Akranes - 01.04.1954, Side 34

Akranes - 01.04.1954, Side 34
b. Kristján f. í Traðarkoti. c. Sigríður, giftist Einari Eyjólfssyni frá Sniðshúsum í Reykjavík. Þeirra börn er mér tjáð að hafi verið: í. Lárus Þorsteinn, kvæntur Guð- únu Ólafsdóttur, ættaðri úr Rang- árvallasýslu. Sonur þeirra, Óskar Jóhann Amar, kvæntur Þórhöllu Guðnadóttur, þeirra sonur, Lárus Ýmir. 2. Kristjana Ólafía, tvígift. Fyrri mað- ur, Gunnar, 'sonur Gunnars kaup- manns Gunnarssonar í Hafnarstræti í Reykjavík, dáinn. Þeirra börn: a. Jóna Guðrún, gift enskum manni. Þau munu eiga tvær dætur. Emu og Þónmni Kristínu. b. Gunnar, dáinn, kvæntur Jóhönnu Þorgeirsdóttur. Þeirra börn: Gunn- ar og Guðný. c. Ema, dáin. Síðari maður Kristjönu er Sigurð- ur Þorsteinsson, hafnargjaldkeri í Reykjavík, frá Hamri í Þverárhlíð. Þeirra dætur: a. Þórunn, gift Ein- ari Ágústssyni. Þeirra dætur, Helga og önnur óskírð. b. Ema, ógift. 3. Elín Dagbjört, ógift. 4. Karl Ottó Friðrik, dó ungur. 5. Karl Ottó Friðrik, verkstjóri i Sápu- gerðinni h.f. Hreinn. Kvæntur Hans- ínu Jónsdóttur. Þeirra böm: a. Guðmundur, kvæntur Huldu Ágústsdóttur. b. Karl. c. Ágúst. d. Inga Dóra. 6. Sigríður Oktavia, gift Gísla Magn- ússyni, útgm. í Vestmannaeyjum. Þeirra böm: a. Óskar, kvæntur Láru Ágústsdótt- ur. Þeirra börn: Erna, Hrefna og Ágústa. b. Ágústa, gift Lárusi Ársælssyni Sveinssonar. Þeirra böm: Ársæll og Ágústa. c. Haraldur, kvæntur Magneu Þór- arinsdóttur. Þeirra böm: Ema og Sigríður. d. Garðar Þorvaldur, ókvæntur. e. Einar, dáinn. Árið 1905 byggir Kristján litið snot- xmt timburhús í Mýrarhúsum, er hann nefndi svo eftir að hann kom þangað, var það 8X7 álnir á hlöðnum kjallara, en við gafl þess var inngangsskúr 3X7 álnir. Lóðin var 507 ferfaðmar að stærð, leigð til 80 ára gegn 12 kr. árgjaldi. Hún var öll í vel ræktuðum kartöflugarði. 27. okt. 1909 fer fram virðing á húsi og lóð til lán- töku, er húsið þar virt á 1150 kr, en lóð- in á 507 kr., þ. e. 1 kr. ferfaðmurinn. Kristján og Geirdís voru bæði hin mestu snyrtimenni og óvenjulega þrifin, bar allt þess vott, sem þau umgengust, úti og inni. Kristján var lengst af á skútum, fjörmað- ur og árvakur, glaðvær og lundgóður og hinn bezti félagi. Menn vom misjafnlega sjókaldir, sem kallað var. Ef illa gekk, höfðu menn allt á homum sér, formæltu öllu, grýttu því litla, er þeir drógu, ef fisk- ur var tregur, tróðu það undir fótum og létu öllum illum látum. Undir því líkum kringumstæðum sagði Kristján aðeins: „Hann er tregur núna blessaður". Kristján var afburða fiskinn og fór vel með afla- feng sinn. Börn þeirra Kristjáns og Geirdísar voru: 1. Guðný, giftist Jóni Árnasyni, og byggðu þau húsið Skálholt. Þar verður þeirra nánar getið síðar. Þau áttu einn son, Bjöm Jónsson, bílstjóra í Reykja- vík. Hann var framúrskarandi prúður maður og vandaður, dó ungur úr berkl- imi. Hann var um eins eða tveggja ára skeið bílstjóri Sveins Bjömssonar forseta á Bessastöðum, og hefði óefað haldið þeirri stöðu lengur, ef heilsan hefði leyft. Kona Björns er Gunnvör Braga Sigurðardóttir. Þeirra dætur: Hildur Guðný, Amdís og Sigríður Birna. Guðný ól einnig upp systurson sinn, Þorfinn Sævar Þorfinnsson, húsasmíða- meistara i Reykjavík. Kona Þorfinns er Margrét Jónsdóttir frá Bíldudal. Dóttir þeirra er Dagný Ingibjörg. Þau Guðný og Jón Árnason skildu samvistir. Síðari kona Jóns heitir Mar- grét. Þau búa í Reykjavík. Guðný hef- ur einnig búið í Reykjavík síðan. 2. Ólafur, málarameistari, sem tók við eftir foreldra sína í Mýrarhúsmn og verður hér síðar getið. 3. Svanhildur. Fyrri maður hennar var Sigursteinn Þorsteinsson, Benediktsson- ar og konu hans Sigríðar Helgadóttur, en þeirra hefur verið getið hér áður í þessum þáttum. Siðari maður Svanhildar, var Þor- finnur Hansson frá Siglufirði, vélstjóri og ágætur smiður. Þau áttu mörg börn. Þorfinnur byggði húsið Þórsmörk við Skólabraut 18 og verður þar nánar getið. 4. Baldína, giftist Ólafi Þorsteinssyni. Þau byggðu húsið Dagsbrún við Kirkju- braut 42 og verður þar getið. Framhald í næsta blaSi. díæru kaupendur! Ég vil minna á að gjalddagi blaðsins er um mitt árið og vænti þess að þið vilduð góðfúslega greiða það sem fyrst. Vinsamlegast greiðið póst- kröfur fljótlega eftir að þær hafa verið sendar. Með beztu kveðjum og ámaðaróskum. Ól. B. Björnsson. AKRANE S 70

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.