðar sakna ég í bók Hannesar sem tekur sjálfslýsingar Halldórs gildar eins og í þeim felist einhvers konar hludægur sannleikur og legg- ur þær til grundvaJlar frásögn sinni af æskuárum Halldórs." Og síðar: „Því er ekki að leyna að [fyrsta bindi ævisögu HHG] er þjak- að af því hve bágt höfundurinn virð- ist eiga með að skera niður og sleppa."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.