Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 12

Akranes - 01.10.1947, Blaðsíða 12
sem byggir þetta land, var í nánasta sam- ræmi við það sem ég hefi hér sagt um mál- efni kirkjunnar. Átakanlegt var að sjá hina geigvænlegu eyðileggingu styrjaldar- innar. Mikill hluti Rotterdamborgar i rúst- um —og viða mátti líta merki nazismans, svo sem í Arnheim og Nejmegen að ó- gleymdum kirkjugarðinum við Arnheim, þar sem hvíla 2.700 æskumenn Englands, fallhlífarhersveitirnar, sem féllu fyrir kúl- um Þjóðverja. Þessi helgireitur er um- girtur skógi — eggslétt grund, vafið rós runn. Styrjöldin — þessi dökki blettur ein- ræðisins verður seint afmáður, er og verð- ur skuggi allra alda. Boðar að einræði verði að liða undir lok — víkja fyrir frið, frelsi og réttlæti. Ferð og dvöl í Hollandi er lokið — en minningin um land og þjóð skal í hug mínum geymd. Heima í Reykjavík. Um miðjan september var ég staddur í Reykjavík. Ég hafði ekki um árabil komið í „kirkjuna mína“ — og þótt ég væri i góðra vina hópi, kvaddi ég og fór — í kirkju vildi ég. Um þriggja ára skeið hafði ég fyrir tveim tugum ára sótt guðsþjón- ustur í fríkirkjunni — ég þurfti því að hlýða á prestinn minn, séra Árna Sigurðs- son, enda var hann sá, sem ég hlustaði oftast á eftir lát föður míns sál., séra Odd- geirs Guðmundsen, sem 35 ár var prestur í Eyjum (alls vantaði hann hálft ár til að vera 50 ára þjónandi prestur). Mér brá við að sjá hve fáir voru kirkjugestir — og datt í hug áætlun mín gjörð í Hollandi um kirkjusókn í höfuðstað Islands. Ég hafði verið of bjartsýnn, því allar líkur voru fyrir hendi að vart væri aðsókn meiri í öðrum kirkjum borgarinnar. Ég varð ekki vonsvikinn í þessari kirkjugöngu, frekar en í hinum fyrri — enda var ræðuefnið sem meðferð þess — sönn svalalind hverri særðri og saknandi sál. Þegar ég kom út úr kirkjunni, fór ég að bera saman kirkju- rækni Hollendinga — og hér og varð að orði: hér á við samlíkingin: dagur og nótt. Hvaða ráð eru líkleg til að laða fólkið að kirkjum landsins? Án efa mundi fjöl- breyttari meðferð á sálmasöngnum hafa áhrif. Til dæmis ef nokkur viðeigandi hljóðfæri væru notuð með orgeli og kór- söng — prýða mjög og fegra guðsþjón- ustuna. I höfuðstað landsins væri hægt að „hefja þessa sókn“ með sjálfboðaliðum. Venjuleg messa tekur vart meir en rúm- lega 114 klukkustund. Það væri því ekki óhugsanlegt að þeir, sem unna hljómlist, sem allir gjöra, sem hana hafa numið, yrði slíkt starf — hljóðfæraleikur við guðsþjónustur, hvort tveggja í senn: yndis- auki og metnaður. Tækist þessi tilraun vel í höfuðstaðnum — kæmu hinir minni bæir landsins einnig með. Þjóðkirkjan á tvo áhugasama forystumenn í söngmálum, þá dr. Pál Isólfsson og Sigurð Birkis. Gef ég nú þessum heiðursmönnum hugmynd- ina í jólagjöf — og fái hún að festa rætur í hug þeirra og hjarta, er hugmyndinni sigurinn vís. Þá mætti svo fara að kirkju- orkesterkórið hljómaði i öllum stærri bæj- um landsins jólin 1948. Áhrif jólanna. 1 nærfellt 20 aldir hafa kristnar þjóðir um gjörvallan heim fagnað jólum — en þar sem nú mun vera dimmt í margra hug og hýbýli sakir ógróinna sára styrj- aldarinnar, skorts og neyða, munu jólin nú sem fyrr verða hrjáðum þjóðum og einstaklingum gleði og huggunarlynd -—• sannkölluð innri jól. — Og þegar kirkju- klukkurnar að þessu sinni boða komu jól- anna munu þau bæra margan viðkvæman streng. Vér hér norður á Islandi minnumst þess er vér á öldum ljósvakans heyrðum kirkjuklukkur hins helga lands hringja inn heilög jól. — öllum sem heyrðu, mun það minnisstætt — og ógleymanlegir ómar — en ríkast mun oss öllum i minni hljómurinn frá bernsku kirkjunni okkar, hvort sem var í bæ eða byggð. Enn á ný heyrum við þennan boðskap klukknanna: Hin dýrðlega hátið ljóssins er upprunnin: Hvert fátækt hreysi höll nú er, þvi Guð er sjálfur gestur hér. Og nú og ævinlega verður hin fagra saga um fjárhirðana, sem vöktu yfir hjörð sinni — er birta Drottins ljómaði í kring — svo þeir urðu hræddir — ný á liverjum jólum og gagntekur hugi vora. 1 trúnni heyrum vér lofsöng hinna himnesku hersveita sem lofsungu Guð í upphæðum og boðuðu fjárhirðunum að þeir þyrftu ekki að óttast: Mannkyninu var frelsari fæddur. Við, sem erum svo gæfusöm alla ævi að vera börn á jólum, hvað sem ævi- árin eru mörg — og veita jólunum hjartarúm; þurfum ekki að óttast — frek- ar en fjárhirðamir fyrir 1947 ámm. En það mun enn á þessum jólum skorta rúm í gistihúsinu fyrir konung konunganna — og honum mun víða úthýst, ef dæma má eftir ástandi því, sem nú ríkir í heiminum. Hver þjóð um lög og láð, 0, lofið drottins náð; Þér glöðu hraustu háu. Þér hreldu, veiku, lágu, Þér öldnu með þeim ungu, upp. upp með lof á tungu. Svo hvað skáldjöfurinn Matthías Jöch. — og þetta vers gildir enn, og um allar aldir, og á við þessi jól, — sem em svo fjarlæg frið á jörð. Við umhverfi jötunnar í Betlehem virðist nú alda ófriður og vopnagnýs ber hvað hæst. Ljóminn af stjörnuni er horfinn fólkinu sem byggir þetta helga land. Væri vel — ef þessi þjóð og aðrar vildu sameinast á þessrnn jólum í eitt lofgjarðar friðarins kór: Velkomin vertu villtri mannahjörð, Síblessuð sértu, sólin lífs á jörð. Guðdóms geisla þína götu mannkyns á, láttu skært skína skelfing bægðu frá. Nú heyrum við í bæ og byggð á Islandi boðskap jólanna — og hinn fagra sálm, hin dýrmætu orð: I dag er glatt i döprum hjörtum, því Drottins ljóma jól .... Hið mikla og ljúfa sálmaskáld, Vald. Briem flytur í þessum sálmi djúpa lífs- speki. Skáldið er hér á ferð með huggun og smyrsl í sárin, sem ekki eru gróin. En eins og jólin geta gjört hin liörðustu hjörtu viðkvæm og næm — því opnari verða undir þeirra sem sakna og þrá, þá líða fyrir sálarsjónir minningar um horfinn ástvin, sem vælir marga brá Þeim, sem þannig er ástatt fyrir lesi orð skáldsins, Valdemars V. Snæværr: . . . . Þú lætur efnisþokur þynnast, svo það sé hægara elskendum að finnast og jafnvel heljar húmið svart. Þín heilög ástúð gjörir bjart. Mun ekki bæði glöðum og hryggum, á jólum, hvarfla hugur til hinna dýrðlegu stjörnu, sem ljómaði í austri. Ég held það sé meðfætt öllum þenkjandi mönnum. Við sjáum hana ekki, en ef við lítum upp í fjölstrindan heiðan himininn, sjáum vér fegurstu sjón sem dauðlegt auga fær litið. Hina miklu mergð glitrandi himinhnatta og fljúgandi norðurljós, sem enn í dag fá ljós og fegurð frá stjörnunni björtu. Sagan um litla drenginn á hér við: Það var í ágústlok í heiðskíru og tæru sumarkvöldi. Litli drengurinn, sem var úti i kvöldfegurðinni, hleypur inn í bæ til mömmu , og segir: Mamma komdu út og sjáðu, Guð er búinn að kveikja á svo mörg- um kertum. Það var fyrsta sumarkvöldið að litli hnokkinn sá stjörnur. Það var snemma byrjað á að hlakka til jólanna í þá daga, og litli drengurinn spurði mömmu sína oft hvert Guð kveikti ekki á langtum fleiri kertum á jólunum. Jú svaraði mamma — drengurinn gætti vel að „kertunum“ þegar leið að jólum. Hann varð ekki vonsvikinn. Nú mun hann taka undir jólasönginn: Á himni næturljósin ljóma svo ljúft og stilt og rótt og unaðsraddir engla hljóma þar uppi um helga nótt. . . . Litli drengurinn, sem í bernsku sýndi móður sinni „kertaljósin“ hjá Guði, hefur nú slitið barnsskónum. Lítur til baka og ályktar: Það er of mikið af myrkri í þess- um heimi. — Of lítið af jólafrið og ljósi. Gleðileg jól! Ósk mín nær og til vina í Hollandi, og hinnar trúræknu þjóðar þess lands. Óskandi öllum árs og friðar. 120 AKRANE S

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.