Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004
Fókus DV
Allt um tísku
www.fashion.net, the online fas-
hion guide, er ein flottasta síðan
íyrir tískuáhugafólk. Þar er hægt að
fá allar helstu upplýsingar um nán-
ast allt sem tengist tísku á einhvern
hátt. Hönnuðir, sýningar, búðir,
bæklingar
og margt
fleira sem
er afar sniðugt fyrir þá sem áhuga
hafa á tískunni. Þar er fólki einnig
bent á aðrar flottar síður eins og til
dæmis: elle.com, esquire.com, hint-
mag.com, marieclaire.com,
papermag.com.
Tískumolar
Vanilla til
heimilisins
Heimilissprey er ilmgjafi og ætti
að vera til á öllum heimilum. Sá
sem er hvað
vinsælastur
um þessar
mundir er
vanilluilmur-
inn góði. Ei-
lítill bökun-
arkeimur er
af honum í
íyrstu sem þykir mjög heimilislegt
en svo ilmar heimilið eins og fersk
vanilla. Ilmurinn fæst í versluninni
L’oocitane við Laugaveginn. Versl-
unin er með hátt í 14 tegundir af
heimilisilmum í öllum stærðum og
gerðum.
Létturog
smart sími
Nýjasti síminn á markaðnum er
þessi Nokia 3100 sími sem fáanleg-
ur er í bleikum lit og
bláum. Sfminn er
með litaskjá, keilu-
leik, uppfærðum
snake, skeiðklukku,
lithium batteríi,
flottum bakgrunns-
myndum í lit svo
eitthvað sé nefnt.
Síminn er ofboðs-
lega léttur og mjög
smart. Nokia er einn öflugasti síma-
framleiðandinn og kemur nýtt útlit
á símum frá þeim afar reglulega.
Stella, létt
og krydduð
Ilmurinn
sem nýtur
hvað mesta
vinsælda um
þessar
mundir er
nýjasti ilmur
Stellu
McCartney
sem er fyrir
afar breiðan
aldurshóp
að sögn.
llminum er lýst sem afar léttum og
krydduðum í senn. Geta allar konur
ungar sem aldnar borið þennan ilm
og virðist hann höfða til flestra.
Stella er ein sú vinsælasta í ilm-
vatnsbransanum.
Mikið er um unga fatahönnuði á íslandi. Sóley Kaldal er í þeim hópi þó svo hún
hanni að mestu leyti bara á sjálfa sig. Hún hefur þó hannað boli fyrir verslanir og
er óhætt að segja að fötin sem hún kemst í tæri við séu afar skemmtileg.
Saumar á sjálía sig af |iví
pað er leiðinlegt aö vera
khedd eins og allir aörir
„Ég byrjaði að sauma í 10. bekk. Svona aðal-
lega til að prófa mig áfram og mamma hjálpaði
mér mikið," segir Sóley Kaldal sem er í fullu námi
í Háskólanum og rúmlega það. „Svo í mennta-
skóla fór ég að gera þetta sjálf og miklu meira,"
segir hún. Sóley segir saumaskapinn mun léttari
en fólk, oft á tíðum, heldur og segir það mjög auð-
velt að prófa sig áfram. „En það kemur alveg fyrir
að ég hendi því sem mistekst. Ætli það sé ekki í
eitt af hverjum fimm skiptum sem ég hendi eða
geymi inni í skáp í langan tíma þangað til að
ég ákveð að prófa aftur," segir Sóley.
Hagstætt fyrir fátæka námsmenn
Aðspurð um það af hverju hún byrjaði
að sauma segir Sóley það hafa í fyrsta
lagi verið af því henni datt svo oft í hug
að gera eitthvað sem ekki var til í
verslununum á íslandi. „Svo ég
ákvað að prófa bara sjálf og svo 1 ■
öðru lagi er ég fátækur námsmaður
og þetta er mjög hagstætt fyrir
mig." En ekki er þar með sagt að all-
ir námsmenn hafí jafnnæmt auga
fyrir tískunni og hún. Sóley, sem
hefur ekki lært fatahönnun og aldrei
farið á saumanámskeið, segir
grunninn hafa kornið í grunnskóla
þegar henni var kennd undirstaðan
eins og til dæmis að þræða saumavél
og að sauma á röngunni. „Hitt kom svo
bara að sjálfu sér,“ segir hún. „Ég er
mest búin að vera að sauma boli og
breyta buxum og pilsum. Svo var það
einu sinni að ég breytti buxum í kjól af
því efnið var svo flott að ég tímdi ekki að
henda því," segir hún og er alveg greini-
legt að hún hefur næmt auga.
Geri meiri kröfur til mín þegar
ég sauma á aðra
Sóley hefur meira að segja selt fötin,
sem hún hannar og saumar, í verslun
um Retro. „Ég byrjaði að selja fötin
Retro eftir að ég vann fatahönnunar-
keppni sem haldin var í Versló og það
var mjög skemmtileg reynsla að geta selt hönnun-
ina og að sjá kannski stelpur á götunum í bolum
frá mér,“ segir hún. En þeir í Retro létu hana fá
boli sem voru með áprentaðri mynd og voru
kannski of stórir og með ekkert snið og
breytti Sóley þeim í að verða pæjulegri
að eigin sögn.
„Eg klippti þá til og bætti jafnvel á
þá leðurfaldi og gerði þá eftir mínu
höfði. Þeir seldust mjög vel og var
þetta mjög skemmtilegt," segir
hún. „En ég geri miklu meiri kröf-
ur til mín þegar ég sauma fyrir
aðra og þá getur þetta orðið
ansi tímafrekt og ég var því
ekki nema í hálft ár að vinna
fyrir þá. Svo komu stúdents-
próf og þá varð ég að
hætta,“ segir Sóley og
bætir við að þessi iðja
sé svo tímafrek þar
> sem hún er í skóla og
er það af þeim sök-
um að hún hefur
ekki haldið áfram.
„Ég er meira að
sauma fyrir sjálfa mig
og vinkonur mi'nar fá
lánuð fötin hjá mér
þó þær séu kannski
ekki að biðja mig að
hanna hitt og þetta fyr-
sig. Oft sest ég niður
með eitthvað og byrja að
sauma og máta það til og
svo breyti ég því eftir hend-
inni. Endar hugmyndin oft á
að verða eitthvað allt annað
en ég ætlaði mér í byrjun,"
segir Sóley.
Gamlar flíkur breytast
„Mig langar að hafa sér-
stöðu," segir Sóley þegar hún
er spurð af hverju hún saumi
svona mikið. „Mér finnst ótrú
lega leiðinlegt að vera klædd eins og allir aðrir og
þetta er í raun bara sjálfsbjargarviðleitni og með
tímanum og æfingunni er þetta orðið miklu auð-
veldara en í fyrstu," segir Sóley og hefur hún mjög
sterka skoðun á því hvað henni finnst flott og í
hverju hún vill vera. „Svo er það líka oft ekki til
í búðunum sem mér finnst flott."
En hvar færhún hugmyndirnar?
„Alls staðar," segir Sóley. „Úr bíómynd-
um, tískublöðum og á götunni. Ef ég sé eitt-
hvað sem mér finnst flott og finnst að sé
eitthvað sem ég verði að eignast fer ég yfir-
leitt heim og sauma það bara," segir hún.
„Ég nota mjög oft gamlar flíkur af sjálfri mér,
mömmu minni og frænku. Þannig að efnis-
kostnaður er ekkert svo mikill. Oftast reyni ég
að nota gömul efni þannig að þá er
þetta ekkert svo dýrt.“
Sóley segir efnin út úr búð ekk-
■ ert svakalega ódýr og reynir því að
sleppa sem best út úr því að kaupa
sem minnst enda fátækur náms-
maður að sögn. „Svo reyni ég að
fara á kílómarkaði eins og til dæm-
is í Spútnik, Rauða krossinum og
Hjálpræðishernum og reyni að
finna efni sem ég sé möguleika í.“
Aðspurð hver gæti mögulega verið
fyrirmynd hennar tengd klæða-
burði segir Sóley það helst vera
Kate Moss sem henni finnst mjög
flott. „Ég hugsa að hún sé mikið í
svona second-hand. fötum í
bland við ýmsa hönnun. Hún lít-
ur allavega þannig út,“ segir Sól-
ey að lokum þó svo hún saumi
kannski frekar eftir sfnu höfði.
Ungogefnileg Sóley Kaldal er
afar skemmtilegur hönnuður og
mikið ihana spunnið. Hér sést hún
i kjól sem hún gerði sjálfog efnið er úr
viðkvæmu silki sem hún keypti erlendis.
í ■
4v v
f.
Hennarhönnun
Leðurermarnar eru
hennar eigin hönn-
un. Buxunum og
skyrtunni breytti hún
að sínum smekk en
hálskraginn er
keyptur.