Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004
Fréttir TfV
Björgunar-
báturinn
týndur
Árangurslaus leit var
gerð að björgunarskipi því
sem tók út af flutningaskip-
inu Skaftafelli í fyrrakvöld.
Atburðurinn átti sér stað í
vonskuveðri skömmu íyrir
klukkan ellefu um kvöldið.
Brotsjór reið þá yfir Skafta-
fellið er það var statt um
átta mflur suður af Krýsu-
víkurbergi á Reykjanesi.
Björgunarskipið, sem er af
gerðinni Arun, er um 43
tonn að stærð og 16 metra
langt. Var það fest niður á
gámafleti og með sérstakar
flutningsgrindur í kringum
sig. Þessar festingar gáfu sig
er brotsjórinn gekk yfir og
björgunarskipið tók út.
Björgunarskip það sem hér
um ræðir er byggt til að
standast ýmis áföll og er ill-
sökkvanlegt. Því er jafnvel
talið að það mari í hálfu
kafi í sjónum út af Reykja-
nesi og geti verið hættulegt
annarri skipaumferð um
svæðið.
Opinberar
veislur?
Ágúst Ólafur Ágústsson
Þingmaður.
„Ég held að þær eigi vel rétt á
sér en auðvitað fer þetta al-
gjörlega eftir tilefninu," segir
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingar.„Menn
þurfa að meta þetta í hvert
skipti; kannski er verið að taka
á móti einhverjum eða halda
upp á tímamót. Við megum
ekki heldur vera ofpúrítönsk
og neita okkur um allt - við
erum ekkert heiiagri en páf-
inn. Hins vegar verður alltaf
að gæta hófs þvíþetta eru jú
peningar skattgreiðenda sem
fara í fögnuðinn."
Hann segir / Hún segir
„Það verður að gæta hófs í
þessu eins og öllu öðru/'segir
Ólína Þorvarðardóttir, skóla-
meistari á isafirði.„Opinberar
veisiur eiga auðvitað rétt á sér
við ákveðin tilefni en það væri
skynsamlegast að samdar
væru um þær ákveðnar leik-
reglur. Eins og staðan er í dag
eru þær ekki til. Reynstan sýnir
okkur að stundum er erfitt að
treysta einungis á siðgæðisvit-
und fólks. Það er óþarfi að
hafa hluti á gráum svæðum
sem þurfa ekkiað vera þar."
Óiína Þorvarðardóttir
Fyrrverandi framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins er ákærður fyrir 2,3
milljóna króna fjárdrátt. Valgeir Valdimarsson er til dæmis sagður hafa hirt hluta
af dagpeningum útlendra listamanna, stungið ágóða af leikskrám í eigin vasa og
falsað reikninga frá huldufyrirtæki að nafni Smith, Smith & Smith. Hann játar al-
varleg mistök.
Þjófup stýrði
dansflokki ríkisins
Í/MM
„Ég hef hvergi dregið neina dul á það að ég hafi
gert mjög alvarleg mistök," segir Valgeir
Valdimarsson, fyrrverandi fram
kvæmdastjóri íslenska dans-
flokksins, sem er sakaður um
að hafa dregið sér ríflega 2,3
milljónir króna úr sjóðum
dansflokksins.
Mál Valgeirs var þingfest
fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Lögmaður Val-
geirs fékk því frestað af
„Ég verð manna
fegnastur þegar ég
get lokið þessum
kaflaílífi
mínu.
Valgeir Valdimarsson Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri islenska dansftokksins í Héraðs-
dómi Reykjavikur igær. DV-myndGVA jiÉ[i
tæknilegum ástæðum þar til síðar í mánuðinum
að Valgeir lýsi afstöðu sinni til ákæruliðanna.
Valgeir segist heldur ekki vilja upplýsa
DV um það hvort hann muni lýsa sekt
sinni eða sakleysi - það vilji hann
geyma handa dómaranum.
Notaði danshöfund sem
skálkaskjól
Ríkissaksóknari segir í sjö liða
ákæru sinni að Valgeir hafi dreg-
ið sér áðurgreinda upphæð á
rúmlega tveggja ára tímabili, frá
því í mars 1999 fram í aprfl
2001. Allt féð var tekið út af
sama tékkareikningum í Háa-
leitisútibúi Búnaðarbankans.
Alls var um 78 úttektir að ræða.
Upp komst um málið við skoð-
un Ríkisendurskoðunar á
dansflokknum
Valgeir segir
fimm úttektir
mBB i á árinu
1999 '
upp á
sam-
tals
155 þúsund krónur hafa verið fyrirframgreidd
laun. Hann er sagður hafa tekið 356 þúsund krón-
ur beint út af tékkareikningnum á árunum 1999
og 2000 og notað í eigin þágu. Á árinu 2001 hafi
Valgeir gefið út 19 ávísanir að samtals upphæð
356 þúsund krónur sem hann hafi notað til
greiðslu eigin útgjalda.
Þá er hann ákærður fyrir að hafa með átta
ávísunum og fimm millifærslum dregið sér 512
þúsund krónur og ranglega skýrt það sem
greiðslur til Jochen Ulrich. Sá er danshöfundur
sem starfað hefur fyrir flokkinn.
Útskýrir ekki Smith, Smith & Smith
Ríkisaksóknari segir Valgeir hafa hirt 745 þús-
und krónur með því að útbúa 23 tilhæfulausa
reikninga; einn á nafnið Valgarður Bragason og 22
í nafni fyrirtækisins Smith, Smith & Smith. Valgeir
hafi einnig stungið í eigin vasa 148 þúsund króna
greiðslu frá Leikfélagi Reykjavíkur til íslenska
dansflokksins vegna sölu á leikskrám og fleiru.
Aðspurður segist Valgeir ekki vilja segja til um
hvaða fyrirtæki Smith, Smith & Smith er eða hvort
það er yfir höfuð til. Félagið er að minnsta kosti
ekki á skrá hérlendis. „Eins og með önnur atriði
sleppi ég því að svara þessu þar til málið í heild
verður tekið til meðferðar," segir Valgeir.
Sakborningurinn finnur til léttis
Að endingu segir ríkissaksóknari að Valgeir
hafi hirt 57 þúsund krónur af 132 þúsund króna
úttekt í febrúar 2001. Afganginn, 75 þúsund krón-
ur, hafi hann greitt tveimur erlendum starfs-
mönnum dansflokksins í dagpeninga.
„Það er mikill léttir að það skuli vera komin
hreyfing á málið. Það eru tæplega þrjú ár síðan
það kom upp. Allan þennan tíma hefur legið fyrir
vilji af minni hálfu að upplýsa það. Ég verð manna
fegnastur þegar ég get lokið þessum kafla í lífi
nn'nu,'' segir Valgeir Valdimarsson.
gar@dv.is
Launahæsti heilsugæslulæknir landsins er Smári Steingrímsson skurölæknir
Súperlæknir í skíðaferð
Smári Steingrímsson skurðlæknir Sá tekjuhæsti á landinu af heilsugæslulæknum.
Launahæsti heilsugæslulæknir
landsins er Smári Steingrímsson,
skurðlæknir á sjúkrahúsinu í Vest-
mannaeyjum, en hann hafði tæplega
20 milljónir kr. í árslaun árið 2002.
Þetta kemur fram í stjórnsýsluendur-
skoðun á launum starfsmanna
nokkurra heilbrigðisstofnana 2000-
2002. DV náði ekki tali af Smára í
gærdag en hann er nú í tveggja vikna
skíðafríi á Ítalíu. Dvelur hann á hin-
um þekkta skíðastað Madonna Di
Campiglio sem staðsettur er í Dóló-
mítafjöllunum í norðurhluta lands-
ins. Kunnugir lýsa staðnum sem
mjög skemmtilegu skíðasvæði með
frábærum brekkum þar sem ætíð er
möguleiki á að rekast á ríka og fræga
fólkið í Evrópu.
Gunnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins, segir að
hin háu lauri læknisins séu einkum
til komin vegna þess að Smári er eini
skurðlæknirinn á sjúkrahúsinu og
sem slflcur er hann á bakvakt allan
sólarhringinn alla daga ársins. „Föst
laun hans hér við sjúkrahúsið eru í
kringum hálf milljón króna á mán-
uði, en bakvaktirnar eru rúm milljón
króna á mánuði allt samkvæmt kjara-
samningum." segir Gunnar. „Og árið
2002 er nokkuð sérstakt þar sem
Smári komst nær ekkert í frí það ár."
í máli Gunnars kemur einnig fram
að vegna landfræðilegrar legu Vest-
mannaeyja þurfi þeir að geta boðið
upp á bráðaþjónustu allan sólar-
hringinn. Þar að auki hafi þeim ekki
tekist að fá annan skurðlækni til að
leysa Smára af og létta þessu álagi af
honum. „Smári er alhliða skurðlækn-
ir og slíkir menn virðast ekki finnast
hér á landi," segir Gunnar. „Alla vega
hefur okkur hér í Eyjum ekki tekist að
finna mann á móti Smára þótt okkur
hafi tekist rimabundið að sjá svo um
að hann komst í þetta frí sitt."
Fleiri sérhæfðir læknar á heilsu-
gæslustöðvum og sjúkrahúsum víða
um land eru á mjög háum launum
eða um eðayfir 15 milljónum króna á
ári. Þeir finnast á Blöndósi, Egilsstöð-
um, Húsavík, Neskaupstað, Selfossi
og Suðurnesjum. Fram kemur í fyrr-
greindri stjórnsýsluendurskoðun að
meðallaun lækna á heilbrigðis-
stofnunum eru í kringum milljón á
mánuði. Munurinn á hæstu launun-
um og þeim lægstu er því tæplega 7
milljónir kr.