Akranes - 01.10.1947, Page 2
Til fróðleiks og skemmtunar
í Ijóðum og lausu máli
Mikil grefa.
Við ber það, að hinir yngri stiórnmálamenn
þykji ekki allskostar vel að sér í stjórnmálasögunni.
Svo mun hafa verið um alþingismanninn, sem
komst svo að orði í hátiðaræðu einni: Mikil gæfa
var það fyrir Jón Sigurðsson, að vera fæddur 17.
júní, sama dag og lýðveldið var stoínað.
„Vont fyrir Jóa bróðir.“
Þorsteinn Kjarval að Kjarvalsstöðum við Skut-
ulsfjörð var eitt sinn að skoða málverk eftir Jó-
hannes bróðir sinn. Þorsteinn skoðaði málverkið
vandlega, og lét vel yfir, en mælti síðan með
áhyggju mikilli: „Já, Jói bróðir hefir alltaf sagt
að ég ætti að mála.“
„En þvi gerðirðu það ekki,“ sagði einn við-
staddur.
„Það gæti orðið vont fyrir Jóa bróðir," svaraði
Þorsteinn.
Mannsœvin.
Barndómurinn líður fram í leikaraskapnum.
æskan i hégómanum.
karlmannsaldurinn í erfiðinu.
Ellin hnigur aftur til hins fyrra.
Söngvarar í himnakórnum.
Margur söng af mjúkri list
meistari frónska ljóða,
en sumir vildu sízt hafa misst
„Sigurð Breiðfjörð góða.“
Þung var raun er Þorsteinn fór,
þá sat vættur grátin,
en íslands sorg var allteins stór
eftir Sigurð látinn.
Ætla ég Grim i englakór
öðrum syngja fegur,
sú er röddin svæðisstór,
söngurinn dásamlegur.
Mun á himnum mikil dýrð
og margur tónninn fagur,
en syngi ei þessir, þá er hún rýrð,
þá verður langur dagur.
Ef ég heyri þessa þrjá,
þykir mér litlu að kviða,
eilifð veit ég vist að þá
verður fljót að liða.
X+Y
Saga Niðarósdómkirkiu
í stórum dráttum.
Árið 995 kom Ólafur Tryggvason heim frá Eng-
landi og gerði tilkall til rikis í Noregi,
eftir að hann hafði í mörg ár farið i
viking til margra Evrópulanda. Hann
lagði grundvöll að bænum Niðarós við
mynni Niðarár, reisti konungsbústað og
kirkju, sem þó eyðilagðist eftir dauða
hans.
Árið 1000 Ólafur Tryggvason féll i Svoldarorustu.
Árið 1030 Eftirmaður Ólafs Tryggvasonar, Ólafur
Haraldsson, sem siðar var kallaður Ól-
afur helgi, féll i orustunni á Stiklastöð-
um og var grafinn i sandmelnum, þar
sem dómkirkjan var síðar reist. Vegna
fómardauða sins fyrir kristina trú varð
hann þekktur víða um lönd, og nafn
hans var alltaf tengt við Niðarósdóm-
kirkju.
Árið 1031 Vegna þeirra kraftaverka, sem gerðust
við gröf hans, lýsti Grímkell biskup þvi
yfir, að hann væri dýrðlingur og pislar-
vottur, og var líkið látið inn í Klemens-
arkirkju i dýrindis skrin yfir háaltarið.
Árið 1035 Höfðingjamir gáfu Magnúsi, syni Ólafs
konungsnafn. Uppsprettulind kom fram
á þeim stað, þar sem lík Ólafs hafði
legið fyrsta veturinn, og héma var
seinna reist lítil kapella, sem hægt er
að skoða sem upphaf þeirra dómkirkju,
sem við sjáum í dag.
Árið íogo Fyrstu Ólafskirkju í Noregi fullgerði
Haraldur harðráði, hálfbróðir Ólafs
lielga. Kirkjan stóð, þar sem hið gamla
ráðhús bæjarins stendur, og eru ennþá
nokkrar minjar eftir af henni. Hún
brann árið 1531. Haraldur harðráði
reisti einnig steinkirkju, eldri Maríu-
kirkjunni, hjá nýja konungsbústaðnum
og flutti áreiðanlega skrin dýrðlingsins
þangað. Eftir þetta komst góður skriður
á Ólafsdýrkunina, og pílagrímar komu
frá Noregi og mörgum löndum Evrópu
til „Ólafsmessu" eða „Ólafsvöku," sem
haldin var daginn fyrir fall Ólafs helga
á Stiklastöðum, 29. júlí, 1030.
Árið 1066 Haraldur harðráði féll við Stanfords-
brú i Englandi. Eftirmaður hans var
sonur hans, Ólafur Haraldsson yngri,
sem seinna var kallaður Ólafur kyrri.
Hann reisti á sama stað kirkju úr steini,
þar sem kapellan stóð upprunalega, og
er hún hinn raunverulegi grundvöllur
núverandi kirkju. Þangað var Ólafs-
skrínið flutt og stóð hér i um það bil
500 ár.
Áriðng2 Páfinn sendi kardinála sinn til Niðar-
óss, Nikulás Breakspeare frá Englandi.
Seinna varð hann páfi (Hadrian IV.).
Kirkjan varð nú erkibiskupsstóll með
sinn eigin erkibiskup. Kirkja Ólafs kyrra
varð of lítil fyrir hina auknu kirkjusiði,
og það varð að stækka hana. Stækkun-
ina framkvæmdi Jón Birgisson eftir
fyrirmynd þverskips og miðskips í
rómönskum kirkjum.
Áriðn83 Eysteinn Erlendsson hélt áfram verki
Jóns. Hann reisti nýjan kór ásamt hlið-
arskipi og hákór með kapellum. Ólafs-
brunnur, þar sem sennilega er hin upp-
runalega Ólafslind, var byggður inn i
byggingunni.
Árið 1231 Sigurður Indriðason tók niður rómönsku
—g2 kirkjuskipin, sem þeir Jón og Eysteinn
höfðu komið upp og reisti i staðinn liið
Árið 1248 nýja gotneska skip með vesturgaflinum.
Árið 1300 Kirkjan var fullgerð að innan með öllu
sínu skrauti. Það er efamál, hvort nokk-
urn tíma hefur verið lokið við turnana.
Árið 1328 Fyrsti bruni kirkjunnar.
Árið 1432 Annar bruni kirkjunnar.
Árið 1331 Þriðji bruni kirkjunnar.
Árið 1^37 Öllum gripum kirkjunnar var rænt.
Silfurskrín Ólafs helga var flutt til
Danmerkur en jarðneskar leifar dýrð-
lingsins voru eftir í miðskríninu, sem
framvegis stóð á háaltarinu.
Árið 1364 Sviar tóku Niðarós og fluttu Ólafsskrin-
ið til Floan í Skatsval. Sama ór var það
flutt til baka, þegar Svíarnir höfðu verið
hraktir úr landi.
Árið ig68 Gröf Ólafs konungs var að nýju fylll
með mold, og enginn getur í dag bent
á staðinn, þar sem bein hans hvíla.
Árið 1689 Spira aðaltumsins fauk niður í ofviðri
og eyðilagði í fallinu aðra hluta kirkj-
unnar.
Árið 1708 Fjórði bruni kirkjunnar.
Árið 1750 Fimmti bruni kirkjunnar (af eldingu).
Árið 17^0 Um það bil hafði kirkjan fengið það
útlit, sem sýnt er á annari mynd.
Árið 1869 Endurreisnarstarfið hóf Shirmer bygg-
ingameistari með endurbótum á skrúð-
húsinu eða Maríu kapellunni.
Árið 1872 Chr. Christie byggingameistari var skip-
aður stjórnandi verksins. Hann er aðal-
maður endurreisnarstarfsins, og því
stjómaði hann til dauðadags 1906.
Árið 1906—9 N. Ryjord hafði bráðabyrgðaforystu.
Árið 1906 Próf. O. Nordhagen byggingameistari
stjómaði verkinu til dauðadags 1906.
Árið 192^ Byggingameistararnir Tverdahl og Al-
—30 bertssen höfðu forystu til bráðabyrgða.
Árið 1930 Helge Thiis var skipaður stjórnandi
verksins.
1 Niðarósdómkirkju er mikið af áletr-
uðum legsteinum frá ýmsum timum og
alls konar rúnaristum. Eru jafnvel enn
að finnast slikir steinar í veggjum og
afhýsum hins mikla húss.
Hér fylgir mynd af einum slíkum
steini. Á hann er þetta rist: „Guð og
hinn heilagi Ólafur konungur hjálpi
þeim manni, er þessar rúnir risti, með
sinu heilaga órnaðarorði."
AKRANES
1 ÍO