Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1958, Side 4
34
TlMARIT VFl 1958
leiðbeininga í framleiðsiu sinni. Aðrir aðilar spara
sér slíkan kostnað, og má það teljast til undra-
verðrar skammsýni.
2.1. Merkastar rannsókna í þessum flokki eru efalítið
eigin rannsóknir, sem gerðar voru með aðstoð
verkfræðings Steypustöðvarinnar h.f., Stefáns
Ólafssonar, og lýst er í fylgiriti II með þessari
skýrslu.
3. 1. Á árinu eignaðist rannsóknarstofan 30 stk. af 15
sm og 10 stk. af 10 sm Thaulow mótum tii þess
að steypa í sívalninga, og voru þessi mót mikið not-
uð á árinu. Það kom strax í ljós, að sýnishornum,
sem steypt voru samtímis, bar miklu betur saman,
ef sýnishornin voru Thaulow sívalningar, en ef þau
voru steypt skv. fyrri venju í 10 sm trémót. Nauð-
synlegt væri þó að gera samanburð á styrkleika-
hlutföllum hinna mismunandi sýnishorna, en upp-
lýsingar um þau eru mjög á reiki, og mun það
aðallega stafa af mismunandi gerð af mótum.
5.1. Ekkert af þeim níu sýnishornum, sem prófuð
voru, stóðst norrænar eða ASTM staðalkröfur.
Gefur það auga leið um það, að skemmdir af völd-
um veðrunar og meðferð þessara vörutegunda
verða meiri en vænta mætti, ef vörurnar uppfylltu
staðalkröfur. Ætti þetta að vera bæjarfélögum
hér áhyggjuefni, því að venjulega er verð þessara
vara aðeins lítið brot af þeim kostnaði, sem er
tengdur notkun þeirra. Um framleiðslu og sölu-
réttindi á slikum vörum ættu að vera mjög ströng
ákvæði í byggingarsamþykktum, er greindu frá
lágmarksgæðum þessara vara, og strangt eftirlit
haft með því að lágmarksgæðum væri fullnægt.
7.1. Nauðsynlegt er að stofnað verði hið bráðasta til
víðtækra rannsókna á þessu sviði. Ástand það,
sem þjóðvegir í landinu og götur í bæjum eru
nú í, er ekki viðunanlegt og samræmist ekki kröf-
um tímans um gæði umferðaræða. Auk þess er
viðhald þeirra mjög dýrt.
Á síðustu árum hefur sú venja ríkt hér í gatna-
málum, að þegar holklaka leysir á vorin, er keppzt
við að keyra ofaníburð (oft án hliðsjónar af korna-
skiptingu) ofan í göturnar og umferðin látin
þjappa efninu, þannig að það fær nokkra festu
í götunum, meðan jarðraki er hæfilegur, og verða
þessir vegir þá oft góðir yfirferðar um stund. 1
rigningartíð verða vegirnir oft að torfærum, og
ef þurrkar herja, rykast ofaníburðurinn svo upp,
að akstur er ekki greiðfær, sökum myrkurs, þótt
um sólstöður sé. Kostnaður við ofaníburðinn nem-
ur milljónatugum árlega, og má hann teljast til
illrar nauðsynjar.
Á hinum Norðurlöndunum er nú talið eðlilegt,
að lögð séu varanleg slitlög á götur, ef umferð
um þær er meiri en 300 bifreiðir á dag. 1 Reykja-
vík og nágrenni hennar eru hins vegar margar
umferðaræðar með þrefalt meiri umferð, sem ár-
lega ryka upp 10—15 sm af ofaníburði.
Það er einkenni á íslenzkum ofaníburði, að hann
skortir mélufyllingu og leirbindingu. Méluskort-
urinn stafar fyrst og fremst af því, að mélan rýk-
ur burtu vegna umferðarinnar, en leirinn skortir
sökum þess, hversu veðrunartími setmyndananna
hefur verið stuttur. Venjulega eru þessi ofaníburð-
arefni því þannig samsett, að nauðsynlegt er að
blanda I þau sérstökum leirsetum, ef ekki á að
festa þau með asfalti eða öðrum bindiefnum.
7.2. Rannsóknum á ofaníburðarnámum, sem fram-
kvæmdar voru fyrir vegamálastjóra var ekki lokið
á árinu. Til rannsóknanna var ráðinn Sverrir
Scheving Thorsteinsson, fil.cand., og stundaði hann
eingöngu sýnishornatöku og mælingar á gryfjun-
um svo lengi sem veður leyfðu, en síðan rann-
sóknir á þessum sýnishornum. Sérstök skýrsla *
mun verða skrifuð um þessar rannsóknir.
7.3. Sjöunda þing norræna vegtæknisambandsins var
haldið I Kaupmannahöfn dagana 17.—23. júní. Á-
kveðið var, að undirritaður mætti á þessu þingi,
sem fulltrúi fyrir rannsóknastofnunina, og var
þátttaka hans tilkynnt I apríllok. Af þessu gat
þó ekki orðið, sökum þess, að Atvinnumálaráðu-
neytið hafnaði I júníbyrjun tillögum Rannsókna-
ráðs þar að lútandi. Undirritaður ákvað þó að
sækja þetta mót og kostaði sig til þess sjálfur.
Hér skal ekki fjölyrt um tilgang og árangur af
slíkum mótum, en nauðsynlegt er að héðan verði
alltaf einhverjir fulltrúar mættir á þessum þing-
um, því þau rekja jafnan helztu framfarir og
nýjungar I vegtæknimálum á þeim fjórum árum,
sem líða milli þinga.
I fylgiriti II með skýrslunni, — Um olíubindingu
á slitlögum, — er I stuttu máli sagt frá einu af
þeim málum, sem fyrir þinginu lágu.
10.1. Nokkur undirbúningur var hafinn að væntanleg-
um pozzolanrannsóknum. Fékkst I því augnamiði
heimild til þess að kaupa þrýstiketil fyrir rann-
sóknastofuna, en hann má teljast nauðsynlegur V
við flestar rannsóknir I sambandi við áhrif pozzo-
lanefna á steinsteypu.
Samráð var haft við raforkumálastjóra, og síð-
an safnað sýnishornum af móbergi og öðrum lík-
legum pozzolanefnum frá þeim svæðum, þar sem
líkur eru til að næstu stórvirkjanir verði gerðar.
Alls var safnað 15 mismunandi sýnishornum af
þessum svæðum og úr móbergsfellunum I ná-
grenni Reykjavíkur.
Þá var Hörður Jónsson yngri, efnaverkfræð-
ingur, ráðinn til þess að vinna að efnagreining-
um á sýnishornunum, og hóf hann störf I nóv-
embermánuði.
Tómas Tryggvason, jarðfræðingur deildarinnar,
réði vali sýnishornanna, og hefur hann einnig t.ek-
ið að sér smásjárgreiningar á þeim.
Rannsóknir á pozzolaneiginleikum ýmissa berg-
tegunda getur haft mikið hagrænt gildi fyrir hvers
konar mannvirkjagerð á landinu. Sérstök greinar-
gerð fyrir því fylgdi ársskýrslu rannsóknastof-
unnar fyrir árið 1955.
10.2. 1 októbermánuði (17.—31.) var hér á ferð dansk-
ur verkfræðingur á vegum Sameinuðu þjóðanna )
og ræddi byggingamál. Þótti þá tilhlýðilegt, að
undirritaður væri þátttakandi I þeim umræðum.
Einnig þótti rétt, að hann tæki þátt I kynningar-
för til Norðurlanda, er var farin dagana 9. nóv.
til 3. des., til þess að kynna sér skipulagsmál og
nýjungar I byggingariðnaði þar: íhuganir um
nokkur viðhorf I byggingariðnaði þessara þjóða
og samanburður við nokkrar islenzkar byggingar- i
venjur eru settar fram í fylgiriti IV.
J