Akranes - 01.10.1954, Blaðsíða 9

Akranes - 01.10.1954, Blaðsíða 9
hlyti að kosta að leggja til atlögu við þessa hraustu fjallabúa i ógreiðfæru fjalllendi, og reyndi því að buga þá með brögðum. Lézt hann vilja semja frið, og fékk þá til að sýna drottinhollustu sína með því að taka liermenn inn í byggðir sinar, þótt foringjar Valdesa, Janavel og Léger, leggð- ust fast á móti þvi, enda grunuðu þeir her- foringjann um græzku. Grunur þeirra var lika á rökum reistur. Laugardaginn fyrir páska, 24. apríl 1655, höfust hermennirn- ir handa um að útrýma Valdesum, er setuliðið í Torre Pellice, sem átti að halda uppi ,,reglu“ í dölunum, hafði gefið hið umsamda merki. Þesisum blóðugu ofsókn- um má einna helzt likja við ofsóknir heið- ingjanna á hendur kirkjunni i frumkristn- inni, enda er talið, að um 7 þúsund Valdes- ar hafi látið lífið á þessum blóðugu pásk- um 1655. Jesué Janavel gat flúið til fjalla ásamt allmörgum trúbræðrum, en kona hans og tvær dætur féllu þó í hendur of- sækjendanna. Herforinginn skoraði á hann að gefast upp og afneita trú sinni og mundi honum þá verða fyrirgefið, en að öðrum kosti yrði kona hans og dætur brenndar á báli og mikið fé lagt til höfuðs honum. Janavel svaraði á þessa leið: „Hót- anir þínar geta ekki knúð mig til að af- neita trú minni, heldur verða þær ein- ungis til þess að staðfesta mig i henni. Þú getur aðeins eytt dauðlegum líkömum konu minnar og bama, ef þú varpar þeim á bálið, en sálir þeirra fel ég Guði á vald fullviss þess, að hann muni vera þeim miskunnsamur og einnig mér, ef lionum skyldi þóknast að láta mig falla i hendur þinar“. Janavel kom ungum sjrni sinum á ör- uggan stað erlendis, en snéri sjálfur aft- Minnismerki Henri Arnauds í Torre Pellice. ur til trúbræðra sinna til að leggja allt í sölurnar fyrir trú þeirra og frclsi. Fregnin um hina blóðugu páska barst eins og eldur í sinu um lönd mótmælenda og vakti fádæma viðbjóð. Cromwell hinn enski kom á samtökum meðal evangeliskra manna í ýmsum löndum til að mótmæla hryðjuverkum þessum og hann beitti sér fyrir samskotum handa Valdesum. En kvæði Miltons, sem ort var í tilefni of- sóknanna, átti þó hvað mestan þátt í að vekja samúð með málstað Valdesa. Upp- haf þess er á þessa leið: Avenge, o Lord, thy slaugther’d saints whose bones Lie scatter’d on the Alpine mountains cold; Even them who kept thv truth so pure of old, When all our fathers worshipp’d stocks and stones. III. Nú áttu Valdesar friði að fagna um næstu tvo áratugi, þótt auðvitað væri hvorki um trúfrelsi né borgaraleg réttindi að ræða. Þessu friðartimabili má einna helzt likja við lognið á undan storminum. Að áeggjan Lúðvíks 14. Frakkakonungs gaf hertoginn í Savoy út þá fyrirskipun árið 1686, að trú Valdesa — „villutrúin" — skyldi nvi upprætt i eitt skipti fyrir öll, kirkjur þeirra jafnaðar við jörðu, prestar og kennarar sendir í v'itlegð og börn þeirra alin upp í klaustrum eða á heimilum róm- versk kaþólskra manna. Þegar þessi skelfi- legu tíðindi bárust til eyrna mótmælenda i Sviss, þá ákváðu þeir að veita Valdesum landvist, ef hertoginn í Savoy veitti þeim leyfi til að hverfa úr landi, en Valdesar tóku þá djörfu ákvörðun áð hopa hvergi og verja átthaga sína, meðan nokkur maður staíði uppi. Þetta heit sitt staðfestu þeir fyrir augliti Guðs við hátíðlega altaris- göngu á páskum 1686. Þá var hin gamla hetja þeirra, Janavel, í vitlegð, en hinn nýi foringi þeirra var presturinn ILenri Arnaud. Baráttan virtist vonlaus. Fjöldi manns lét litfið, öðrum var varpað í fangelsi eða neyddir til að ganga í rómversk kaþólsku kirkjuna, og sVo virtist sem Valdesakirkj- an væri úr sögunni. Franskur liðsforingi skrifaði heim til sín á þessa leið: „Allir dalimir eru lagðir í eyði, ibúamir fallnir, teknir til fanga eða teknir af lifi“. Litill hópur Valdesa hafði samt dulizt i fjöll- unum, og vildi alls ekki gefast upp og heldur ekki fara úr landi nema trúbræð- ur þeirra, sem fangelsaðir höfðu verið fengju að slást í för með þeim. Veittu þeir her hertogans svó miklar skráveifur, að hann sá sér loks ekki annað fært en að ganga að skilmálum þeirra, til þess að binda endi á þessar sílfelldu róstur. Að- fangadag jóla 1686 var föngunum sleppt, og urðu þeir að fara yfir Alpafjöllin í vetrarsnjónum. Mörg hundruð þeirra dóu Kirkja Valdesa i Torre PelLice, byggS til minning- ar um trufrelsis- og mannréttindaskipunina 1848. á leiðinni af bjargarskorti og kulda, enda illa fyrirkallaðir til fjallaferða vegna slæmrar meðferðar i fangelsunum. Tæp- lega þrjú þúsund Valdesar komust yfir fjöllin til Genfar og var þar tekið með kostum og kynjum. Janavel var einn i hópi þeirra, sem fögnuðu flóttamönnunum við komu þeirra til borgarinnar, en varð sárhrvggur í huga, er hann komst að raun um, að leiíar einar höfðu bjargazt. Valdes- ar dreifðust nú um Sviss og önnur evan- gelisk lönd. Sumir fóru til Þýzkalands eða Hollands og síðar til Ameríku. Héldu þeir lengi tungu sinni og háttum við lýði, en runnu síðar saman við evangeliskar kirkju deildir í viðkomandi löndum. IV. Margir Valdesar, sem setzt höfðu að i Sviss og öðrum nálægari löndum, gátu hvorki gleymt hinni fögru feðra byggð, né sætt sig við þá tilhugsun að bera bein- in annars staðar en þar. Henri Arnaud var staðráðinn í því að fara fyrir þeim, sem sneru aftur lieim, og lagði hann áætl- anir sínar um heimför fyrir Janavel, hinn aldna og þrautreynda foringja Valdesa. Undirbjuggu þeir brottförina með hinni mestu leýnd og stefndu þeim karlmönnum, sem treystust til að leggja í þessa of- didfskuför, til móts við Genfarvatnið hinn 16. ágúst 1689. Janavel gat ekki fylgt löndum sinum og trúbræðrum vegna þess, hve ellimóður hann var orðinn, en kvaddi þá við landamærin og lagði þeim mörg hollráð, enda var enginn jafn kunnugur f jöllunum og hann. Henri Arnaud kaxmaði lið sitt handan landamæranna, og reynd- ist það vera goo manns. Þeir völdu sér erfiðasta fjallaveginn til að forðast óvin- ina, en mættu samt töluverðri mótspyrnu á leiðinni, svo að liðið týndi mjög tölunni. AKRANES 117

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.