Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2004, Side 31
DV Síðast en ekki síst FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 31 Mikil óánægja er meðal rúmlega 150 íslenskra viðskiptavina ferða- skrifstofunnar Heimsferða sem fóru í vikuferð til Jamaíka í síðustu viku. Rituðu fjölmargir nafn sitt á undir- skriftalista þar sem skipulagning og framferði fararstjóra Heimsferða er harðlega gagnrýnd. Tugir ferðalanganna biðu svo tímum skipti á Leifsstöð þar sem láðst hafði að láta marga vita af seinkun sem varð á brottför frá Leifs- stöð. Átti brottför að vera níu um morguninn en þegar til kom fór tékk- nesk leiguvél Heimsferða ekki í loftið fyrr en laust eftir klukkan fjögur síð- degis. Það varð til þess að farþegar komust ekki frá borði þegar millilent var í Halifax í Kanada eins og lofað hafði verið. Þurftu ferða- langarnir að sitja tæpa tvo tíma í sætum sínum meðan eldsneyti var dælt á vélina en tékkneskir áhafnarmeð- limir sáu sér þó fært að spóka sig um á flugvellinum á meðan. Aðeins var boðið vatn, gos og bjór í vélinni en engir sterkir drykkir af- greiddir þrátt fyrir óskir þess efnis frá.mörgum farþegum. Það var því komið fram yfir miðnætti þegar fólkið komst á hótel sitt á eynni rúmum átta tímum seinna en áætlað var. Þá átti hópurinn eftir að skrá sig inn og voru þeir síðustu ekki komnir til herbergja sinna fyrr en klukkan var langt geng- in í tvö um nóttina. Nokkrir þeirra sem DV hafði tal af sögðu sínar farir ekki sléttar í samskiptum sínum við fararstjóra Heimsferða í þessari ferð. Var kvörtunum vísað á bug og virtist lítill áhugi á að koma til móts við farþega með neinu móti þótt tapast hafl hálfur dagur í þessari vikuferð. Samkvæmt skil- málum bera ferðaskrifstof- ur þó enga ábyrgð á seink- unum sem þessari. Andri Már Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, segist vita af undir- skriftalistanum en margir hafi óskað eftir því eftir heimkomuna að verða teknir af þeim: „Það var mikil ánæg- ja með þessa ferð enda gististaður- inn með eindæmum góður. Það varð seinkun á brottförinni sem okkur þykir miður. Ferðir sem þessi er skipulögð með margra mánaða fyrir- vara og því ekki hægt að skipta um vél ef seinkun verður. Að öðru leyti tókst ferðin vonum framar að flestra mati.“ Nokkrir viðmælendur DV viður- kenndu að hafa skrifað upphaflega undir undirskriftalistann en látið taka sig af honum aftur enda allt annað í ferðinni til hreinnar íyrir- myndar. Þeir sem fóru út í fylu komu flestir brosandi heim. Er það betra en fara brosandi út og koma fyldur heim... Jamaíka Margir ósáttir við margt ihópferð til paradisar. Martröð í paradís í fýlu til Jamaíka Andri Már Ing- ólfsson Seinkanir á flugi aidrei ásætt- aniegaren lítiðvið þeim að gera • í kvöld er forsýning á heimildar- myndinni um för Vesturports- krakkana til Bretlands með sýningu sína, Rómeó og Júlía, en þar slóu þau eftirminnilega í gegn. Það er Ragnar Bragason sem gerir myndi- na og heitir hún Love is in the Air. Konan hans Björgólfs yngri - ríkasta manns á Islandi - framleiðir einmitt myndi- na sem verður sýnd í Háskólabíó og víðar. Er þetta ein stærsta opnun á íslenskri heimildarmynd frá upphafl heita heimildarmynda- sumarsins. En það sem færri vita er að Islandsvin- urinn Sean Connery (sem DV sagði frá að væri hugsanlega að fara að leika í kvikmynd hér á landi á næstunni) er persóna í Love is in the Air. Hann er þarna gestur á sýningunni í fylgd tengdadóttur Islands, Dorrit hans Ólafs Ragnars. Myndin er víst pfpandi snilld, segja kunnugir. • Landbúnaðarráðherra íslensku þjóðarinnar er alltaf á milli tannan- na á fólki, enda Guðni duglegur við gefa frá sér eftirminnilegar yfirlýsingar um ágæti íslensku sauðkindarinnar og annarra dýra. Blaðinu hefur borist vísa um ráðherrann: Með kærri kveðjp til Guðna Ágústssonar Á mál eitt vil ég minna þig, ég man ekki eftir fleiru í svipinn, láttu Össur eiga sig, offraðu ekki skoti á gripinn. Guðmundur G. Halldórsson, Húsavík JL • Skíðaferð Ólafs Ragnars Grímssonar og eiginkonu hans, Dorritar Moussaieff, til Aspen á dögunum varð tilefni mikils íjölmiðlafárs, enda missti forseti vor af frægum ríkisráðsfundi fyrir vikið. Það sem færri vita er að forseta- hjónin voru ekki einu þekktu íslendingarnir í Aspen á þessum tíma. Söngdrottningin og kyntáknið Birgitta Haukdal mun einnig hafa eytt nokkrum dögum þar ásamt ást- manni sínum, Benedikt Einarssyni. Ekki er vitað hvort Birgitta borgaði fyrir sig og Benedikt, en hann er sem kunnugt er sonur Einars Sveinssonar viðskiptamógúls en víst má telja að hún hafi boðið honum að deila eins og einu RÍS- súkkulaði í glæsi- legu skíðabrekkunum... er eklci bara jómsætt heldur líka skemmtilecjt a6 gæða sér á. Þanníý er mexílcóskur matur í sínum skeljum og pönnulcöícum me6 Guacamole, sterkum piparrótum>y salsasósu ocj öllu fiinu sem qerir hennan mat svo öðruvísi oq 'enna; Vá erum sérjræciingar í aci setja saman s marcja ólíka munna - ocj elkx hara veis/ur helc/ur /íha léttari snakkpartý. ©PIÐ Viríca daqa lcl. 11 - /4 <£r (u. 17 - 22 Lauqardaqa ocj sunnudacja lc(. 16 - 22 1ÁTTU SJfÁ MG TexMex er lítiHop hlýlecjur veitincjastahur þar sem notalecjt er a6 tyí/a v <ar sem ser niður. Langholtsvegi 89 -104 Reykjavík • Sími 588 7999 ■ texmex@texmex.is MBA markaðsráðgjöf / Betr! Stofan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.