Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004
Fréttir DV
Konurvilja
karlamusteri
Mikill meirihluti um-
sækjenda um embætti
prests í Nesprestakalli í
Reykjavík eru konur. 15
manns sóttu um brauðið
en þar af eru níu konur.
Augljóst má því vera að
konur sækja í vaxandi mæli
í það musteri karla sem
prestsstarfið er. Þeir sem
sóttu um eru, Aðalsteinn
Þorvaldsson guðfræðingur,
Arndís Ósk Hauksdóttir
guðfræðingur, séra Bára
Friðriksdóttir, Bryndís Val-
bjarnardóttir guðfræðing-
ur, séra Elínborg Gísladótt-
ir, séra Guðbjörg Jóhannes-
dóttir, Gunnar Jóhannes-
son guðfræðingur, séra
Helga Helena Sturlaugs-
dóttir, Jóhanna Magnús-
dóttir guðfræðingur, séra
Jón Ragnarsson, séra Sig-
urður Arni Þórðarson, séra
Skúli Sigurður Ólafsson,
Vigfús B. Albertsson guð-
fræðingur, Þóra Ragnheið-
ur Björnsdóttir guðfræð-
ingur, séra Þórhildur Ólafs.
Biskup íslands mun á
næstunni skipa í stöðuna.
Enqin vand-
ræði vegna
veðurs"
Engin stórvandræði
urðu vegna veðursins í
fyrrakvöld á höfuðborgar-
svæðinu samkvæmt yfirliti
kvöldsins hjá lögreglunni í
Reykjavík. Hinsvegar voru
björgunarsveitarmenn kall-
aðir út um kvöldmatarleyt-
ið þegar fregnir fóru að
berast af því að lausir mun-
ir væru að fjúka um víða í
borginni. Björgunarsveitar-
menn fóru um höfuðborg-
arsvæðið á fjórum bflum en
þeir þurfu ekki að standa í
neinum stórræðum. í ein-
staka tilvikum þurftu þeir
að fergja lausa muni en
aldrei var nein hætta á
ferðum.
Albert Jensen
„Ég hefþað ágætt að öðru
leyti en því að ég lenti strax í
skakkaföllum vegna þess að
viðvaningur kom á mánudag-
inn út afástandinu í heima-
hjúkrun," segir Albert Jensen,
kjallarahöfundur og skjól-
Hvernig hefur þú það?
stæðingur heimahjúkrunar.
„Ég hefmiklar áhyggjur af
starfsliði heimahjúkrunar og
að maður missi góða vini og
kunningja sem við skjólstæð-
ingar erum vanir að um-
gangast. Ég hefáhyggjur af
því ranglæti sem stjórn heima-
hjúkrunar kemst upp með að
sýna þeim. Ég skora á þær að
kæra Þórunni Ólafsdóttur for-
stjóra fyrir siðanefnd og fyrir
meiðyrði og standa umfram
allt saman, vegna þess að
óstéttvísi er ávísun á lægri
laun."
Ráðherraveisla forsætisráðherra í Iðnó kostaði 1400 - 1450 þúsund krónur. Það gera
um 15 þúsund krónur á hvern gest. Boðið var upp á hvítlauksristaðan humar,
lamb með kantarellum og höfug vín. Meira en þriðjungur boðsgesta mætti ekki,
þar á meðal forsetinn og utanríkisráðherra enda báðir 1 útlöndum.
Ráðherrarnir sem mættu Vegna myndatexta við frétt OV á
þridjudag um Iðnóveisluna skal tekið fram að myndin sem
fylgdi var birt með samþykki forsætisráðuneytisins. Það var þvi
ekki rétt sem fram kom að ráðuneytið hefði ekki orðið við
beiðni DV um að fá myndina til birtingar. Myndina tók Ounnar
G. Vigfússon Ijósmyndari fyrir forsætisráðuneytið.
Veislan sem Davíð Oddsson forsætisráðherra
hélt íyrrverandi og núverandi ráðherrum og for-
setum Alþingis, ráðuneytisstjórum, mökum og
nokkrum embættismönnum kostaði á bilinu 1400
til 1450 þúsund krónur.
Forsætisráðuneytið sendi í gær umbeðin ítar-
legri svör en ráðuneytið hafði áður gefið við
spurningum DV um veisluna sem haldin var í
nafni forsætisráðherrahjónanna. Tilefnið var 100
ára afmæli heimastjórnarinnar.
í kostnaðartölunni er matur, drykkir, leiga,
starfsfólk, prentun á dagskrá, skemmtikraftar,
merki, skreytingar og fleira.
Ristaður humar og kantarellur
Alls mættu 95 gestir til veislunnar sem haldin
var í Iðnó laugardagskvöldið 7. febrúar. Kostnað-
urinn hefur því numið um 15 þúsund krónur á
hvern gest enda voru veitingar og skemmtiatriði af
vandaðri gerð.
í forrétt fengu gestirnir hvítlauksristaðan hum-
ar, þar á eftir íylgdi kjötseyði áður en borinn var
fram lambahryggur með kantarellum og rauðvíns-
sósu. í eftirrétt var ísinn Parfait Islandair.
Sætt og mjúkt með sýrópskeim
Á undan matnum gátu gestir fengið sér 10 ára
Warre’s Otima portvín sem á heimasíðu Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins er sagt vera vera sætt
og mjúkt með sírópskeim.
Með matnum var boðið upp á hvítvínið Joseph
Drouhin Chablis árgang 2002. Um það er ekkert að
ftnna á heimasíðu ATVR.
Einnig var boðið upp á rauðvínið Banfi Poggio
Alla Mura, árgang 1998, sem ÁTVR selur á 3.190
krónur flöskuna og segir að sé dökkrautt, bragð-
mikið, þétt og tannískt með kryddum og bökuðum
ávaxtakeim.
Drjúgur þriðungur mætti ekki
Forsætisráðuneytið hefur orðið við ósk DV og
sent blaðinu lista yftr alla þá sem boðið var til
veislunnar. Samtals var 152 gestum boðið en 57
þeirra mættu ekki.
„Dökkrautt, bragðmikið, þétt
og tannískt með kryddum og
bökuðum ávaxtakeim
Einu gestirnir sem ekki var boðið f krafti fyrr-
verandi eða núverandi fasts embættis síns voru
hjónin Júlíus Hafstein og Erna Hauksdóttir. Júlíus
er framkvæmdastjóri heimastjórnarafmælisins
Meðal þeirra sem ekki mættu voru Ólafur
Ragnar Grímsson, íyrrverandi fjármálaráðherra,
og eiginkona hans Dorrit Moussaieff. Það sama
gildir um Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
og eiginkonu hans Sigurjónu Sigurðardóttur. Allt
þetta fólk var í útlöndum.
Eins og getið var um í DV á þriðjudag komu
fram í veislunni Jónas Ingimundarson píanó-
leikari og Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari.
Auk þeirra skemmti gestunum barítónsöngvarinn
Ólafur Kjartan Sigurðson.
gar@dv.is
Gömul kona sendir handprjónaða lopasokka til fótkaldra verkamanna við Kárahnjúka
Nóg komið af sokkum við Kárahnjúka
Kvenfélagið Bláklukkan á Egil-
stöðum fékk dularfulla sendingu á
dögunum, pakka sem inniheldur á
þriðja tug lopasokka. Með fylgdi
dularfullt bréf þar sem farið er fram
á að sokkunum verði komið til er-
lendra verkamanna við Kárahnjúka-
virkjun. Undir bréfið ritar „Gömul
kona að vestan" en frá þessu greinir
í tímaritinu Austurglugginn sem
kemur út í dag.
Bláklukkukonur, með Gunnhildi
Ingvarsdóttur formann í broddi fylk-
ingar, sneru sér til Impregilo sem af-
þakkaði gjöfina en vildi þó koma á
framfæri þakklæti fyrir hlýhuginn.
Austurglugginn vildi hafa milli-
göngu og höfðu samband við hinn
skelegga talsmann Impregilo, Ómar
Valdimarsson, en hann flrrtist við
spurningunni hvernig best væri fyrir
kjarnakonur kvenfélagsins að verða
við hlédrægri bón gömlu konunnar
að vestan. Hann neitaði þá að tjá sig
um málið og samkvæmt þessu er
Austurglugginn því korninn á svart-
an fjölmiðlalista Ómars. Hann sagði
þó: „Það er nóg til af sokkum á Kára-
hnjúkum en að öðru leyti þakkar
Impregilo hlýhug kvenfélagsins og
konunnar að vestan." Það liggur því
fyrir að Bláklukkukonur verði að
koma sokkunum til skila með öðr-
um hætti en gegnum Impregilo.
„Við erum því engu nær um
sendandann en munum gera ráð-
stafanir til að verða við ósk konunn-
ar. Við verðum að gera það fyrir kon-
una,“ segir Gunnhildur formaður
ákveðin og sokkunum mun því
væntanlega komið á réttar fætur við
Kárahnjúka með einum hætti eða
öðrum.
jakob@dv.is
Ómar Valdimarsson Talsmaður Impregilo
neitar að tjá sig um málið en segir þó nóg
komið afsokkum við Kárahnjúka og hunsar
þarmeð gjöf„Gömlu konunnar að vestan."