Akranes - 01.10.1954, Side 6
Dr. OLOF LAGERCRANTZ:
Ur. Olof Lagercrantz
ÞEKKTASTI bókmenntagagnrýnandi
Svía, dr. Olof Lagercrantz bregður í
þessari grein upp gripandi mynd af
sænskri skáldkonu, Edith Södergran. Þessi
kona fór margs á mis í lífinu og lifð.i lengi
i nábýli við dauðann. Slíkt fólk skapar oft
sigildustu verk bókmenntanna.
Edith Södergran er svipuð persnesku prins-
essunni í ævintýri Topelíusar, en prins-
essu þeirri rændi tígrisdýr, en síðar breytt-
ist hún í lyngblóm á heiði einni á Lapp-
landi. Ötal leyniþræðir tengja hana við
norræna náttúru og samt eru áhrifin frá
henni eins og gustmikill og blóðheitur gest-
ur hefði farið hjá. Henni hefur verið unn-
að og hún hefur verið dáð öllum sænskum
ljóðskáldum þessarar aldar fremur. Þrjá-
tíu árum eftir dauða hennar ættum við
að þekkja hana rétt. En þeir, sem heitt er
unnað, verða öðrum fremur ævintýraper-
sónur. Unnendur þeirra taka eins konar
einkaleyfi á þeim, bera þá á gullstól hug-
myndanna og líta á þá gegmrni táramóðu
ljú'fsárra minninga. Þegar ég fór að lesa
verk hennar að nýju var ég í fyrstu blind-
aður af ævintýramóðu minninganna og gat
naumast komið auga á hana eins og hún
var. En allt í einu sá ég allt aðra Edith
Södergran en þá, sem ævintýrahefðin hafði
skapað. Ég sá konu með svo margt óþekkt
í fari sínu, að engin persnesk prinsessa í
Lapplandi var jafnoki hennar- Það er
þessi kona, sem ég ætla að segja frá.
Edith Södergran hugsaði sér oft líkama
sinn látinn. Hún skreytir hina látnu með
rósum og dregur hring á fingur henni.
Hún greiðir hár hennar og kveikir ljós
við kistuna. Hún er álíka hugfangin af
þessari sýn eins og Millais var þegar hann
málaði hina látnu Ofelíu i vatnsliljutjörn-
inni. Þegar látna konan hefur verið hjúp-
LETKFANQ
uð til fulls hefur Edith Södergran upprisu-
leikinn. Svanhvit hvílir í glerkistunni
sinni og biður þess að prinsinn komi og
vekji hana. Kona hermannsins klædd brúð-
arlíni og með barnið sitt á handleggnum
liggur liðið lik á kirkjugarðinum. Þá kallar
einhver, konan rís á fætur og hraðar sér
til manns síns.
í öðru kvæði liggur kona látin í svörtu
sorgarherbergi. Allt í einu Ijómar rauður
bjarmi yfir henni og englarnir héfja söng.
Þeir syngja, að guð kalli á barnið sitt.
Hin látna heyrir sönginn og svarar. , Já
herra, ég kem“.
I kvæðinu „Alvdrottningens spira“.
liggur önduð kona á álagaskógi. Ástvinur
hennar kemur að líkbörunum. Hann vill
eklíi trúa þvi, að hún sé látin. Hann beygir
liðina i stirðnuðum fingrum hennar og
heldur silfurdúnshnoðra upp að öndunar-
færunum til þess að vita hvort hún andi
ekki, demantshring dregur hann af fingri
hennar og þrýstir steininum inn í hvítt
konuhörundið og loks lyftir hann henni
upp og leggur hana að brjósti sér- En allt
er árangurslaust og hann er örvæntingunni
ofurseldur. Þá kemur drottning fljótanna
til hans og lætur köttinn Elektrus spinna
líf í hina látnu. Elskendurnir sameinast
og hverfa inn í skóg, sem er fullur af
fjólum.
1 þessu síðasta kvæði segir elskhuginn
þegar hin látna vaknar. „Þú leikfang dauð-
ans, nú hrærir þú jörðina að nýju með
hvitu skónum þínum“. Gælunafnið er eðli-
legt í munni ástfangins manns, en það héf-
ur ekki erotíska merkingu, Leikfang dauð-
ans er látin kona, sem farið er i upprisu-
leik við. Það er sá leikur, Edith Söder-
gran leikur í veikindum sínum, berklaveik-
inni, sem fylgdi henni eins og skugginn
allt frá bernsku til dánardægurs, þegar
hún var á þrítugasta og fyrsta árinu. Hún
klæðir brúðuna úr og í, brúðuna, sem er
hennar eigin látni líkami, leggur hana í
kistuna og kallar á kraftaverkið.
I fyrstu kvæðabókinni kastar hin bros-
andi blómarós teningum um hamingju
sína og sér, að hún tapar. Hún hlýtur
ekki venjuleg konuörlög. Hún hlýtur
hvorki heilsu né ástir manns. En þegar
hún kveður birtist hún undarlega köld og
stolt eins og leikslokin hefðu verið í sam-
ræmi við innstu þrár hennar. Það sem ten-
ingurinn veitti henni var sjúkleiki, kvalir
114
DÁUÚANZ
og dauði og hún reynir að sætta sig við
hin nýju örlög. Hún minnir á konu, sem
miskunnarlausir ættingjar hrifsa frá lif-
inu og varpa í klaustur. Stoltið bannar
henni að kveina og kvarta. tlún fer að
leggja eyrun við tekstanum helga um kval-
ir og þjáningar. Tveir hljómar mætast hið
innra með henni en þegar er vitað hvor
muni verða sterkari. Enn eru dyr opnar
i allar áttir en hliðið, sem liggur til dauð-
ans, lokast aldrei- Hálfnauðug fer hún að
yrkja um yrkisefnið, sem átti eftir að verða
hennar eina raunvemlega yrkiséfni —
dauðann. Hún reynir að þverskallast við
manninn, sem hún elskar, kallar hann spé-
spegil og rotinn ávöxt. Hún breytir sér i
kenjótta Tintómöru, sem vekur ástríðu hjá
öllum, en elur sjálf enga þrá. Daga hausts-
ins dreymir um vetrarfriðinn og snjóflygs-
urnar, sem falla til jarðar. Elskhuginn
breytist i valdsmann með kuldaleg augu
Hann réttir henni kórónu, sem er höfði
hennar ofviða svo að það hnígur niður að
brjóstinu. Hann leggiu þunga hramminn
á granna handlegginn hennar, hún þekkir
hann aftur og finnur að titringur fer um
hana. Nýi elskhuginn er að breytast úr
manni holds og blóðs í dauðann sjálfan.
Hún hyllir þjáninguna, sem réttir okkur
lyklana að ríki dauðans, gefur dauðanum
nýtt heiti, kallar hann bróður lifsins, sem
mennirnir geti hallað höfði sínu að. Hún
yrkir um konuna, sem elskaði kransa hinna
dauðu og að launum hlýtur kórónu lífsins.
Llún hefur vaknað í nýjum veruleika og
getur stolt kallað sig hamingjugyðjuna.
„Sofandi mær mcð svefndrætti“.
Fyrsta kvæðabókin hennar er merkileg
vegna tvihljómsins, sem í henni birtist.
Hugmyndir og veruleiki blandast saman á
undraverðan hátt. Eðlilegt lif hefur enn
ekki misst öll tök á henni, en sá veruleiki,
sem fetar í fótspor veikinda, kemur nær
og nær, og brátt beinist öll athygli henn-
ar að honum. Stutta stund villist hún út
af 'SÍnni eigin braut. Ári eftir að fyrsta
bókin hennar kom á prent brauzt rússneska
stjórnarbyltingin út. Ári síðar finnska
frelsisstriðið- Rauðliðar höfðu völdin í
Raivola en voru hraktir á brott vorið 1918
eftir blóðuga bardaga. Þessir atburðir
breyttu í raun og veru ytri aðstæðmn Edith
Södergran. Hún hafði verið efnuð og haft
fé til ferðalaga. I bemsku bjó hún skammt
frá stórborginni St. Pétursborg og þar gekk
AKRANES