Akranes - 01.10.1953, Blaðsíða 30

Akranes - 01.10.1953, Blaðsíða 30
f Allir sækjast eftir $kjó(fótum 09 Ferðnútbúnnði frá okkur Vörumerki okkar tryggir yður góðar og ódýrar vörur Bclgfagcrðin h.{. ura.“ Þessar tillögur náðu þó ekki sam- þykki ihúsameistaranefndar þeirrar, er sett hafði verið til að skera úr málinu. Það voru tillögur Ólafs Nordhagens húsameistara, sem sigruðu, og árið 1908 var hann skip- aður umsjónarmaður með kirkjusmíðinni, eða réttara sagt langhússins gamla, en það hafði orðið fyrir mestum skemmdum, eink- um vesturgaflinn, sem var mikið listaverk — sannkallað „viravirki úr steini." Var nú afráðið að reyna að flýta kirkjubygg- ingunni svo, að hægt yrði að nota hana alla á 900 ára árshátíð Ólafs helga, sum- arið 1930. Þetta tókst og langhúsið endur- reista var vígt það sumar, að viðstöddum öllum kirkjuhöfðingjum Norðurlanda. En þó var verkinu ekki lokið. Ennþá starfa margir listamenn að því að höggva isteinmyndir í kirkjima og gera hana sem likasta því, sem hún mun hafa verið. 01- af Nordhagen féll frá en þá tók við ungur húsameistari, Helge Thies, sonur Jens Thies listfræðings, sem lengi var forstöðu- maðm- listasafnsins í Osló. Og nú eru allar deilur um fyrirkomulag þess, sem enn er ógert af kirkjunni, löngu þagnaðar og það er hægt að gera sér ifulla grein fyrir þeim heildar svip, sem kirkjan fær, þegar hún verður fullgerð. Það er einkum útlit kirkj- unnar, sem valdið hefur deilum síðustu áratugina. Þegar H. Schirmer har fram tillögur sínar um endurreisn kirkjunnar kringum 1870, gerði hann ráð fyrir að verkið mundi kosta um tvær milljónir króna. En þeg- ar fyrri heimsstyrjöldin hófst hafði yfir fjórum milljónum verið varið til verks- ins, og var þó mikið ógert. Um helming þess fjár hafði ríkissjóður lagt til, en hitt voru gjafir frá ýmsum stofnunum, svo sem bönkum og sparisjóðum og fyrirtækj- um einstaklinga. Á síðari árum hafa fram- lögin aðallega verið frá rikinu. — — Einhver hefur sagt, að kirkjubygging eigi aldrei að verða fullgerð, heldur eigi hún iSÍfellt að vera að aukast og fegrast. Og það er víst að dómkirkjan í Niðarósi á eftir að ifegrast, ef rás tímans helzt með eðlilegum hætti og ekki steðjar að voði af hálfu náttúruafla eða stríðsvitfirringar. En víst er um það, að kirkjan er nú þegar komin í það horf, að þetta it mikla must- eri,“ sem Snorri talaði um fyrir 730 ár- tun, er nú á ný orðið glæsilegasta must- eri Norðurlanda. SKÚLI SKÚLASON. Skfól{atagcrðin h.{. K KAIJPIÐ, LESBÐ OG GEYMH) 138 AK.RANES

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.