Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Qupperneq 27
DIV Fókus FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 27 c SAMBÍém ÖLDMOUNTAÍN RENEé ZELIWECER: Besta lcikkona I aukahlutvcrkl Stórbrotin og margverðlaun- uð stórmynd með óskars- verðlaunahafanum Nicole Kidman, Golden Globe og BAFTA verðlauna- hafanum Renée Zellweger og Jude Law SÝND kl. 5.30. 8.30 og 10 B. i. 16 ára SÝND kl. 8 og 10.10 B. i. 14 ára iHUNTED MANSION kl. 6 j IlOONEY TUNES kl. 6 Með Islensku taTi | www.sambioin.is REGflBOGinn CHEAPER BY THE DOZEN SYND kl. 6 og 10 kl. 5.20, 8 Og 10.401 21 GRAMS kl. 5.30, 8 og 10.30 Bi. 16 ALLRA SlÐUSTU SÝNINGAR * Einni vinsælustu óperu allra tíma, Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart, var vel tekið á frumsýningu í íslensku óperunni á sunnudagskvöld. Önnur sýning er í kvöld og að henni lokinni, um kl. 23 býður íslenska óperan upp á stefnumót við listamenn þar sem tveir söngvarar, leikstjórinn og aðstoðarhljómsveitarstjórinn sitja fyrir svörum Að sögn Margrétar Sveinbjörnsdóttur hjá íslensku óperunni er hér haldið áfram með nýjung sem bryddað var upp á þegar Makbeð var sýnt í fyrra. Þá gafst óperugestum kostur á stefnu- móti við flytjendur og aðstandendur fyrir sýn- ingu, „I ljós kom að fjöldi gesta vildi hitta lista- mennina og ræða um sýninguna, flutning og túlk- un. Ekki fræðileg úttekt, miklu heldur óformlegt spjall um hvaðeina sem vekur forvitni og áhuga óperugesta. En við gerurn aðeins ráð fyrir stefnu- móti eftir sýninguna í kvöld.“ Bergþór Pálsson, Auður Gunnarsdóttir, Hulda Björk Garðarsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson fara með helstu hlutverk í Brúðkaupi Fígarós. Christopher Fifield er hljómsveitarstjóri, Kurt Kopecky aðstoðarleikstjóri og leikstjórinn er Ingólfur Níels Árnason. Frá því Brúðkaup Fígarós var frumsýnt í Vínar- borg 1. maf 1786 hafa menn um víðan völl leikið, sungið, blásið, blístrað og nú síðast hringt lag- línur úr Fígaró enda státar engin ópera Mozarts af jafnmörgum grípandi aríum. Og þótt hún teljist til gamanóperu 18.aldar, opera buffa, er hér ekki allt sem sýnist. Þjónn og þjónustustúlka greifahjóna ætla að giftast en kvensamur greifinn hefur meiri áhuga á þjónustustúlkunni en dapurri og lang- þreyttri eiginkonu sinni. Hún og þjónustufólkið ákveða því að leggja gildru fyrir greifann, hann verður sér til háborinnar skammar og verður að biðjast afsökunar á framferðinu. Inn í fléttast mis- skilningur, óvæntar uppljóstranir, dulargervi og feluleikir, persónur renna hver inn í aðra, hlut- verk húsbænda og hjúa riðlast, mörkin milli þeirra verða óljós. Þó skyldi enginn ætla að hér sé venjuleg gamanópera á ferð, Mozart deilir á vald- níðslu og hroka aðals og yfirstéttar gagnvart þegnum sínum. Eftir Fifield hljómsveitarstjóra er haft að Mozart bregði upp mynd af raunveru- legum manneskjum f gli'mu við ytri aðstæður og innri mann en óperan fjalli líka um réttlæti; enginn skyldi nota yfirburði stéttar og valds til að fá sínu framgengt. Mótvægi við poppið „Það var í raun eingöngu ástríðan til að skapa tónlist sem var helsti hvatinn að samstarfinu, við köfum niður til róta rokksins sem er gamli góði blúsinn," segir Franz Gunnarsson um samstarf hans og Krumma úr Mínus í hljómsveitinni Moody Company sem spilar á Jóni forseta í kvöld ásamt Lords of Metal. Þó strákarnir hafi í upphafi ekki séð Moody Company sem annað en gæluverkefni hefur frægðarsól sveit- arinnar risið hærra og hærra upp á síðkastið þar til strákarnir höfðu vart undan að svara fyrirspurnum blús- þyrstra íslendinga. „Við lögðum upp með það að markmiði að vera ekkert að auglýsa mikið og spiluðum bara einstaka sinnum á öldurhúsum bæj- arins, en síðan hafa viðtökurnar ver- ið það góðar að við önnum vart eft- irspurninni." Moody Company sem steig sín fyrstu skref í reykmettuðu andrúms- lofti fslenskrar kráarstemmningar hefur þróast og slípast í gegnum tíð- ina. Strákarnir keyra lögin áfram af miklum krafti og hafa fært skilgrein- inguna á lifandi tónlist upp á annað stig. „Út frá þessu samstarfi hefur í raun sprottið ný stefna sem byggir á mikilli einlægni, stefna sem er ágætis mótvægi við stefnu íslenska poppsins. Maður er aldrei jafn berskjaldað- ur og þegar maður stendur uppi á sviði með aðeins röddina og kassagítarinn að vopni, það er ekkert sem maður getur falið sig bak- við.“ Franz Gunnars- jon Segir Moody Company hafa skapaO nýja stefnu sem sé ágætis mót- vægi við islenska ■ I | poppið. Sigga sjoppuræningi slæst í hóp tveggja gamalkunnra persóna í Möguleikhúsinu Hattur og Fattur mættir til leiks á ný í dag kl. 17 verður glænýtt leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar frum- sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm; Hattur og Fattur og Sigga sjoppuræningi. Um 30 ár eru síðan Hattur og Fattur birtust fyrst í Sjón- varpinu en fyrir nokkrum árum komu þeir félagar fram í gervi grænna géimvera frá Úrídúx. Þegar aðstandendur Möguleikhússins komu að máli við Ólaf Hauk ákvað hann að Hattur og Fattur skyldu birtast á sviði Möguleikhússins í sinni upprunalegu mynd, „senni- lega aðkomumenn, kannski geim- verur, en ekki grænir,“ eins og hann orðar það. „Leikritið er ætlað leik- og grunn- skólabörnum og til sýningar í skólum svo lengdin er um ein kennslustund," segir Ólafur Haukur Símonarson, „og sviðsmyndin má ekki vera of flókin til ferðalaga. I þetta sinn verður Sigga sjoppu- ræningi á vegi þeirra félaga. Hún er í stuttu máli sykur- og gosfíkill, kom- in af sauðaþjófum í marga ættliði og til alls vís. Þeir Hattur og Fattur vilja auðvitað leiða hana frá villu síns vegar og um það fjallar verkið", seg- ir Ólafur Haukur sem glaður notar tækifæri til að li'flast í barnaleikrit- um, „kröfurnar eru engu minni en í verkum fyrir fullorðna en ærslin meiri.“ Tónlistin í leikritinu er að sjálfsögðu eftir Ólaf Hauk sjálfan en Jón Ólafsson útsetti. Bjarni Ingvarsson leikstýrir Pétri Eggerz, Val Frey Einarssyni og Öldu Hattur og Fattur Valur Freyr Einarsson og Pétur Eggerz„,sennileg aðkomumenn, kannski geimverur en ekki grænir". Arnardóttur í Hatti og Fatti og Siggu sjoppuræningja, Helga Rún Páls- dóttir hannaði búninga og sér um leikmynd og leikmuni ásamt Bjarna Ingvarssyni, Leikritið verður til að byrja með aðallega sýnt á stór- Reykjavíkursvæðinu en gert er ráð fyrir leikferðum út á land síðar á I JC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.