Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Qupperneq 21
J3V Sport
FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 21
Vandræði Frakkans, Gerard Houllier, hrannast upp hjá Liverpool. Þolinmæði stuðningsmanna liðsins í
hans garð er löngu þrotin en þrátt fyrir það er ekkert fararsnið á franska skólastjóranum. Það er
augljóslega farið að hafa áhrif á geðheilsu einhverra stuðningsmanna liðsins sem eru farnir að senda
honum morðhótanir. Einnig var spreyjað miður huggulegum skilaboðum á vegg á æfingasvæði liðsins.
Hættu... eöa þú
verður drepinn
Lögreglan í Liverpool-borg
hefur sett af stað rannsókn eftir að
Gerard Houllier, framkvæmd-
astjóra Liverpool, var hótað lífláti.
Málið er litið mjög alvarlegum
augum og Houllier er talinn vera á
nálum vegna málsins. Hann hefur
þó ekki hug á að láta hrekja sig úr
starfi á þennan hátt heldur mun
hann halda ótrauður áfram.
Talið er að f bréfinu hafí verið að
finna nákvæmar lýsingar á
hegðunarmynstri Houllier þannig
að augljóslega hefur verið fylgst vel
með honum. Sá er sendir bréfið
heldur því einnig fram að hann
þekki heimili Houlliers og að hann
muni drepa hann hætti hann ekki
með Liverpool-liðið.
Lögreglan rannsakar málið
Forráðamenn Liverpool höfðu
strax samband við lögregluna sem
er búin að setja af stað rannsókn.
„Félagið fordæmir algjörlega
slíka hegðun," sagði Ian Cotton,
talsmaður Liverpool. „Þetta var
virkilega óhuggulegt bréf sem við
töldum að við yrðum að sýna
lögreglunni. Þeir hafa nú þegar sett
af stað rannsókn á málinu. Við
viljum alls ekki gera of mikið úr
málinu en það er ekki hægt annað
en að taka þetta bréf alvarlega.“
Bréfið, sem taiið er að hörðustu
menn fái gæsahúð við að lesa, var
sent til Liverpool fyrir þrem vikum
síðan eða fyrir fyrri leik Liverpooi
gegn Portsmouth í bikarnum.
Houllier opnaði það sjálfur.
Vonandi deyrðu úr alnæmi '
Eins og áður segir hafði þetta bréf
talsverð áhrif á Houllier en hann
ætlar ekki að láta hótunina hafa
áhrif á sig. Hann mun þar af leiðandi
ekki breyta hegðunarmynstri sínu
né njóta sérstakrar verndar.
Liverpool hefur verið f Búlgaríu
undanfarna daga og Houllier hefur
neitað að svara spurningum
blaðamanna um bréfið.
Morðhótunin er ekki einu
skilaboðin sem hann hefur fengið
frá sjúkum stuðningsmönnum
félagins því um daginn var búið að
spreyja utan á vegg á æfingasvæði
félagsins skilaboð til Houlliers: V5ð
vonum að þú deyir úr alnæmi!
Houllier vildi ekki heldur ræða
mikið um þá sendingu heldur sagði
hann að eflaust hefði einhver
fýllibytta gert þetta í bræði sinni og
myndi vart eftir því f dag.
Leikmenn styðja stjórann
Leikmenn Liverpool hafa staðið
þétt við bak stjórans og segja að ekki
megi eingöngu kenna honum um
dapurt gengi félagsins á tímabilinu.
Þeir eigi einnig ansi stóran þátt í
málinu.
„Stjórinn hefur fengið sinn skerf
af ósanngjarnri gagnrýni en það er
ekki hann sem er inni á vellinum,“
sagði Finninn Sami Hyypia, fyrrum
fyrirliði liðsins. „Það verða allir að
axla ábyrgð á þessu gengi. Ekki bara
stjórinn heldur leikmennirnir líka.“
Gengi Liverpool hefur verið afar
dapurt á þessari leiktíð og fátt sem
bendir til þess að Houllier sé á réttri
leið með liðið - þvert á móti virðist
liðið vera í afturför þessa dagana.
Hlýjar móttökur
Þeir eru úr leik í enska bikarnum
og eiga enga möguleika á enska
meistaratitlinum. Þeir voru enn með
í UEFA-bikarnum þegar þetta var
skrifað en það gæti hafa breyst þar
sem þeir léku við Levski Sofia í
gærkvöldi og fóru í þann leik með
vænlega stöðu.
Alvöru stuðningsmenn félagsins
hafa brugðist við þes$um árásum á
stjórann með miklum stuðningi í
síðustu leikjum þar sem þeir hafa
sungið nafn Frakkans hátt og snjallt
fyrir leik. Það yljaði viðkvæmu hjarta
franska skólastjórans.
henry@dv.is