Akranes - 01.10.1953, Qupperneq 4

Akranes - 01.10.1953, Qupperneq 4
gera hana. Það þykir sennilegt að hún hafi verið um 42. álna löng og 18 álna breið vestast en 16 álnir við kórdyrnar. Hún var byggð í rómönskum stíl með hringbogum yfir dyrum og gluggum, og efnið grágrýti og tálgusteinn. Af þessari kirkju sjást nú engar leifar ofanjarðar, en undirstöður hennar fundust 1865—66, er byrjað var á endurreisn kirkjunnar, sem stendur í dag. Um miðja 12. öld gerast merkir viðburð- ir í norskri kirkjusögu. Árið 1152 kemur Nikulás Brekespare kardináli til Noregs og erkibiskupsstóll er þá settur í Niðarósi, fyrir Noreg, en áður höfðu áslenzkir og norskir biskupar haft erkibiskupinn í Lundi að yfirboðara. f hinu nýja um- dæmi Niðaróss-erkibiskupsdæmis voru tíu biskupsdæmi, tvö á fslandi, eitt í Færeyj- um, en Hjaltland, Orkneyjar, Suðureyjar og Mön voru einnig í þessu nýja umdæmi, auk hinna norsku. Nú var Kristkirkja Öl- afs kyrra orðin erkibiskupskirkja, en þó stórum ósjáiegri en t. d. biskupakirkjum- ar í Osló, Stafangri, Björgvin og Orkneyj- um. Þótti því eigi annað hlýða en að dóm- kirkjan í Niðarósi yrði byggð að nýju og miklu veglegri en aðrar kirkjur. Nikulás kardínáli kvað á um töiu presta við dómkirkjumar og skyldu þeir ekki vera 'færri en tólf og eiga hver sitt aitari í dóm- kirkjunni og við hámessu skyldu þeir sitja í kór, í tveimur stólaröðum. Þessir prestar eða „kórsbræður“ völdu biskupa og erkibiskupa og voru eins konar ráðu- nautar þeirra. En í gömlu kirkjunni í Niðarósi var ekki rúm fyrir þá í kómum og þvi siíður fyrir hin 12 ölturu. Þess vegna var nú hafizt handa um kirkjubygg- inguna, en nú var það ekki konungur, sem byggði heldur kirkjan sjálf. Líklega hefur Nikufás Brekespeare lagt á ráðin um tilhögun nýju kirkjunnar, en framkvæmdir allar hafði erkibiskupinn. Var ákveðið að hin nýja höfuðkirkja skyldi vera krosskirkja og skyldi hin gamla kirkja fátin standa og verða kór í nýju kirkjunni en þar vestur af skyldi koma þverhús og loks aðalkirkjan sjálf, eða „langhúsið“ sem svo er kallað. Þverhúsið var 74 álnir milli gafla, en langhúsið 52. álna langt og 32. álna breitt, og skift í þrjú „skip“ með súlnaröðum. Norðan við langhúsið var reist skrúðhús, 27N 9V2 alin. Kirkjan skyldi byggð í rómönskum stíl með hálfhringsbogum yfir gluggum og dyr um. Stendur þverhúsið ennþá að nokkru leyti og skrúðhúsið mun vera að heita má óbreytt frá fyrstu gerð. Þessir tveir hlutar kirkjunnar miklu em því það elzta í kirkju þeirri, sem stendur í dag. Það er líklegt að byrjað hafi verið á kirkjusmíðinni í tíð hins fyrsta norska erkibiskups, Jóns Byrgissonar (1152—57). Svo mikið er víst að eftirmaður hans, hinn viðkunni biskup Eysteinn Erlends- son, sem var af islenzkri ætt, vígði á fyrsta biskupsári sínu eina kapelluna 'í þverhús- inu, og helgaði hana Jóhannesi skírara. En meginhluti kirkjunnar reis í embætt- istíð Eysteins (1161—88). Lauk hann byggingu þverhússins 1170, notaði róm- anska stílinn. En árið 1180 fer Eysteinn til Englands og kynnist þar hinum nýja ensk-gotneska stíl og verður svo hrifinn af honum, að hann ákveður að nota hann við framhald kirkjubyggingarinnar og gera hana miklu veglegri en áformað hafði verið í fyrstu. Skrúðhúsið hefur verið í smíðum þegar breytingin var gerð, því að veggir þess eru i rómönskum stíl, en got- neskur oddbogastíll á hvelfingunum. Og nú var afráðið að rí'fa hina gömlu kirkju Ólafs kyrra, sem átti að verða ytri kór eða „langkór" nýju kirkjimnar og byggja hann upp aftur í gotneskum stil og talsvert breiðari en áður, þannig að „miðskip“ nýja kórsins varð jafnbreitt gömlu kirkjunni. En innst var byggður há- kór, áttstrendur, og altarið látið standa yf- ir gröf Ólafs helga, en i einni af súlimum í kring er Ólafsbrunnurinn 18^ alin á dýpt. Þvf fór fjarri að kirkjan væri fullger er Eysteinn biskup féll frá. En hann hafði gert endanlega áætlun um smíði hennar og telst kirkja þessi þvi hans verk fremur en nokkins annars einstaks manns. Af orð- um Snorra, sem áður er að vikið, má ráða að kirkjan hafi verið fullgerð er hann var á ferð i Niðarósi, en það var árið 1220. En gamla langhúsið hafði verið byggt í rómönskum stíl og var ákveðið að endur- byggja það í gotneskum stíl og gera það breiðara og lengra en áður. Mun þetta hafa verið gert á árunum 1248—1300. Svo að segja má, að kirkja sú, sem nú stend- ur, hafi orðið til á árunum 1152—1300. En mikið af því myndskrauti, sem áður var í kirkjunni, er nú horfið þaðan. Kirkjan núverandi eru 162% álna löng og þverhúsið 81 alin á breidd. Veggirnir eru afar þykkir, þvli að hleðslur úr höggn- um steini eru bæði utan og innan, en fyllt á milli með möl og kalki. Er það kallað kistumúr. Rómönsku múrarnir i kirkju- veggjunum eru alin þykkari en þeir got- nesku. Súlnahöfuðin, sem prýddu alla kirkjuna voru haglega skorin úr tálgusteini og tréskurður, einkum í hákómum og lang- kómum, afar vandaður. En listaverkin 'höfðu smátt og smátt safnast ifyrir á miklu lengri tima en kirkjubyggingin sjálf var að rísa, og þess vegna gætir þar enn fleiri stílbreytinga. Til dæmis um, hvilíkir lista- fjársjóðir hafa verið í kirkjunni, skal nefnt, að árið 1762 voru þar 3361 úthöggnar súlur, flestar úr hvítum marmara og 343 mannsandlit. Og hafði kirkjan þó verið rúin ýmsu þá. 316 gluggar vom á kirkj- unni. Gjafir streymdu til kirkjubyggingarinn- ar úr ýmsum áttum, eigi aðeins frá Nor- egi og Svíþjóð heldur og úr fjarlægari lönd- um. Fjöldi pílagríma komu til Niðaróss og hóparnir hófu sálmasönginn er þeir komu á brún Feginsbrekku, en þaðan sér yfir Niðarós. Páfinn leyfði að selja afláts- bróf til ágóða fyrir kirkjuna og er það elzta, sem vitað er um, frá 1292.--- En dómkirkjan í Niðarósi á sér sögu skins og skúra. Árið 1328 brann hún og eyðilagðist þá allt trévirki og „sömuleið- is margir steinstöplar og klukkur, súlur og steinbogar uppi og niðri, og margir dýr- gripir.“ Var þá heitið á allan landslýð að leggja fram fé til kirkjubyggingar og gáf- ust miklar gjafir, segir í islenzkum ann- álum, og hefur vafalaust verið leitað sam- skota hér á landi. En erkibiskupinn, sem átti að sjá um endurbygginguna mun hafa verið miður ráðvandur, því að hann dró sér óspart af samskotafénu og endurbygg- ingin tók langan tíma. Árið 1432 laust eldingu niður í kirkjuna og hún brann mikið, en þá var Áslákur Bolt erkibiskup og komst kirkjan í samt lag á 11 árum. Bolt krýndi Karl Knútsson Sviiakonung í .kirkjunni árið 1449, og var það fyrsta kon- ungskrýning í þessari kirkju, sem enn er krýningarkirkja Noregskonunga, og var Hákon núverandi Noregskonungur krýnd- ur þar síðast. — 1 tið hins síðasta kaþólska erkibiskups í Noregi, Ólafs Engilbrektsson- ar, brann kirkjan enn, en hann lét gera við hana og breytti ýmsu innanhúss. Eftir siðaskiptin fór kirkjunni að hnigna. Árið 1552 var turninn orðinn svo fúinn, að ekki þótti þorandi að hringja klukkun- um. Og 1564 varð stríð milli Dana og Svia og Svíar lögðu undir sig Þrændalög og settust að í Niðarósi. Segir sagan að hið sænska riddaralið hafi notað kirkjuna fyrir hesthús. Og er Sviíarnir hurfu á braut aftur höfðu þeir á burt með sér skrín Ólafs helga, sem staðið hafði yfir háaltari kirkj unnar, en þreyttust von bráðar á að bera kistuna og grófu hana því í Stjórdal. En lík Ólafs var flutt til Niðaróss aftur, og lagt í múraða gröf. En hjálm Ólafs og spora höfðu Svíar með sér og eru þessir gripir enn til sýnis á Nordiska Museet í Stokkhólmi. En hitt er annað mál hvort þeir eru ósviknir. Vald hinnar kaþólsku kirkju var brotið á bak aftur og fólkinu skipað að fyrirlita kirkjuskraut og helga dóma. Það bjargaði dómkirkjunni frá algerri eyðileggingu að hún var gerð sóknarkirkja í Þrándheims- bæ árið 1585, þvlí að óhjákvæmilegt var að halda kirkjunni við úr því að hún var notuð að staðaldri. Og söfnuðurinn greiddi henni kirkjugjöld. En það var aðeins lang- kórinn gamli, sem notaður var fyrir söfn- uðinn. Hið mikla langhús var orðið þak- laust og þóttu engin tök á að halda því við. Og undir aldamótin 1600 var farið að Framhald á síSu 137. 112 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.