Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004
Fréttir DV
Davíð til
Danmerkur
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Ástríður
Thorarensen eiginkona
hans eru nú stödd í Dan-
mörku í opinberri heim-
sókn. Verða þau hjón þar í
landi fram á 6. mars. Meðal
annars mun Davíð hitta að
máli Anders Fogh Rasmus-
sen forsætisráðherra Dan-
merkur. Meðan á heim-
sókninni stendur munu
forsætisráðherrahjónin
vera við opnun sýningar
um Jón Sigurðsson og sjálf-
stæðisbaráttu íslendinga.
Einnig mun forsætisráð-
herra ávarpa ráðstefnu sem
haldin verður í tilefni af
hundrað ára afmæli heima-
stjórnarinnar.
Enn erverk-
færum stolið
Tilkynnt var um tvö
innbrot til lögreglunnar í
Reykjavík í gærmorgun. I
fyrra tilvikinu var um inn-
brot í nýbyggingu í Graf-
arvogi að ræða en þaðan
var stolið verkfærum. í
hinu tilvikinu var brotin
hliðarrúða á bfl í Teiga-
hverfinu og þaðan stolið
geislaspilara ásamt 100
geisladiskum. Að sögn
lögreglunnar hefur tölu-
vert verið um stuldi á
verkfærum úr nýbygging-
um í borginni. Telur lög-
reglan að þessi verkfæri
lendi á þjófamarkaði. Ein-
hver beinlínis panti þessi
verkfæri á þeim markaði
og síðan séu einhverjir
menn fengnir til að fara í
innbrotin, hugsanlega til
að borga niður fíkniefna-
skuldir.
Jón Knútur Ásmundsson,
ritstjóri Austurgluggans.
„Stemningin er bara ágæt í
bænum og flestir hafa jafnað
sig á þessum atburði og lifa
Landsíminn
lífinu eins og áður. Bæjarbúar
munu senniiega aldrei gleyma
líkfundinum og öllu því sem
fylgt hefur í kjölfarið. Hvort
þessi atburður segir eitthvað
um Neskaupstað er mér mér
mjög til efs."
Breski bisnessmaðurinn Howard Kruger, sem vildi kaupa Hótel Valhöll og flutti
þungarokkara og körfuboltamenn til íslands, í sviðsljósinu í Bretlandi. Tekinn
saman við konu George Best. Gaf sig fram við lögreglu í Brighton í fyrradag
ákærður um kynferðisbrot gegn barni. Mætir fyrir dómara á morgun.
The Sun greinir frá því í gær
að Kruger, hafi mætt tii lög-
reglu í fyrradag. Hann var
þar handtekinn og afhon-
um tekin fingraför og sýni.
Breski athafnamaðurinn Howard Kruger hef-
ur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn sex ára
stúlku og mætir fyrir dómara í Brighton á
Englandi á morgun. Kruger þessi hefur ítrekað
komið til íslands, síðast þegar hann hugðist
kaupa Hótel Valhöll á Þingvöllum en áður skipu-
lagði hann allskonar uppákomur, rokktónleika,
balletsýningar, sirkus og íþróttasýningar hér á
landi. Flest þau ævintýri enduðu illa fjárhags-
lega.
The Sun greinir frá því í gær að Kruger, sem
hefur tekið saman við konu fótboltastjörnunnar
George Best, hina 32 ára Alex Best, hafi mætt til
lögreglu í fyrradag. Hann var þar handtekinn og
af honum tekin fingraför og sýni. Fulltrúi sak-
sóknara staðfesti við Sun að 44 ára gamall mað-
ur hefði verið handtekinn fyrir ósæmilega vald-
beitingu gagnvart barni. Móðir stúlkunnar kærði
Kruger til lögreglu í desember. Kruger lýsir yfir
sakleysi sínu og Alex segist munu standa með
sínum nýja kærasta.
Kruger á þrjú börn
með fyrri konu
sinni. Þau Alex eru
nýtekin saman eftir
að hún yfirgaf Geor-
ge Best. Þá hafði fót-
boltakempan
skemmt Mercedes
Benz bíl Alex, ofsótt
hana með símtölum
og talað illa um hana
við breska fjölmiðla.
George Best er að
margra mati besti fót-
boltamaður allra tíma
en hefur átt við
drykkjuvandamál að
strfða um áratuga-
skeið. Þegar Alex tók
saman við Kruger lýsti
hún honum sem venju-
legum manni, ólíkt sín
um fyrri.
vvnhi' RAP
psraröggyíTB^aSggBBa
Forsíða Sun í gær Greinirfrá þvi að Kruger,
ástmaður Alex Best, hafi verið kærður.
Vildi kaupa Vaihöll
Howard Kruger reyndi að kaupa Hótel Valhöll
á Þingvöllum sumarið 2000. Davíð Oddsson sagði
Howard Kruger Mætir fyrir dómara á
morgun, sakaður um að níðast á stúiku.
við það tækifæri að Valhöll ætti
ekki að verða sumarbústaður fyrir
erlendan auðkýfing. Kruger er 44
ára og býr í glæsilegu húsi utan við
London. Hann er snyrtilegur í fasi
og kurteis í framkomu, segja ís-
lendingar sem hafa hitt hann. Þeir
hafa einnig orð á miklum íslands-
áhuga mannsins. Hann er greini-
lega vel efnaður og hefur gaman af því að halda
boð og bjóða þangað fyrirmennum.
Kruger skipulagði þungarokkstónleika í
Kaplakrika og setti upp Svanavatnið í Þjóðleik-
Alex Best Ætlar að standa með kærasta sinum.
húsinu. Við þá frumsýningu lét Kruger taka af sér
mynd með Vigdísi Finnbogadóttur. Fyrirtæki Kru-
gers stóð síðar að því að flytja inn rokkhljómsveit-
ina Race Against the Machine og fiðluleikarann
Nigel Kennedy fyrir Listahátíð Hafnarfjarðar.
Næst flutti hann inn körfuboltasnillingana
Harlem Globetrotters og eftir það kínverskan
sirkushóp og árið 1994 hafði Kruger uppi fyriræd-
anir um stórfengleg skemmtiatriði á Lýðveldishá-
tíðinni þar á meðal James Brown. Ekkert varð af
þeim en það kostaði skipuleggjendur dágóðar
upphæðir.
kgb@dv.is
Sjávarútvegsráöuneytið sagt veita leiguliðum náðarhögg:
Netabátum meinað að veiða stóran fisk
Með nýrri reglugerð sjávarút-
vegsráðuneytisins verður sjómönn-
um á netabátum gert að þrengja
möskva á netum úr nfu og hálfri
tommu í sjö og hálfa tommu, í þeim
tilgangi að hindra þá frá því að veiða
stóran fisk. Þetta kemur sjómönnum
á netabátum spánskt fyrir sjónir, en
með þessu verður mun meira af
smáfiski en áður í afla þeirra. Þannig
rýrir þetta verðmæti aflans sem fæst
fyrir kvóta og eykur smáfiskadráp.
Ólafur Arnberg Þórðarson, skip-
stjóri á netabátnum Eldhamri frá
Grindavík, segir breytingarnar á
reglugerðinni vera náðarhögg. „Fyr-
ir okkur sem leigjum til okkar þorsk-
kvóta á 120 krónur kílóið er þetta
náðarhöggið," segir hann, en al-
þekkt er að kílóið af stórum fiski er
verðmeira en kílóið af litlum fiski.
Sem dæmi má nefna að lægra verð
fæst fyrir undirmálsþorsk heldur en
það sem kostar að leigja þorskkvóta.
Stór þorskur, hins vegar, selst á 240
til 250 krónur um þessar mundir
vegna eftirspurnar í Suður-Evrópu í
aðdraganda föstunnar.
Reglugerðin byggir á þeirri skoð-
un Guðrúnar Marteinsdóttur, vfs-
indamanni hjá Hafrannsóknar-
stofnun, að stóri fiskurinn sé undir-
staða nýliðunar í stofninum, en
hann sé víða að hverfa. Ólafur skip-
stjóri kveðst ekki skilja sjónarmiðið.
„Hún vill meina að örfáir stórir fisk-
ar standi undir stofninum í þorskin-
um, en það er mín sannfæring að
svo sé ekki. Það eru ungir og sterkir
einstaklingar sem standa undir líf-
ríkinu í öllu dýralífinu. Það væri ekki
farsælt ef fólkið á elliheimilinu færi
að viðhalda okkar stofni.“'
jontrausti@dv.is
Ekki fleiri goiþorska Með nýrri reglugerð
sjávarútvegsráðuneytisins á að koma i veg
fyrir að netasjómenn veiði stóran fisk. Þetta
er gert meö þvi að minnka möskvastærð
þannig að þeirveiði fremur smáfisk.
i