Akranes - 01.04.1954, Side 14

Akranes - 01.04.1954, Side 14
SKÁLHOLT í SKINIALDANHA ÓLAFUK B. BJÖRNSSON: KRISTNISAGA Islands 'hefst undir himni nóttlausrar dýrðar á helgum stað, með teiknum og stórmerkjum Guðs. Þingvöllur var þannig helgaður af him- insins náð. Síðan hefur þessi staður ver- ið þjóðinni hugleikinn og helgur, þótt enn sjáist þar of litil merki varanlegrar þjóð- helgi. Sennilega gæti það hvergi átt sér stað nema á Islandi, að þar stæði svo aumt kirkjuhús, sem kristni var fyrst lögtekin, fyrst hún er enn vernduð í stjórnarskrá landsins. Annar er sá staður, eigi langt frá Þing- völlum, sem átti fyrir sér að verða heil- agt vé og æfinleg varðstöð þeirra heita um kristna trú, sem unnin voru á Þing- völlum árið eitt þúsund. Sá staður heitir. Skálholt. Það eru fyrst og fremst þrír staðir í landi voru, sem eru öllum stöðum æðri og dýrðlegri: Þingvellir, Skálholt og Hól- ar. Mörg bæjamöfn í landinu eru ekki síðri en þessi hvað táknræna fegurð snertir, né mátt og mýkt hins ylhýra máls. Þrátt fyrir þetta, era þessi þrjú nöfn, hátt yfir þau hafin í vitund hverrar kynslóðar. I samfelldri og sundurlausri sögu þjóðar- innar gnæfa þau hátt við himin. Þetta er svo satt og samtengt, að ef þjóðin hættir að líta á þessi þrjú nöfn sem vörður og vegmerki, hefur hún raunverulega misst fótfestu, og er ckki á sama hátt og áður fær um að ráða sinni eigin framtíð. Þeg- ar þessir þrír staðir hætta að vera „heil- ög jörð“ í augum hverrar kynslóðar, hef- ur þjóðin týnt fortíð sinni, og á engan grunn undir framtíðarhöll. Það er sjálfsagt engin tilviljun, sem ræður um val þessara staða til þess að halda vörð um mátt og möguleika dverg- þjóðar er bjóða skyldi byrginn hamför- mn náttúrunnar á mörkum hins byggi- lega heims, og hatrammri, erlendri kúg- un, en auk þess halda uppi hárri mennt, sem sígild má kallast, enda talin hlutgeng á alþjóðavísu. Skálholt fyrir siðaskipti. Skálholt kemur snemma við sögu þjóð- arinnar, kirkju og kristni landsins. Þar hjó Gizur hviti, merkur maður og vitur, sem glögglega sá nauðsyn þjóðar sinnar á að hverfa frá heiðni til helgunar. Þessi maður er fyrsti íslendingurinn, sem send- ir son sinn til lærdóms í fræg mennta- setur. Þessi fyrsti hálærði maður á Is- Eg þakka innilega hin mörgu bréf og kueSjur, sem mér hafa borist víSsvegar aS, síSan ég flutti í útvarpinu erindi þaS er hér er nú birt eftir beiSni margra. Ö.B.B. landi, verður svo fyrsti biskup landsins, ísleifur Gizurarson. Áður en Isleifur varð biskup, hefur hann að líkindum sett á fót skóla í Skálholti. þótt það sé einnig miðað við vígsluár hans. En efalaust hefur þessi skóli eflst og auk- ist í biskupstíð Isleifs. Þarna er fyrsti skóli landsins talinn stofnsettur, og úr hon- um útskrifast margir ágætustu menn þjóð- arinnar, sem orpið hafa ljóma á söguspjöld hennar. Má þar fyrstan tilnefna hinn heilaga Jón biskup ögmundarson á Hól- um, en hann stofnsetti þar fyrsta söng- skóla á íslandi, og ef til vill má þangað rekja, að sú mennt er með nokkra lífs- marki með þjóðinni. Um mennt og mannkosti Isleifs bisk- ups, hefur löngum verið vitnað til orða Jóns biskups helga, er rætt var um góða menn, búna miklum hæfileikum, en þá átti hann að hafa sagt: „Svo var Isleifur fóstri minn; hann var manna vænstur, manna hagastur, allra manna beztur“. Og segði einhver viðstaddur: „Hver gat hans nú? Þá svaraði biskup: „Hann kemur mér æ í hug, er ég heyri góðs marnis getið; hann reyndi ég svo að öllum hlutxnn“. Þegar menn leituðu ráða Isleifs bisk- ups um eftirmann hans í embættið, — en þá lá hann á banasænginni, — sagði hann m. a.: Að „Þeim mundi seint auðið biskups á Islandi, ef þeir hétu eigi því, að vera við hani: sæmilegar, er siðar kæmi til, en þeir hefðu við hann verið“. Eftir Isleif Gizurarson, var Gizur kjör- inn biskup, en hann sló ekki síður ljóma á stað og starf en faðir hans. Þrátt fyrir þá fullkomnu menntun, sem Gizuri gat hlotnast í föðurgarði, var hann sendur til mennta í Þýzkalandi. Hann gerðist far- og ferðamaður hinn mesti. Fór til Rómar, og var við hirð Haralds konungs Sigurðs- sonar í Noregi, en hann var talinn vitur maður. Álit konungs má hezt marka af eftirfarandi ummælum: Honum sýndist, að hann, þ. e. Gizur, „mundi bezt til fall- inn að bera hvert tignarheiti, er hann hlyti, hann væri jafn-vel fallinn til að vera hershöfðingi, konungur og biskup“. Enda er honum lýst svo, að hann hafi verið, „mikill maður vexti og tignarlegur, alger að sér um alla hluti, þá er karlmað- ur átti að sér að 'hafa, og allra manna góðgjarnastur og forvitur“. Forystumenn íslenzkrar kristni voru því engir meðalmenn að mennt eða mynd- ugleik, enda gerðu þeir garðinn frægan og grundvölluða traustlega trú í landi, að hætti spakra manna á öllum öldvun. Við störf Gizurar lækkaði því ekki vegur Skál- holts, enda segir sagan svo um hann: „Hann tók tign og virðing svo mikla snemmindis biskupsdóms síns, að hver maður vildi sitja og standa sem hann bauð, og var rétt að segja, að hann væri bæði biskup og konungur yfir landinu, meðan hann lifði“. Svo mikið verður víst ekki sagt urn nokkum annan Islending, allan þann tima, sem landið hefur byggt verið. Það var einmitt þessi mikli maður, sem rótfesti kristnina í landinu og kirkjuleg lög, sem svo vora vel úr garði ger, — svo sígild, — að í ýrnsum efnum eru þau enn í gildi. Gizur gaf kirkju landsins Skálholt til ævinlegrar eignar, og margt annað fleira. Lengi er þessarar dýrmætu gjafar Gizur- ar biskups vel gætt og sómi sýndur í sam- ræmi við óskir gefandans, en að misbresti siðari tíma um þetta, mun ég víkja síðar. Svo mikil er saga af þessum „höfuðstað“ þjóðarinnar, að ekki verður hún sögð í lítilli tímaritsgrein. En í þessu örstutta máli, vildi ég freista þess að leiða rök að þessu tvennu: Annars vegar, hve ljóm- inn um Skálholt er skýr. Hins vegar, hve þjóðina skortir hæfilegt stolt, að hafa svo lengi, sem rami ber vitni, séð þennan stað svo grátt leikinn, sem hann sjálfur sannar. Að sjálfsögðu hefur snemma verið byggð myndarleg kirkja í Skálholti. En þegar Klængur biskup Þorsteinsson kom til stóls- ins, lét hann rífa þá kirkju, sem fyrir var og gera nýja, sem að byggingu og öllum búnaði tók langt fram öllu því, sem áð- ur hafði þekkzt. Hann lét höggva hina nýju kirkju í Noregi, og vigja með svo mikilli viðhöfn, að söguritaranum ofbýð- ur bókstaflega. Hann fékk Bjöm Gilsson, biskup á Hólum, til að vigja með sér kirkj- una. Var svo mikilli veizlu slegið upp í Skálholti: Að þar höfðu þá dagverð eigi færri en sjö húndruð, sennilega tólfræð, þ. e. 840 manns. Næsti biskup, Þorlákur Þórhallsson, helgi, slær þá ekki minni ljóma á stað- inn. Hann var snemma óvenjulegur mað- ur að lærdóm:, og einn nafnkenndasti biskup í kaþólskum sið. Hann var stór- lærður maður sem ýmsir fyrirrennarar hans, því að hann var langdvölum við nám, bæði í Frakklandi og í Englandi. Yfir moldum hans lét Gizur Hallsson orð falla á þá leið, um traust hans til verð- leika Þorláks biskups: „að fáir mundu vonarmenn vera, ef hann er ei fullsæll, svo sem vér vitum hann ólíkastan verið 50 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.