Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004
Fréttir DV
Bjarni Sigurðsson, framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Holts, hafði tæpar 160
milljónir króna af viðskiptavinum sínum með skjalafalsi og fjárdrætti. HaHgrímur
Jónsson öryggisvörður fór heim tH hans tH að krefjast skýringa. Bjarni er nú
verkamaður úti á landi.
Nýr kafli í lífi
spilafíkils
„Ég hef fengið frábær
viðbrögð," segir Baldur Orri
Rafnsson, en í DV í gær
sagði hann frá baráttu sinni
við spilafíkn. Baldur var
það langt leiddur að hann
stal peningum hvar sem
hann kom. Frá lúðrasveit-
inni sinni, klappstýrum
sem hann hafði umsjón
með, félagsmiðstöð og að
lokum dró hann sér hálfa
milljón frá nemendafélagi
Borgarholtsskóla. Baldur er
nú í meðferð gegn spilafíkn
og hafa foreldrar hans
greitt peningana til baka.
„Eftir að fréttin birtist hef
ég fengið fjölda símtala frá
fólki sem óskar mér stuðn-
ings,“ segir Baldur. „Nú
tekur við nýr kafli í mínu
lífi.“
Ásakanir um
vinnusvik
„Það er ekkert að gera
en starfsfólk heimahjúkr-
unar er bæði slegið og sárt
vegna ummæla
Guðmundar Einarssonar,
framkvæmdastjóra
Heilsugæslunnar í
Reykjavík, á morg-
unvakt ríkisútvarps
í morgun," segir
Elsa Friðfinnsdótt-
ir, formaður Félags
íslenskra hjúkrun-
arfræðinga. Elsa
segir þessi ummæli
mjög alvarleg og ekki til
þess fallin að liðka fýrir
samningum en Guðmund-
ur hafi sakað starfsmenn
um vinnusvik og nánast
þjófkennt þá. „Eg get ekki
séð að starfsfólk komi til
baka eftir svona meðferð
né heldur að hann geti átt
von á að einhverjir sæki um
vinnu þegar forstjóri stofn-
unarinnar viðhefur svona
ummæli í fjölmiðlum. Ég
bara skil manninn ekki,“
segir Elsa.
Björk Jakobsdóttir Leikkona
Ég er að klára sýningar á
Sellófon í Iðnó áður en ég held
utan með verkið," segir Björk
Jakobsdóttir en sýningar er-
lendis verða í mars á Sikiley og
Fasteignasalinn
hafði fimm milljónir
af öryggisverði
„Fasteignasalinn hafði af okkur fimm milljónir
með svikum," segir Hallgrímur Jónsson öryggis-
vörður, sem keypti parhús í Salahverfi í Kópavogi
af Bjarna Sigurðssyni, framkvæmdastjóra fast-
eignasölunnar Holts, sem dæmdur var til þriggja
og hálfs árs fangelsisvistar í héraðsdómi í gær.
Samanlagt hafði Bjarni rúmar 158 milljónir
króna af viðskiptavinum fasteignasölunnar með
fjárdrætti, skjalafalsi og fjársvikum. Þá borgaði
Bjarni ríkissjóði ekki skatt af launum starfsmanna
Svikinn Hallgrímur Jónsson öryggisvörðurog fjölskylda eru í
fjölmennum hópi manna sem voru svikniraflöggilta fast-
eignasalanum Bjarna Sigurðssyni. Hallgrimur mætti á tröpp-
urnar hjá Bjarna og hjá Helga Ingvarssyni, tengdaföður hans,
sem seldu honum parhús í Kópavogi. DV-mynd Róbert
sinna árið 2002, samtals 2,83 milljónir króna.
Hann borgaði ekki heldur virðisaukaskatt að and-
virði 2,8 milljónum króna sem fasteignasalan
hafði innheimt af viðskiptavinum.
Parhúsið í Kópavogi var byggt af Steinhúsum
ehf, sem er fyrirtæki í eigu Helga Ingvarssonar,
tegndaföður Bjarna fasteignasala. Þegar Hall-
grímur tók við híbýlunum af Bjarna og Helga voru
þau ekki fokheld, líkt og samningur kvað á um.
Var fasteignasalan skikkuð til að endurgreiða
Hallgrími og fjölskyldu 3,2 milljónir króna, sem
aldrei sáust. Þá voru húsbréf og lífeyrissjóðslán
sem Hallgrímur tók við úr hendi fasteigna-
sölunnar í vanskilum um tæpar tvær milljónir
króna. Þetta greiddi Hallgrfmur í fyrradag úr
eigin vasa. Þá hafði hann sjálfur greitt ^ ,
úr eigin vasa eða framkvæmt sjálfur
endurbætur á íbúðinni til að öðl-
ast fokheldnivottorð. Auk þess "
greiddi fasteignasalan ekki fast- ;, ■■ '
eignagjöld og tryggingagjöld %$%%%ý
upp á 182 þúsund sem kaup-
andinn reiddi sjálfur fram.
Hallgrímur reiddist þegar
hann áttaði sig á svikunum og
ákvað að hitta Bjarna augliti til
auglitis. „Ég var reiður yfir að vera
svikinn og fór því heim til hans.
Hann var því miður ekki heima.
Ég vildi láta hann segja við mig augh..
til auglitis: „Því miður sveik ég þig, ég
hafði þig að fi'fli," segir Hallgrímur.
Greiðslubyrði hans og fjölskyld-
unnar hefur hækkað um 30 þús-
und krónur á mánuði vegna
svikanna, en fjölskyldan
neyddist til að taka frekari lán
til að standa í skilum við lána
stofnanir. Hallgrímur undir-
býr nú málsókn á hendur
Helga Ingvarssyni, eiganda
Steinhúsa og eins afkom-
enda Ingvars Helgason-
„Ég vildi láta hann segja við
mig augliti til auglitis: „Því
miður sveik ég þig, ég hafði
þigaðfífli'Y'
ar, sem skrifaði upp á samningana sem fasteigna-
salan sveik.
Bjarni var dæmdur fyrir þennan verknað og
tæplega 50 önnur ákæruatriði í héraðsdómi og
var honum gert að endurgreiða um 100 milljónir
króna. Hann er nú verkamaður og vinnur við
sumarbústaði á landsbyggðinni, en af þeim
sökum mætti hann ekki í dómsúr-
skurðinn í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögmanni hans er hann
símalaus og því ekki hægt að ná í
hann.
Það tæki Bjarna 38 og hálft
ár að greiða upp 100 milljóna
króna skuld sína við viðskipta-
vini sína, ef gert væri ráð fyrir
því að hann fengi meðallaun
verkafólks, 217 þúsund
krónur á mánuði.
jontrausti<a>dv.is
Fasteignasalinn Bjarni Sigurðs-
son er lögfræðimenntaður en
starfar nú sem verkamaður. Hann
má hvorki selja hús, fyrirtæki né
skip, þar sem hann hefur verið
sviptur löggildingu ævilangt.
Fiskgæði á Hornafirði lýsir yfir gjaldþroti
Hvað liggur á?
I Belgíu, síðan verður sýning í
maí rétt fyrir utan Berlín
Björk segir að þá sé Charlotte
Böving bráðlega að fara af
stað með Sellófon í Folke
Theatren í Kaupmannahöfn
þannig að það er nóg að gera.
„Þetta er rétt að byrja hjá mér
og það verður spennandi að
sjá hvernig þetta gengur en
næsta ár sker úr um það. Nú
svo er tveggja ára afmælisleik-
ár íapríl og ég var að fá styrk
sem er ofsalega gaman, “segir
Björk og hvetur þá sem ekki
hafa séð Sellófón en hafa
lengi ætlað sér að drífa sig af
stað áður en sýningar hætta í
apríl.
Um 25 manns missa vinnuna
„Ég get staðfest það að naglinn er
kominn í kistuna," segir Jón Hafdal,
skipstjóri og einn hluthafa Fiskgæða
á Hornafirði, en það fyrirtæki er
komið í gjaldþrot. Allir 25 starfs-
menn verksmiðjunnar missa vinn-
una og bætast við fjölda atvinnu-
lausra á Hornafirði. Fiskgæði hafa
einbeitt sér að vinnslu ferskfisks og
humars.
“Það var búið að leita allra leiða
en alls staðar komum við að lokuð-
um dyrum og því var eina ráðið að
loka. Það var vinnsla f húsinu þar til
í fyrradag og góður grundvöllur fyrir
vinnslu af þessu tagi en eldri skulda-
hali reyndist okkur of þungur og því
var þessi ákvörðun tekin."
Jón segir að leitað hafi verið til
Byggðastofnunar eftir aðstoð en
slíkt ekki fengist. „Það er hins vegar
klárlega hægt að láta slíka vinnslu
bera sig vel ef ekki eru eldri skuldir
að sliga reksturinn. En þar fengum
við neitun og það var síðasta hálm-
stráið."
Frá Hornafirði Atvinnuástandið þarvar
slæmt ennú syrtir I álinn þar sem 25 manns
hafa misst vinnuna i vinnsiuhúsi Fiskgæða.