Akranes - 01.10.1947, Page 21

Akranes - 01.10.1947, Page 21
eru svo 6 spennistöðvar á mismunandi stöðum innnanbæjar. Fyrir innanbæjarkerfið er þvi starfandi sérstök rafmagnsnefnd, og skipa hana eftirtaldir menn, sem kosnir eru af bæjar- stjórn: Þorgeir Jósefsson, formaður, Jón Sigmundsson og Hans Jörgenson. Bókhald rafveitunnar er á skrifstofum bæjarins. Verkfræðilegur ráðunautur er Ólafur Tryggvason eins og áður segir. Verkstjóri við lagningu kerfisins hefur verið Enok Helgason, rafvirkjameistari. Starfsmenn innanbæjarveitunnar munu þessir menn verða: Ólafur Tryggvason, sem nú hefur verið ráðinn rafveitustjóri. Knútur Armann, rafvirki, og Þjóðleifur Gunnlaugsson, sem verið hefur stöðvar- stjóri rafveitunnar hér frá upphafi. Arið 1935 var kostnaður innanbæjar- kerfisins áætlaður um 2 milj. króna. Of snemmt er að fullyrða hvort sú áætlun stenst, þó eru meiri líkur til að hún geri það. Ef reyndin yrði sú, mun það með eins- dæmum hin síðari ár. Mikill meirihluti bæjarkerfisins er þeg- ar lagður í jörð. Aðeins látið standa það nýjasta og bezta af loftlínukerfinu gamla, og nokkuð í útjöðrum bæjarins, sem ekki var hægt að fá efni til. Vegna þess verður við svo búið að standa um hríð. A sama hátt vantar mjög efni til þess að hægt sé að tengja fjölda húsa við hina nýju langþráðu rafveitu. Er það einn ljóð- ur á skipulagsleysi ýmsra framkvæmda 1 þessu landi, að fjölmennum bæjum og héruðum sé hjálpað að byggja upp og gera framleiðsluhæft 15 milj. króna fyrirtæki, en varnað þess að afla sér efnis og tækja fyrir óverulega fjárhæð, til þess að fyrir- tækið komi að tilætluðum notum, og hafi í sér fólgna fyllstu möguleika til öruggrar afkomu fjárhagslega. Af þessum sökum verður hin mikla orka engan veginn full- nýtt í bráð. Má því raunverulega segja að virkjuninni sé alls ekki lokið. Bærinn beitti sér fljótt fyrir útvegun ýmsra tækja, en erfiðleikarnir urðu þar á vegi. Leyfi voru skorin við nögl, afgreiðslu —- og yfirfærslu — erfiðleikar hafa og hamlað verulega. Þannig á bærinn liggj- andi tæki á hafnarbakkanum í Reykja- vík, siðan í ágúst í sinnar, sem ekki hefur fengist yfirfærsla á. Bærinn hefur þegar útvegað: 129 elda- vélar, 50 þvottavélar og 18 ísskápa. Auk þess hafa einstaklingar útvegað sér annarsstaðar frá 40 — 50 eldavélar nokkra isskápa og þvottavélar. I3á hefur Kaupfélagið útvegað hingað 45 þvotta- vélar. Til viðbótar á bærinn von á 120 elda- vélum, og á auk þess 30 þvottavélar á hafnarbakkanum í Reykjavík. Þó allt þetta komi sem hér er nefnt, mun láta nærri, að enn vanti um 100 þvottavélar og um *5o eldavélar, ef fullnægja á eftirspurn. akranes Götulýsingin. Allir jarðstrengir til götulýsinga eru þegar lagðir. Einnig er búið að ákveða gerð götulýsingar stólpa og lukta. En af efnisskortinum mun þetta þó ekki geta nema að litlu leyti komist í framkvæmd í vetur. Aukið öryggi í útbúnaði háspennukerfisins Háspennukerfið er svo nefnt hringkerfi. Þannig að strengirnir mynda hringrás um bæinn. Þó einn strengur milli spennistöðva bili, má halda áfram rekstri allra stöðv- anna engu að síður. Þetta fyrirkomulag hefur enn hvergi annarstaðar komið til framkvæmda hér á landi. Framliald. IV. Trausti og Álftin eru hér 1925. 29. janúar 1925, fréttist að Bjarni Hall- steinsson hafi dottið út af bryggju í Sand- gerði og drukknað. 11. marz 1925 .Margrét í Halakoti jörð- uð. Sama dag fórust með togara í Hala- veðri Jónas Guðmundsson, Fögruvöllum, og Halldór Sigurðsson, Akbraut. 5. nóvember 1925. U. M. F. Akraness stofnar til fyrirlestrahalds hér í heila viku. Af öllum fyrirlestrunum hefur mátt læra ýmislegt, og á U. M. F. A. þakkir skilið fyrir að standa fyrir þessu. Sungið var fyrir og eftir hverja ræðu af söngflokki félagsins. 24. nóvember 1925. Fiskideildin Báran heldur afmæli í kvöld, er það viðhafnar- mesta, sem hér hefur haldið verið. Tals- verð ræðuhöld. Mikill og góður söngur hjá Söngfélaginu Svanir, 18 menn. 3. febrúar 1926, drukknar Bergþór Árnason, af Hrefnu. 12. júlí 1926, fer Ólafur Bjarnason á sildveiðar. I. desember 1926. Ungmennafélagsaf- mæli, með yfir 100 að tölu. 12. desember. I fyrrakvöld hélt læknir Ólafur Finsen fyrirlestur um berklaveik- ina, og var hann mjög fróðlegur og ágæt- lega fluttur. Læknirinn á mikla þökk skilið fyrir hann. I desember 1926 hefur U. M. F. A. fyr- irlestraviku. 19. desember 1926. Ólafur B. Björnsson hélt fyrirlestur: „Um stefnumar o. fl. Honum sagðist mikið vel, og svo var karla- kór ágætur. II. júni 1927. Norðan stórviðri og breyskja hreppsskilaþingsdaginn. Enginn mætti nema Kristín á Jaðri. Spennan i háspennuhúsinu er um 20 þúsund volt. Háspennukerfið innan bæjar er með 6000 volta spennu. I spennistöðv- unum er spennan svo lækkuð niður í 220 volt, til notenda. Byrjað var að tengja hús og iðjuver við hina nýju veitu 27. október s. 1. Það mun þvi samkvæmt framansögðu verða nokkuð langt þangað til allt er full- gert og frágengið i sambandi við þetta mikla framfaramál, því miður. en það ætti ekki að valda deilum, hver nauðsyn væri að gera svo dýr mannvirki sem þetta full- komlega starfhæf og fjárhagslega tryggð. Úl. B. Björnsson 12. desember 1927. Almennur fundur um kaup á jörðinni Görðum, eða parti af þeim, þvi undan er skilið Presthús, Brekkubær og Kalmannsvík, og er þetta hjartað úr Garðalandi. Ólafur Björnsson hélt 2. klt. frumræðu, um nytsemi, sem hreppurinn hefði af þessu kaupi. Þó jörð- in sé aðallega láréttur fúaflói og mógrafir og kosti 40 þúsund krónur og borgist út á 28 árum. ( Um kaupin skrifar Sveinn svo alllangt mál i sama, eða svipuðum anda, sem áður en minnst á.) Frá Halldóra Hallgrímsdóttir dó ig. febrúar 1928. Tómas í Dalsmynni dó i marz 1928. Sveinn Oddsson dó 26. marz 1928. 22. nóvember 1928. Rak hér í Krossvík á land Grindarhvali. Hreppurinn annaðist um að koma þeim i verð til hafnarbóta. Á árinu 1928 er byggt Ishús B. Ólafs- sonar & Co. og Þ. Ásmundssonar, með frystivélum. 2. júní 1929, andaðist Guðjón Jónsson. 12. september 1929, kom Bjarni með ólaf Bjarnason og Þormóð. I. desember 1929, 20 ára afmæli U. M. F. Akraness. II. janúar 1930. Almennur fundur um hafnleysið. 17. janúar 1930, strandaði Kári við Mýrar. Mannbjörg. 4. október 1930. Ólafur Bjarnason kom frá Englandi. Er fyrsta skipið, sem lagðist að hinum nýja hafnargarði og losaði þar kol. 18. október 1931, komu hingað fyrstu brunaáhöld, og er æfing i dag. 30. okt. 1931 Deyr Jóhannes á Bakka. 1. desember. Haldið upp á afmæli U. M. F. A. Margar ræður, góður söngur. Ur dagbókum Sveins Guðmundssonar 129

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.