Akranes - 01.10.1954, Síða 15

Akranes - 01.10.1954, Síða 15
sundurbrotni unglingur að byggja upp nýtt líf, hlaut kraftaverk að gerast. 1 einverunni leitar Frans að ljósi fram- tíðarinnar. Morgun einn kom hann í birt- ingu í litla kirkju, og heyrði þá prestinn lesa 10. kapitula í Matteusar guðspjalli, 6. vers: „Og á ferðum yðar skuluð þér pré- ■dika og segja. Himnaríki er i nánd. Læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda, ólteypis hafið þér með- tekið, ókeypis skuluð þér af hendi láta. Fáið yður ekki gull né silfur né eirpen- inga í belti yðar, eigi mal til ferðar né tvo kirtla, né skó, né staf, því verður er verkamaðurinn fæðis síns“. Þegar presturinn hafði skýrt þessi orð, sagði Frans glaður: „Þetta er það, sem ég af öllu hjarta óska að breyta eftir“. Fáeinir vinir Frans komu til hans frá Assisi og þeir bjuggu saman í hrörlegu hreysi, og hér hófst sú reynsla, sem átti eftir að hafa mikla þýðingu og mikil bless- un skyldi hljótast af. Frans vildi, að hann og vinir hans skyldu lifa eftir fyrirmynd Jesú í .hvívetna, bæði hugur og verknað- ur skyldi helgaður honum. Sem leiðar- vísi skyldu þeir hafa fjallræðuna skýring- arlaust, eins og skrifað stendur „sine glossa“, eins og Frans var vanur að segja. Það, sem bindur fólk fastast við þessa jörð eru peningar og þess vegna eru hugir þess fullir af hugsunum um jarðneskan auð. Frans hafði snúið baki við öllu þessu, og fyrsta krafa hans til þeirra, sem vildu fylgja honum, var sú, að þeir seldu allar eignir sínar og gæfu andvirðið fátækum. Hörðum höndum áttu þeir að vinna fyrir fátæklegu brauði, og brauð var hið eina, sem þeir máttu taka við af öðrum. Pening- um máttu þeir ekki veita viðtöku. Vinim- ir skildu fullkomlega orð hans um að vinna bug á freistingum og hvötum, þegar þeir sáu hann strá ösku á mat, sem honum fannst sérstaklega girnilegur og þegar holdlegar hvatir héldu fyrir honum svefni að nóttu til, fór hann 'fram úr rúminu og steypti sér í iskalt fljót til þess að kæla girndarhitann. Áður en hann sendi vini sína, 1 o að tölu, i predikanaferð lagði hann þeim á hjarta, að þeir skyldu afneita heim- inum, vinna bug á líkamlegum hvötum og gera líkamann sér undirgefinn. Kæru vinir, þér skuluð boða fagnaðarerindið, erindi friðar og afturhvarfs. Þér skuluð vera þolinmóðir í andstreymi og neyð, blessið þá, sem ofsækja yður, þakkið þeim, sem ofsækja yður og ljúga á yður. Allt skuluð þér þola með lítillátu hjarta. Þér skuluð elska óvini yðar, og slái einhver yður á vinstri vangann þá bjóðið honum þann hægri til höggs. Vilji einhver taka frakkann yðar þá bjóðið honum jakkann líka. Sá, sem vill bjarga lífi sínu skal missa það, en sá, sem vill fórna lífi sínu mín vegna skal bjarga því. Þér skuluð ekki reiðast né fúkyrðast sökum synda Heilagur Frans frá Assisi tálar viS fuglana. — Eftir málverki Giotto, sem var frægur málari. annarra, þvi að reiði og fúkyrði samræm- ast aldrei kærleika kristindómsins. Enginn má kasta steini að syndara og enginn má ha'fa sekt hans i hámæli. Mesta samúð hafði Frans með þeim, sem voru fátækir og umkomulausir, óhamingjusamir eða líkþráir. Sagt var, að hann veitti þeim ásjá, sem sjálfur guð hefði gleymt. Hver, sem til okkar kemur, þjófur eða ræningi, skal vera velkominn og honum skal tekið með góðmennsku og mildi. Lítillæti Frans og háttvisi gerðu það að verkum, að hann lét aldrei freistast til að ávíta aðra né veita niðurlægjandi ráð. Það mun vera ókleift að hjálpa öðrum, ef sá, sem hjálpina skal veita, telur sig bæði vitrari og hamingju- samari en þeir, sem hjálpa skal. Aðeins sá, sem einnig hefur þunft eða þarf á hjálp að halda er fær um að hughreysta, hugga og gleðja. Einhver fegm-sta sagan, sem sögð hefur verið um Frans er sú, þegar hann fer ein- samall upp í fjöll, þar sem hættulegur ræningjaflokkur héfur bækistöð sina. Hann færir ræningjunum góðan mat og vín, á- varpar þá alþýðlega og glaðlega. Á þennan hátt fær hann hrært við því bezta, sem blundar i brjóstum þeirra, þeir breyta um líferni og einn ræninginn gerist meðlimur í bræðralagi Frans. Frakkinn Renau sagði: „Síðan lærisveina Jesú leið, hefur aldrei verið gert annað eins átak til þess að endurnýja kenningu Krists og gera hana að raunveruleika“. Frans bar ekki aðeins i brjósti djúpan og óeigingjaman kærleika til mannanna og þá einkum þeirra, sem óhamingjusam- ir voru, hann var lika mikill dýravinur. Ein fallegasta mynd Giottos af Frans sýnir hann talandi við fuglana. „Bræður min- ir, þér standið í mikilli þakkarskuld við guð, að hami hefur veitt yður fæmina til þess að fljúga hvert sem þér viljið, hann gaf yður fallegu fötin yðar, fæðuna, sem þér fáið fyrirha’fnarlítið og röddina, sem þér getið beitt í fögrum söng. Fyrir allt þetta eigið þér að vera þakklátir og lofa og vegsama guð“. — Þá er sagan tnn úlf- inn, sem drap kindur bóndans og réðst jafnvel á fólk. Frans skarst í leikinn og tamdi úlfinn. Hann var ekki liarður við neinn nema sjálfan sig. Líkama sinn kall- aði hann asna bróður og sagði, að hann ætti að fá lítinn mat en mikinn aga. Hreyfingin breiddist út. Bræðurnir voru sendir í allar áttir til þess að boða evan- geliið, hjálpa og liughreysta, semja frið, slökkva hatur, útrýma öfund úr hugum þeirra, sem höfðu illt i hyggju. Þessir lítilsvirtu bræður fóm víða um lönd sem sendiboðar guðs. Frans lifði á timum krossferðanna, þeg- ar hatrið blossaði og blóðsúthellingar voru daglegt brauð, þjóðir að vestan bárust á banaspjótum við þjóðir að austan. Frans reyndi að koma i veg 'fyrir þessi ósköp með því að boða Múhameðstrúarmönnum kristna trú. Hann tók sér ferð á hendur til landsins helga en brátt ofbuðu honum öll þau grimmdarverk, sem unnin voru í Jesú nafni. Hann náði fundi soldáns og Framhald á siSu 13S. A K R A N E S 123

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.