Akranes - 01.10.1951, Page 20

Akranes - 01.10.1951, Page 20
Drengurínn, sem velt var upp ár hveítí Drengurinn sem hér er átt við, er Ágúsl: Jósefsson, fyrrverandi heilbrigðisfulltrúi í Reykjaváh. Maðurinn, sem er nú orðinn rúmlega 77 ára, en engum kæmi til hugar að telja meira en sextugan. Ágúst er um margt merkilegur maður, farsæll maður sjálfum sér og samferða- mönnunum. Glaður í góðu hófi og hinn gegnasti maður á hverja lund. Á Belgsstöðum er hann í heiminn borinn. 1 mánuðinum, sem Islendingar héldu hátíð í minningu um þúsimd ára byggð í landinu, er Ágúst fæddur, á Belgsstöðum í Akraneshreppi hinum forna, eða nánar tiltekið, 14. ágúst 1874. Yfirskrift þessarar greinar mun þykja heldur óvenjuleg, en til þess liggja þessi rök: Ágúst flýtti sér svo mjög í þennan heim til þess að sinna heilbrigðismálum höfuðborgar Islands og til að ná í seinni blessunina af hinum miklu hátíðahöldum ársins, að hann var ekki nærri skinnheill, langt frá því að vera fullburða. Umhyggja móðurinnar snerist því margvúslega um að halda í honum tórunni. Það var þrennt, sem henni fannst mestu máli skipta og duga bezt: Að velta honum upp úr hveiti, vefja hann svo í ullarflóka og skíra hann. Presturinn, síra Jón Benediktsson í Görð- um var því sóttur til að skíra hann á öðrum degi eftir fæðinguna. t>ar sem svona mik ill hraði var á um skírnina, var ekki hægt að hugsa mikið um nafngiftina og sízt að hafa nöfnin mörg. Það var því gripið til þess, sem hug og hendi var næst, að nefna drenginn eftir mánuðinum, sem hann var fæddur í. Hér skal ekki þreytt á langri ættfærzlu. Faðir Ágústs var Jósef Helgason, sjómaður, fæddur í Dægru á Akranesi, 13. nóv. 1835. Faðir hans var Helgi Guðmundsson, f. i Sauðanesi í Torfulækjarhreppi 25. ágúst 1801. Faðir hans og langafi Ágústs var var Guðmundur Jónsson, f. í Sauðanesi um 1758. Móðir Ágústs Jósefssonar var hins vegar Guðríður Guðmundsdóttir, bónda Simonar- sonar f. 16/7, 1833 á Syðri Krossum í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Móðir hennar var Anna Jónsdóttir, f. 15./5, 1812 í Hömluholti í Eyjahreppi, en móðir hennar og langamma Ágústs, var Valdás Jónsdótt- ir, f. um 1783 í Söðulsholti. Á árunum fyrir og eftir 1880 var fátækl mikill, fiskileysi, harðindi og erfiðleika ár. Munu foreldrar Ágústs hafa verið mjög fátæk, bjuggu nokkur ár í koti, sem Belgs- staðir hét og var norð-austan-vert í tún fætinum á Krossi, í núverandi Innri-Akra- nesshreppi. Munu þau hafa haft þar eina kú og nokkrar kindur, en hann hafa sótt sjó eftir því, sem föng stóðu til. Síðar munu þau hafa flutt ofan á Skaga og þar drukknaði Jósef við 4. mann, með Jóni Guðlaugssyni í Göthúsum. Hinir tveir, sem með þeim fórust voru: Ölafur Þorsteinsson vinnumaður frá Leirárgörð- um, og Vigfús Gestsson vinnumaður frá Katanesi. Nú horfði fyrst alvarlega fyrir þeim mæðginum. Efni voru engin til og fátt um úrræði, þegar óáran og erfiðleikar setja svip sinn á allt. Næsta ár vann hún eitt- hvað að fiskvinnu hjá Snæbirni kaup- manni og um sumarið réð hún sig í kaupa- vinnu. En á meðan kom hún hinum unga sveini fyrir hjá Sigríði Hákonardóttur og Einari Ingimundarsyni í Halakoti, sem önnuðust hann með mikilli blíðu. Þetta sama haust, \ 880 fluttist Guðríður svo með drenginn til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu síðan, og hér verður nú nokkru nánar sagt frá. Fyrstu árin í Reykjavík. Árið 1880 fluttist móðir Ágústs með drenginn til Reykjavíkur. Þá var eigin- dómur hennar þessi: Nokkrar krónur, sem hún keypti fyrir rúmstæði og lítið borð, en koffort kom hún með ofan að og eitthvað af sængurfatnaði. Hvorugt þeirra átti ann- an fatnað en þau voru í á ferðalaginu. Guðríður hafði aldrei áður komið til Reykjavíkur, og til engra frænda eða vina þar að hverfa. Þannig var ástatt fyrir fátæku ekkjunni, sem árið áður hafði misst fyrirvinnu sína í sjóinn. Þá var hér um slóðir hin mesta óáran, fiskileysi og raunverulegur sultur. Hér var þvi ekki miklu frá að hverfa, en það hefur þó þurft nokkurn kjark til að leita til annarra staða, þar sem raunveru- lega var um sömu eymd og erfiðleika að etja, að því þó viðbættu að þekkja engan mann. Því fremur, sem hin fátæka ekkja skirraðist við að biðja ásjár í hinum nýju heimkynnum, af hræðslu við það að verða þá send til baka hreppaflutningi. Að henni hefur þó sorfið fyrstu árin Reykjavík, því að hún kom einhverju sinni að máli við ráðamann af Akranesi um einhverja aðstoð. Hann sendi henni fljót- lega 10 pund af hertum háf. Það var öll aðstoð er hún naut lrá Akranesi. Mun henni hafa fundist að Akurnesingar ættu ekki mikið í uppeldi sonarins. Fyrstu árin í Reykjavík voru mæðginunum mjög erfið, og var Ágúst oft svangur, kaldur og klæð- ldtill. Á þessum tíma var ekki um marga möguleika að ræða i Reykjavik. Guðríður kveinkaði sér ekki við að vinna hvað sem var innanhúss eða utan, en mest mun hún hafa fengizt við saumaskap, þvotta hreingerningar o. fl.. En drengurinn vann sér oft inn bita og sopa með ýmsum snún- ingum fyrir fólk, því að hann mun fljótt hafa verið ólatur, léttur og lipur í snúning- um, fljótur og samvizkusamur. Þá varð oft að lúta að litlu. Vetur voru kaldir, en lítið um eldivið, almenningur hafði ekki nema mó, og kol voru dýr og oft ekki fáanleg. Drengir voru því stundum að snapa kol í fjörunni. Fóru úr jakkanum, skóm og sokkum, brutu buxurnar upp á 128 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.