Akranes - 01.10.1947, Síða 20

Akranes - 01.10.1947, Síða 20
Því er þá nefnilega haldið fram oft, og af ýmsum, að Sogsvirkjunin gæti fullnægt öllu suður— og suðvestur—landi. Af þessu tilefni fara t. d. fram ýmsar mælingar og athuganir á því, hvort ekki sé hagkvæmt að leiða rafmagn þaðan um Kjalarnes vest- ur yfir Hvalfjörð. Um virkjun Andakílsár voru enn gerðar áætlanir 1939, en þær urðu fljótt úreltar, vegna stríðshækkunar á efni, og ýmsum erfiðleikum í sambandi við stríðið. Árið 1941, fær hreppsnefnd Ytri-Akra- nesshrepps, Árna Pálsson verkfræðing til þess að gera um það lauslegar athuganir, hvort hægt mundi, eða hyggilegt fyrir Akranes, að virkja Laxá í Leirársveit. Þessar athuganir leiddu í ljós, að aðstaða þarna væri ekki nógu æskileg, og samsvar- aði ekki þörfum okkar til frambúðar. Þegar hér var komið, var þörfin orðin rík fyrir aukið rafmagn. Menn urðu stór- tækari um framkvæmdir vegna aukinnar fjárveltu. Allt þetta varð til þess að Borg- firðingar vildu helzt byggja út af fyrir sig og búa einir að sínu. Var þvi meira en nokkru sinni fyrr hallast að virkjun Anda- kílsár og allir sammála um að hefjast handa sem allra fyrst. Fyrir tilmæli hreppsnefndar Ytri-Akra- nesshrepps hélt því raforkumálanefnd héraðsins fund um málið í desember 1941. Var þar samþykkt að leita tilboða i virkj- unina. Fjrrst var hallast að 2400 hestafla virkjun, þó ýmsir teldu það alltaf lítið, ef af stað væri farið á annað borð. Síðan slitnar þráðurinn aldrei. I nóvember 1942 er svo stofnað sameignarfélag um virkjun- armálið. Var stofnfundurinn haldinn í Barnaskólanum á Akranesi, og sátu hann sýslunefndir Mýra- og Borgarfjarðar- sýslna og bæjarstjórn Akranesskaupstað- ar. f stjórn félagsins voru kjörnir þessir menn: Haraldur Böðvarsson, formaður, Jón Steingrímsson, sýslumaður, ritari, (en þessum tveim mönnum var aðallega falin framkvæmdarstjórn, ásamt Árna Pálssyni verkfræðingi, sem var ráðunautur félags- ins um ýmsar framkvæmdir). Arnljótur Guðmundsson, fyrrv. bæjarstjóri, Svein- björn Oddsson, Sigurður Sigurðsson, Lambhaga, Sverrir Gíslason, Hvammi, og Guðmundur Jónsson, Hvítárbakka. f stað Arnljótar er nú í nefndinni Guðlaugur Einarsson, bæjarstjóri. Sem ráðunautur um rafmagnsfræðileg efni var ráðinn Jakob Guðjohnsen verkfræðingur, sem einnig hafði yfirumsjón með uppsetningu véla og rafbúnaðar. Á árinu 1944 voru ekki slíkar vélar eða hlutir sem þessir, sóttir til margra landa. Var því fyrst leitað til Ameríku um til- boð. Kom þaðan tilboð í 2400 hestafla vélar fyrir um 960 þúsund ísl. króna fob. New York. Þar sem þetta þótti dýrt, og ýmsum þótti þetta alltof litlar vélar, eins og áður er sagt. Vildi Haraldur endilega leita til Svíþjóðar um tilboð, áður en hinu Ameríska væri tekið. Kom þaðan fljótlega tilboð í tvær 2500 hestafla vélasamstæður fyrir um 800 þúsund ísl. kr. Eða um 160 þúsund kr. lægra verð fyrir meira en helmingi stærri vélar. Þessu tilboði var þegar tekið, enda var þetta minnsta virkj- un, sem vit var í að framkvæma, eins og hér stóð á. Framkvœmdir hefjast. Vorið 1945 gerði félagið samning við Almenna byggingarfélagið h.f., um bygg- ingu allra vatnsvirkja og annarra mann- virkja við fossana. Ennfremur að gera fullnaðaruppdrætti og annast endanlegar mælingar. Hófst vinna við þetta fljótlega, og var á árinu lokið við að steypa hluta af stöðvarhúsinu og allt að helmingi af undirstöðum fyrir trépípu. Á árinu 1946 var svo lokið byggingu stöðvarhúss og pípuundirstöður, svo og meginhluti stífl- unnar. Fyrri hluta þessa árs var lokið byggingu stíflugarðsins og reist háspennu- virki fyrir utan stöðvarhúsið. Jafnframt þessu voru byggð tvö íbúðarhús fyrir vél- stjóra. Yfirstjórn með þessum framkvæmdum hafði á hendi, fyrir Almenna bygginga- félagið, Árni Snævarr, verkfræðingur, en daglega yfirverkstjórn Steinar Ólafsson, byggingafræðingur. Veturinn 1945—46 samdi Andakílsár- virkjun við danskt félag, E. Basmussen A/S, um byggingu og mælingu á há- spennulínum frá orkuverinu til Akraness, Borgarness og að Búnaðarskólanum að Hvanneyri. Jafnframt voru reistar að- veitustöðvar á fyrr greindum stöðum og sá Ólafur Tryggvason, verkfræðingur, um uppsetningu þeirra, ásamt endurbyggingu og endurbótum á innanbæjarkerfi Akra- ness og Borgarness. StaÖhætlir og mannvirki. Andakílsá er afrennsli Skorradalsvatns, eins og kunnugt er. Er áin stutt, aðeins um 8 km. frá upptökum til ósa. Skamml fyrir ofan bæinn Syðstu-Fossa brýzt áin fram í djúpum hamragljúfrum og myndar nokkra fossa er nefnast Andakílsárfossar. Eru fossarnir um það bil 46 metra háir, en gljúfrin um 450 metra löng. Við gljúfur þessi eru frá náttúrunnar hendi virkjunar- skilyrði að mörgu leyti hin beztu og þar hafa vatnsvirki orkuversins verið byggð. Stíflan stendur skammt fyrir ofan efstu fossbrún. Er hún 130 metra löng og átta metra há, þar sem hún er hæst, með þrem botnrásum til tæmingar og fjórum yfir- föllum. — Við norðurhluta stíflunnar er komið fyrir inntaksþró, með tveim pípu- hólkum úr stáli, annar 2.1 m. í þvermál og við hann er tengd þrýstivatnspípa, sem er 2.5 m. í þvermál og er hún ætluð fyrir síðari aukningu virkjunarinnar. Þrýsti- vatnspípa er lögð í norður bakka árinnar. er það trépípa 2,1 m. í þvermál og um 580 m. löng. Hvílir hún á steyptum stöplum. Pípuefnið er keypt í Sviþjóð og sá sænskur maður um uppsetningu hennar. Stöðvarhús stendur að norðanverðu, í hvammi, fyrir neðan gljúfrin. Vélasalur- inn er 16 m. langur og um 11 m. breiður, en allt er stöðvarhúsið um 300 ferm. að grunnfleti. 1 stöðvarhúsi er auk þess skrif- stofur, verkstæði, vélgæslurúm og fleira. Skammt frá stöðvarhúsinu standa há- spennuvirki og eru þau öll utanhúss. Það- an greinast nú tvær háspennulínur, eins og fyrr segir. Ráðgert er að siðar komi fleiri háspennulínur fyrir veitur um byggðir Borgarfjarðar. Til jöfnunar á vatnsrennsli árinnar var ráðgert að byggja flóðgáttir í ós Skorradals- vatns. Mun það að forfallalausu gert á næsta sumri. Vélar og afl 1 orkuverinu eru nú tvær vélasamstæð- ur, 2500 hestöfl hvor, við 51,5 m. meðal- fallhæð. Eru þær smíðaðar hjá Karlstad Mekaniska Werkstaden í Svíþjóð. Sam- tengngdar vélunum eru tveir rafalar er keyptir voru hjá ASEA í Svíþjóð. Báðar þessar samsku verksmiðjur smíðuðu til- svarandi vélar í Ljósafossvirkjunina fyrstu. Um uppsetningu þessara tækja sáu sænskir sérfræðingar, en með þeim starf- aði Óskar Eggertsson, vélstjóri, en hann er nú stöðvarstjóri Andakílsárvirkjunar. Raftækjaverkstæðið Rafall, í Reykjavík, sá um raflagnir í hús og vélar, með himmi sænsku sérfræðingum. Nœst stœrsta orkuver landsins. Andakílsárvirkjunin er næst stærsta ný- virkjun landsins. Stendur hún einungis að baki Sogsvirkjuninni, hvað afli viðvíkur. Hins vegar er þessi fyrsta virkjun Anda- kílsár, aflmeiri, miðað við ibúatölu veitu- svæðisins, en allar aðrar stærri rafveitur hér á landi. Engu að síður má gera ráð fyrir, að fljótlega þurfi að stækka þetta orkuver. Fullur hugur mun vera á, að miðla skjótt raforku til hinna þéttbyggðu sveita Borgarfjarðar. Andakílsárvirkjunin er í dag 5000 hest- afla orkuver, en talið er að hægt sé að auka vélaafhð upp í allt að 12.000 hestöfl. InnanbœjarkerfiÖ. Andakílsárvirkjunin er sameignafélag þriggja aðila eins og áður segir. Akraness- kaupstaður kaupir því rafmagnið í heild- sölu, frá aðalspennistöð við útjaðar kaup- staðarins. Auk þessarar aðalspennistöðvar

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.