Akranes - 01.04.1954, Page 22

Akranes - 01.04.1954, Page 22
öl. B. Bjömsson. HVERSU AKRANES BYGGÐIST 4. kafli. — 1870—1900. — Byggingar batna. Leiðrétting: Eftir upplýsingum Guðmundar Ásmundssonar frá Bæ, leiðréttist hér með nokkur atriði frá um- sögn um þetta fólk í síðasta blaði á bls. 24: I. Böm Ásmundar og Guðrúnar í Bæ voru g, og var röð þeirra eftir aldri þannig: 1. Ingi- björg, 2. Guðrún, 3. Páliua Anna, (sem deyr ung), 4. Guðmundur Pálmi, 5. Þórleif. Guðmundur Pálmi er þar talinn f. 1891, en á að vera 1890. Böm Ingibjargar Ásmundsdóttur og Guð- mundar Kristjánssonar: Elztur er Ásmundur, (sem ekki er þar getið), er verkstjóri i h.f. Málmiðjan, svo er bamatal þeirra rétt, til og með Guðmundi, þá er Hjördís, (sem þar er ekki nefnd), en hún aðstoðar foreldra sína, þá er Pálmi (ekki Páll), en að öðm leyti er þetta rétt. II. Guðrún Ásmundsdóttir. Maður hennar var Ján Bárðarson, (ekki Þórðarson), frá Króki í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Annað bam þeirra er Ása Dagmar, (en þar er Dagmar- nafninu sleppt). III. Kona Guðmundar Pálma er Málmfríður Jó- hannsdóttir, (ekki Hallfriður). Þeirra böm: Stefanía Anna og Ásmundur Uni. IV. Þórleif Ásmundsdóttir er f. 8. júní 1894, (ekki 8. júli). Fyrri maður hennar Helgi Þórður Helgason, f. í Litlubrekku, kenndur við Eski- holt í Borgarhreppi. Yngsta bam þeirra Þórð- ur (ekki Þórir). Elzta bamið dó í æsku, Guðrún Þórleif. 94. Kirkjubær — Kirkjubraut 35. Árið 1890 byggir Sigurður Sigurðsson þar lítinn snotran torfbæ. Sigurður kemur hingað frá Belgsstöðum, en hafði áður einnig búið á Staðarhöfða og Hurðarbaki í Svínadal. Hann var fæddur að Heynesi 21. október 1831, sonur Sigurðar Hinriks- sonar bónda þar, og konu hans Gróu Há- konardóttur. Hún var dóttir Hákonar Er- lendssonar (f. 1761) á Bjarteyjarsandi. Kona Hákonar (1790), Sesselja, f. í Mos- fellssveit 1765, Þorkelsdóttir. Móðir henn- ar var Gróa Guðmundsdóttir (f. 1739). Þau Hákon og Sesselja munu hafa búið á Bjarteyjarsandi 1793—1802, að hann deyr, 3. ágúst það ár. Þeirra böm: Erlend- ur, f. 1790, Guðríður, f. 1794, átti Jörund Guðmundsson i Bimhöfða. Sigurður, f. 1800, dáinn fyrir 1845, og Gróa fyrmefnd, f. 1802, er átti Sigurð Hinriksson á Hey- nesi. Kona Sigurðar í Kirkjubæ var Helga Ölafsdóttir, f. að Miðfelli á Hvalfjarðar- strönd 1833, bjuggu foreldrar hennar einn- ig að Eyri í Svinadal. Helga þessi var fyir trúlofuð Jóni nokkrum Markússyni, og byrjaði búskap með honum á hluta úr Geldingá, en hún missti hann fljótlega. Þau áttu saman eina dóttur, Valgerði, sem fædd var á Geldingá 19. júlí 1855, en ólst upp að Eyri. Hún giftist Sigurði Sigurðs- syni, bjuggu lengi hér í Melkoti, og verð- ur þar nánar getið. Börn Sigurðar Sigurðssonar og Helgu Ólafsdóttur í Kirkjubæ voru þessi: í.Sigurður, f. á Eyri 8. nóvember 1862, er exm á lífi ókv. og barnlaus. Ráðskona hans um fjölda ára var Guðlaug Þor- steinsdóttir, frá Gróf í Reykholtsdal. Hjá þeim ólst upp frá 7 ára aldri, Guðmund- ur E. Guðjónsson, skipstjóri, dótturson- ur Sigurðar eldra og Helgu. Sigurður dvelur nú í skjóli Guðmundar á Suður- götu 34. 2. Þórunn, f. að Hurðarbaki 20. júlí 1864, giftist 21. okt. 1893, Guðmundi Ásgeirs- syni. Þau bjuggu fyrst að Melaleiti og bjuggu þar lengi. Guðmundur er enn á lífi 1954. 3. Ólafur, f. að Hurðarbaki 11. maí 1866. Var lengi vinnumaður á Hamri í Borg- arhreppi, og kvæntist þar i. júní 1893, Geirfríði Þorgeirsdóttur. Þorgeir Finns- son var bróðir Sigurðar Finnssonar bónda á Hamri. Þau munu hafa búið á litlum hluta Hamars til 1920, er þau fluttu til Borgamess. Síðar fluttist Geir- fríður til Hafnarfjarðar og andaðist þar, en Ólafur var hins vegar lengst af í Borgamesi, þar til hann fluttist til Hafn- arfjarðar fyrir tveim til þrem árum, og er þar enn á lífi 1954. Þessi em þeirra böm: a. Þórdís Ólafsdóttir, f. á Hamri, gift 1916, Þorsteini Gunnlaugssyni. Þeirra börn:, Olgeir, Amdís, Inga Jenny Fríða og Halldóra Ágústa. b. Sigurgeir Ólafsson, f. á Hamri 19. sept. 1895. Kvæntur 1917, Kristínu Amfríði Pétursdóttur, voru fyrst í Borgarnesi, og svo í Hafnarfirði. Þeirra böm: Ingibjörg Petra, Helga og Ólafur Geir. c. Óskar Ólafsson í Rauðanesi, tvíburi við Sigurgeir. d. Ágúst Ólafsson, f. á Hamri 16. sept- ember 1897. Hann ólst að verulegu leyti upp í Kirkjubæ, hjá Guðjóni Þórðarsyni og Gróu föðursystur hans, frá 8—16 ára aldurs. Ágúst er kvænt- ur Jónínu Bjarnadóttur frá Minni- bæ í Grímsnesi. Þeirra börn: a. Ragn- ar Georg, sem drukknaði með Detti- foss 1945. b. Emil Ágúst, fulltrúi í Dómsmálaráðuneytinu. Kvæntist Guðrúnu Wilhelmsdóttur Halldórs- sonar læknis Steinsen, en missti hana eftir örskamma sambúð. e. Helga Ólafsdóttir, f. á Hamri 7. sept. 1899. Fyrri maður hennar var Þor- kell Halldórsson, Stokkseyri. Þeirra börn: Jón, Pálína og Þorkelína Sig- ríður, Ólafur, dó ungur. Síðari mað- ur Helgu var Grímur E. Andrésson, bifreiðastjóri í Hafnarfirði. Hann and- aðist 1950. Þeirra sonur, Þorleifur Helgi. f. Ólafía Ólafsdóttir, f. á Hamri 6. sept. 1901, og andaðist þar 12. okt. 1907. 4. Ámi, f. að Hurðarbaki 9. júní 1867. Hann byggði fyrst Áraabæ hér á Skaga, og verður þar nánar getið. 5. Jóhannes, f. 18. sept. 1869, d. 13. apríl 1870. 6. Guðmundur, f. 16. júni 1871, d. 18. fe- brúar 1877. 7. Gróa, f. 17. okt. 1872, giftist 13. maí 1902, Guðjóni Þórðarsyni, sem hér verð- ur nánar getið. Eftir að Sigurður fluttist að Kirkjubæ stundaði hann aðallega sjómennsku. Hann var góður maðnr og gegn, en fátækur alla tíð. Sigurður andaðist 24. janúar 1924 en Helga kona hans 3. janúar 1908. Guðjón Þórðarson var f. io. janúar 1870, Þórðarson, f. 25. ágúst 1819, bónda á Másstöðum, kvæntist 25. júní 1853, Guð- rúnu (f. 4. ágúst 1828) á Vatnshömrum, dóttur Jóns Jónssonar og Guðrúnar Sig- urðardóttur. Faðir Þórðar var Björn Teitsson, f. um 1768, d. 3. marz 1840, lengi vestanlands póstur, bóndi á Reyni. Faðir hans var Teit- ur Jónsson, bónda i Öxney á Breiðafirði (d. 1784), Jónssonar, Þormóðssonar í Gvendareyjum, Eiríkssonar. Þormóður var talinn skáld, og haldinn kraftaskáld og fjölkunnugur. Em af honum margar frá- sagnir, og sumar þeirra i þjóðsögum Jóns Árnasonar og víðar. Kona Þormóðs var Brynhildur Jónsdóttir í Sellóni, Kristófers- sonar i Hólahólum, Bjömssonar. Eirikur faðir Þormóðs var Sigurðsson í Langadal á Skógarströnd, Sigurðssonar prests Jónssonar í Miklholti, er átti Þóru Þórðardóttur. Jón var Þorsteinsson, Sig- urðssonar, siðast prests í Grímsey Þor— steinssonar, er drukknaði á Grimseyjar- sundi 1561, Þóreyjarson á Hallgilsstöðum í Svarfaðardal. Móðir hans hét Þórey, en faðir hans ahnennt talinn Nikulás Þor- móðsson, priór á Möðruvöllum (d. 28. okt. 1521). Sjá ísl. æv. IV. 277. Sjá ennfremur Landp. I. bls. 200—201. Guðjón Þórðarson fór ungur til sjós, enda var það hans líf og yndi, og vildi helzt ekkert annað gera. Hann var afburða laginn sjómaður og afbragðs dráttarmaður, ágætur formaður, glöggur og gætinn, enda var hann stundmn stýrimaður á þilskip- um, þótt ólærðm- væri. 58 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.