Akranes - 01.10.1951, Qupperneq 4

Akranes - 01.10.1951, Qupperneq 4
Pabbi, eftir Lindsay og Crouse Þetta er amerískur gaman- leikur eftir Lindsay og Crouse. Leikurinn er léttur og fynd- inn, enda náð mikilli hylli hér sem annars staðar. — Margir leikendumir léku mjög vel, og var leikstjórninni vel borgið í höndum Lárusar Pálssonar. Jón Arason, eftir Tr. Sveinbjörnsson. Því miður sá ég ekki þetta leikrit, — en langaði þó mikið til þess — sem tengt er við hina miklu hetju, Jón Arason og syni hans. Um þetta leikrit urðu all skiptar skoðanir þeirra er sáu. Það var heldur ekki mikið sótt, þrátt fyrir þann sögulega ljóma, sem stendur um þessi merku nöfn. Þar dugði ekki einu sinni til fjögra alda minning þeirra feðga. Það bendir óneitanlega til að skáldið hafi ekki ráðið yfir nægu ímyndunarafli, eldi eða skáldlegu innræi til þess að sýna okk- ur sögu og samtíð þessarar frægu persónu í réttu ljósi. Flekkaðar hendur, eftir Paul Sartre. Þetta er mjög athyglisverður leikur, sem nýtur sín líka vel í snillingshöndum Lárusar Pálssonar hvað leikstjórn snertir og örugga leikmeðferð hins unga leikara Gunnars Eyjólfssonar i öðru aðalhlutverk- inu. Fleiri leika vel í þessu leikriti, sem um margt er merkilegt. Heilög Jóhanna, eftir Bernhard Shaw. Hér er um merkilegt skáldverk að ræða eftir heimsfrægt skáld, þar sem heims- fræg persóna er ívafið og uppistaðan. Stefán Islandi í Rigoletto, kveSjusýning Shaw er gagnrýninn og beinskeyttur í ádeilum sínum, en líka skilningsgóður á mannlegt og hugarflug mannsandans í hulda heima tilverunnar; Anna Borg lék Jóhönnu mjög vel og örugglega, þegar tekið er tillit til heildar- meðferðar. Hún fékk mjög misjafna dóma í þessu merkilega hlutverki, og var sumum þeirra a. m. k. áreiðanlega ekki stillt i hóf. Eg sá ekki leik önnu Borg fyrr en með því seinasta. Fannst mér hann þá yfirleitt mjög góður, og ekki áberandi öfgakenndur. Hún talaði ákaflega skýrt og fallega, þótt blærinn væri ekki full- komlega ízlenzkur. Þá var leikur Lárusar Pálssonar á hlutverki Karls prins ágætur, því segja má að hans leikur bregðist aldrei, hvert sem hlutverkið er. Fleiri leika þama og vel, svo sem Brýnjólfur, Gestur og Indriði Waage. Imyndunarveikin, eftir Moliere. Leikritið er skemmtileg ádeila á lækna- stétt 17. aldar. Þetta er gamalkunnur leikur hér, þar sem gamlir og góðir leik- arar léku. Nú komu hér fram nýir leikarar og lék mörgum forvitni á að gera saman- burð. Það var nokkuð deilt tun leik og sem leikhúsið hefur glímt við á þessu fyrsta starfsári. Óvænt heimsókn, eftir J. B. Priestley. Sumum þótti leikhúsið leggj- ast of lágt, með því að taka á svið leik, sem fyrir skömmu hafði verið leikinn i útvarpið. Það var hins vegar fullgild af- sökun, að hér var um að ræða merkilegan leik eftir ágætt skáld. Deilt var nokkuð um skipun hlutverka i leik þenn- an, en um það skal ekki dæmt hér. Smnir leikenda fóru þó mjög vel með sín hlutverk. leikstjórn í þessu leikriti, en hér verður ekki lagður dómur á þau mismunandi sjónarmið. Leikur Lárusar Palssonar í hlutverki Argans var afburða góður. Sýnir hann héi vel hve góður „komik“-leikari hann er. Leikur önnu Borg í hlutverki Toinette var mjög góður og glæsilegur, en var þó ef til vill um of yfirdrifinn. Ýmsir aðrir léku þarna vel. Búningar voru ágætir og einnig leiktjöldin. Hvað um fjárhaginn? Enn hvíla miklar byggingar- skuldir á Þjóðleikinu og valda náttúrlega tilsvarandi erfiðleik- um í sambandi við rekstur hússins. Þetta mun vera um 5 millj. kr. í lausaskuldum, er raunverulega svífa í lausu lofti. Þjóðleikhússtjórinn, Guð- laugur Rósinkranz, er því fremur áhyggjufullur út af fjárhagnum. En ekki blæs nú beinlínis byrlega gagnvart rekstrinum, því hann segir að laun starfsmanna hafi hækkað rnn 50% á tiltölulega skömm- um tíma, og flest af þeim efni- vönnn, sem nota þarf mest i sambandi við reksturinn hafi hækkað um 100%. Auk tekna af aðgöngumiðum á sýningar, hefur leikhúsið styrk úr ríkissjóði, sem er 25% af hinum. almenna skemmtana- skatti, en haxm nam 725 þúsund kr. í hlut Þjóðleikhússins á árinu 1950. Mun gert ráð fyrir að þessi tekjuliður hækki eitt- hvað, mun þó líklega vega skammt móti öðrum hækkunum. Með hliðsjón af öllu þessu telur Þjóðleikhússtjóri auðsætt, að halli verði á rekstri hússins i ár. Það þarf því sjálfsagt hugvit og snill- ingshendur til að rétta við fjárhaginn svo að til frambúðar megi við una. Því slíkt „menntasetur", sem þetta, nær aldrei tak- marki sinu með þvi að vera stöðugt á hor- riminni, eða lifa á nánasarhætti og búa við kastarholusjónarmið. I þessu sambandi ber og að geta þess, að fyrsta starfsárið tekur óvenjulega mikið til sín, bæði gagnvart húsinu sjálfu og öðru. Þannig á húsið t. d. 600 búninga eftir fyrsta starfsárið. Hvernig var aðsóknin fyrsta árið? I Þjóðleikhúsinu eru 660 sæti, en að- sókn yfir árið var slík, að sem svaraði að 500 sæti væru fullsetin á hverri sýningu allt árið. Mun það vera furðulega gott, 112 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.