Akranes - 01.10.1947, Qupperneq 7

Akranes - 01.10.1947, Qupperneq 7
NOKKUR ORB UM MALARALIST Hver sá maður, er gluggað hefur í sagn- rit, hlýtur þegar í stað á kaflaskiptingu ritsins að hafa séð, að sagnritarar lýsa allt- af framrás atburðanna svo sem þeir legð- ust í greinilega afmörkuð lög, hvert ofan á annað og hvert með sínum eigin blæ, ólík- um blæ alla hinna atburðalaganna. Það mætti því um skiptingu líkja sagnritum við myndunarfræði jarðarinnar, hina svo- nefndu geogonie, en þar skilur feigan og ófeigan, að myndunarfræði jarðarinnar segir alveg satt og nákvæmlega frá öðru, en um atburðalögin, sem ég vil kalla svo, er allt öðru máli að gegna. Þar eru lögin síður en svo aðskild skarplega, því þau renna eins ógreinilega og lítið afmarkað hvert yfir i annað eins og regnbogalit- irnir, sem vel má greina hvern frá öðrum, en engin leið er að segja, hvar mætast. Ef menn athuga sig er auðskilið, að þetta sé í raun og veru svona. Ég vil sýna þetta með dæmi. Ég er núna gg ára, og er því farið að halla undan fæti, sem kallað er, fyrir mér, og allar likur eru því, að ég hafi þegar lokið megninu af því, sem mér var ætlað að vinna. Til samanburðar skul- um við taka mann, sem fæddur er 1920, þegar ég var 32 ára gamall og þvi löngu orðinn fulltíða maður og farinn að inna af hendi þau störf, sem mér var ætlað að afkasta. Hinn maðurinn er nú 27 ára, og því til þess að gera nýkominn að æfistarfi sínu. Við lifum samtíða og samhliða, en ég stend föstum fótum í tíma, sem er liðinn, þegar hann kemur til skjalanna, og sá tími hefur eðlilega markað mig, en alls ekki hann. Þó mun hann vafalaust eitthvað, meira eða minna, smitast af þessum liðna tíma, þó mest óafvitandi, vegna samvistanna við mig og mína jafn- aldra. Á þennan hátt verða mótin milli tíma hans og okkar nokkuð óglögg og þokukennd. Nú haldast samvistir hans við okkur, ef allt fer með felldu, ekki nema tiltölulega lítinn part af ævi hans. Við hverfum þá úr sögunni, og það er kominn nýr tími, sem ég og mínir jafnaldrar ekki kynnumst eða höfum nein bein áhrif á, en hann og hans jafnaldrar munu hins vegar lenda í sömu afstöðu við þann tima eins og við vorum við tíma hans, og hann mun ekki aðeins smita hann, meira eða minna með hugsunum síns tíma, heldur jafnframt líka með að vísu mjög útþynnt- um leyfum af þeim áhrifum, sem hann varð fyrir af minni tíð. Með þessum hætti verða mótin ærið óglögg milli þessa þriðja tíma, sem ég og jafnaldrar mínir, aldrei munum hafa nein kynni af, og tíma minna jafnaldra, sem þessi þriðji timi aldrei mun kynnast, nema annaðhvort óafvitandi fyrir ósjálfráð áhrif, eða óbeinlinis af til- raunum, sem síðari tímar gjöra til að kynna sjálfum sér fyrri daga, tilraunum, er við kölluum sagnaritun, tilraunum, sem kalla mætti exogenar, — utanfrá verkandi — af þvi að þar er verið að vinna út frá skilningi og hugsanahring þeirra tíðar inn í skilning og hugsanahring, sem löngu er horfinn. Það gefur því að skilja, að niðurstaðan af slíkum tilraunum hlýtur alltaf að vera mjög hæpin. En nú mætti spyrja, því skipta sagnritarar atburðarrás- inni. sem líður áfram með óglöggum tíma- mótum,í svona skarplega aðgreind tímabil. Eins og áheyrendur mínir hafa heyrt, er fortiðin alltaf um stund með annan fótinn inni í nútíðinni og svo koll af. kolli, en auðvitað fækkar útvörðum fortíðarinnar í nútíðinni eftir réttum dánarhlutföllum hagfræðinnar, og það er því alltaf viss aldursflokkur manna, sem lun skoðanir og skilning í heild sinni eru mjög samstæðir og samtaka, er á hverju augnabliki að fjölda til verður yfirgnæfandi, og á hans skilningi og hugsunum ber þá lang mest. hvellurinn, símskeyti frá kirkjumálaráðu- neytinu: Forsætisráðherrann (þ. e. Quis- ling) hafði vikið dómprófasti frá embætti, samkvæmt reglugerð hins þýzka ríkis- stjóra frá 4/10 1940 § 1. — 1 stað hans skyldi koma Einar Lothe prestur í Vester- alen. Hann kom skömmu síðar. Fjellbu kveðst hafa spurt hann, hvort honum fyndist ekki andstyggilegt að taka embætt- ið frá gömlum vini. Lothe var brugðið, jataði með tárin í augunum, að hann hefði reynt að komast hjá þessu, en væri knú- inn til þess af flokknum. Annars kvaðst A K R A N E S hann ekki óttast Þjóðverja, heldur aðeins Rússa. — Einar Lothe og Arne Fjellbu sáust ekki aftur fyrr en Fjellbu tók að nýju við embætti við dómkirkjuna. Þá sat Lothe i fangelsi. Messan í Niðarósi hafði áhrif út um allan Noreg og víðar um heiminn. Eins og Niðarósdómkirkja er Norðmönnum heilagt tókn hinnar þjóðlegu kristni, varð þessi atburður að tákni þess, hvernig kristin þjóð lætur ekki bugast, er barist er um hin æðstu verðmæti, er gera hana að hvoru tveggju: söfnuði og þjóð. Ef ætti nú í heildaryfirlitum að fara að greina frá öllum hugsana- og skilningsaf- brigðum, sem hver tími ætti, hvað lítið, sem þau gætu gert sig gildandi, þá mundi frásögnin verða svo höttótt og óljós, að aðrir en fræðimenn mundu eiga erfitt með að átta sig á því. Þar er ástæðan komin, og þó hún sé réttmæt, breytir það engu þar um, að slíkir frásagnarhættir eru í rauninni stórvillandi. Um þetta atriði hefi ég orðið svona langorður, vegna þess, að þó að við frásagnarhátt þennan megi í heild sinni hlýta, unz mönnum hugkvæm- ast aðrir betri, þá er því ekki að neita, að hann bitnar öðrum fremur illa á þeirri grein sagnfræðinnnar, sem er kölluð lista- saga. Einmitt þar á þessi lagskipting engan veginn við, og það er vegna þess, að heim- ildirnar að listasögunni, listaverkin sjálf, liggja í mótsetningu við heimildir annarra greina sagnfræðinnar, sem faldar eru í óaðgengilegum skjölum, opnar fyrir aug- um allra í listasöfnum heimsins og sýna athugulum skoðanda það auðveldlega, að þar eru hin skorðuðu tímamót — eða stíl- mót, sem betra er að nefna það, alls ekki til. Stílarnir renna í senn hver inn í annan og smágreiðast hver úr öðrum, svo að i rauninni er, jafnvel þótt aldir séu hafðar undir, ómögulegt að finna nein fast skorð- uð mót, enda þótt mismunur sé greini- legur. Og alveg fram undir svo til allra síðustu tima ber myndlistin, hvort sem er málaralist eða myndhöggvaralist, mót allra undangenginna tíma. Áður en ég fer lengra, eru nokkrar spurningar, sem ég vildi drepa á og reyna að svara, að svo miklu leyti sem hægt er. Fyrst af öllu er spurningin, sem marg sinnis hefur verið sett fram. en aldrei hefur tekist að fá skynsamlegt svar við, og mun ekki takast, meðan þekkingin á sálarlífi manna er ekki staðbetri en hún er. Það er spurningin: Hvað er list? Því verður ekki svarað nær réttu en á eina leið, að hún séu þau verk mannanna, sem vekja einhverjar eftirsóknarverðar tilfinn- ingar, hvort sem þær eru þægilegar eða óþægilegar, t. d. mynd eða kvæði, sem vekur þægilegar endurminningar eða gleði á annan hátt eða vekur sárar endur- minningar eða kenndir, er þrátt fyrir sár- indin verka göfgandi á hugarfar manna. En menn vita, að listin er sköpuð spontant, sem svo er kallað, það er að segja ósjálf- rátt, meðal annars af því, að sami maður getur i eitt skipti skapað list, en i annað ekki, þó að hann hafi sig allan við. Við vitum og það, að viss tæknileg atriði, sem hægt er að læra, skipta miklu máli fyrir listina með því að létta undir að hún geti orðið til, svo sem í skáldskap, rím og í myndlist notkun gullnasniðsins. Við vitum það og enn, að tæknikunnátta almennt léttir undir myndlistina, en að myndlist er ekki hægt að skapa með henni einni. 115

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.