Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Page 9
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 9
Sorg í írak
írakar syrgja þá sem lét-
ust í sjálfsmorðsárásum á
sjíta múslima í fyrradag en
talið er að rúmlega tvö
hundruð manns hafi týnt lífi
í Bagdad og Kerbala. Banda-
rísk heryfirvöld segja að 117
hafi fallið í árásun-
um en sú tala hef-
ur verið dregin í
efa. Árásimar vom
gerðar á helgasta
degi sjíta, degi
sem ekki hefur
verið haldið upp á
í írak í þrjátíu ár.
B andaríkj amenn
saka jórdanskan hryðju-
verkamann um að hafa
skipulagt ódæðið en hann er
talinn tengjast ai-Qaeda.
Fimmtán manns hafa verið
handteknir vegna málsins
en leiðtogar sjíta varpa
ábyrgðinni á innrásarherinn
í írak sem þeir segja hafa
bmgðist skyldum sínum.
Fetarífótspor
mömmu
Harry prins fetar í fótspor
móður sinnar heitinnar með
því að berjast gegn eyðni.
Prinsinn hefur að
undanförnu dvalið í
Lesotho þar sem
hann hefur meðal
annars heimsótt
böm sem hafa
misst foreldra
vegna sjúkdómsins.
Um 40% þjóðarinn-
ar em smituð af
eyðni og hefur prinsinn
heitið því að vekja athygli á
vanda landsins. „Veröldinni
verður að verða ljóst að
Lesotho þarfnast aðstoðar,"
sagði prinsinn.
Sýslumaður sýknar í sjúkraskrármáli í Búðardal. Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
hrósar sigri eftir að málið var fellt niður. Krefst þess að fá vinnuna aftur.
Hjúkrunaplopstjóri í mál
við nógheraí Búðardal
Sýslumaður sýknaði Guðrún Jóna Gunnarsdóttir i Búðardal hrósar sigri eftir að sýslumaður tilkynnti að sjúkraskrármálið
hefði verið fellt niður.
Sýslumaðurinn í Búðardal hefur ákveðið að
falla frá kæru á hendur Guðrúnu Jónu Gunnars-
dóttur, hjúkrunarforstjóra og'fyrrum varaoddvita,
í Búðardal. Guðrúnu Jónu var síðasta haust vísað
af vinnustað sínum á heilsugæslustöðinni í Búð-
ardai vegna grunsemda um að hún hefði skoðað
sjúkraskrár pólitískra andstæðinga sinna í óheið-
arlegum tilgangi. Þá fékk hún áminningu. Rann-
sókn hófst 12. nóvember en í gær fékk Guðrún
Jóna bréf frá sýslumanni þar sem tilkynnt er að
málið hafi verið fellt niður.
„Ég hefði viljað fara alla leið enda viss um að
sakleysi mitt tryggði sýknu," segir Guðrún Jóna
sem fagnar sigri í málinu. En hún er síður en svo
sátt enda telur hún að yfirlæknir heilsugæslunnar
hafi reynt að koma á sig sök.
„Það er með ólíkindum að yfirlæknirinn hafi
fengið að starfa óáreittur á meðan mér var vísað af
vinnustað. Hann hefur stöðu sakbornings fyrir
meint skjalafals," segir hún.
Guðrún Jóna hafði í gær ekkert heyrt frá
heilsugæslunni um það hvenær hún fengi vinnu
sína aftur en Pétur Jónsson forstjóri lýsti því í
Fréttablaðinu að hún fengi ekki að koma aftur því
þá myndi allt annað starfsfólk hætta störfum.
Hún hyggst leita réttar síns gagnvart rógberum.
„Krafa mín er að fá starfið aftur og uppreisn
æru. Ég reikna með að fara í skaðabótamál við þá
sem borið hafa mig þungum og röngum sökum.
Þetta hefur verið hræðilegt fyrir mig og börnin
mín og reyndar verið öllu samfélaginu erfitt. Ég
var svipt embætti varaoddvita og formanns
byggðaráðs auk þess að vera vísað úr nefndum.
Nú er vantrauststillaga oddvitans, félaga míns af
L-lista, fallin um sjálfa sig svo ég hlýt að fá upp-
reisn innan sveitarstjórnar," segir Guðrún Jóna.
Hún hafði ekki heyrt frá sveitarstjórnar-
mönnum fremur en vinnuveitendum. Því liggur
ekkert fyrir um það livort henni verði boðin fyrri
staða í sveitarstjórn Dalabyggðar. Upphaf
Ólgunnar þar má rekja til deilna um sölu á
Hitaveitu Dalmanna. Það mál varð til þess að
Guðrún Jóna lenti í beinum átökum við pólitískan
andstæðing og hlaut glóðarauga í þeim
samskiptum.
rt@dv.is
Askriftar
happdrætti
Ferð fyrir 2 til London eða
Kaupmannahafnar
Áskriftarsíminn er 550 5000
Á hverjum föstudegi til páska
verður dregið úr öllum
áskrifendum DV og sá heppni
fær ferð fyrir 2 með lceland
Express til London eða
Kaupmannahafnar.
Vinningshafar verða kynntir í
helgarblaði daginn eftir útdrátt.
Með DV fylgist þú betur með
þjóðmálaumræðunni hverju
sinni. Helgarblaðið fylgist með
þeim einstaklingum sem skara
fram úr. Helgarviðtalið,
krossgátan, sérstæð sakamál og
margt fleira. DV tekur á málum
af harðfylgi og áræðni. DV veitir
stjórnvöldum hverju sinni
kröftugt aðhald. Á DV duga
engin vettlingatök.