Akranes - 01.10.1954, Page 16

Akranes - 01.10.1954, Page 16
 ÓLAFUR B. BJÖRNSSON: Frahhland vahnar við vondan dranm komust — Italir. Þeir drukku sem nemur 35 lítrum á hvern fullorðinn mann, eða sem svarar 106 whiskyflöskum. Samsvar- andi tölur: 18 1 í ítaliu, 8,5 1 í Banda- ríkjunum, 5,67 I í Englandi. 1 Frakklandi getur það komið fyrir, að ungbarnið læri að þekkja bragðið af víni áður en það lærir að ganga. Síðan eykst vöxturinn og þorstinn jöfnum höndum. HÉR á landi hefur það lengi þótt hin bezta fallöxi á „ofstækissjónarmið" bindindismanna, og átt að duga til að gera áróður þeirra tortryggilegan, að benda á Frakkland. Víníramleiðslulandið mikla, þar sem aldrei sjáist maður með víni“, þótt svo að segja öll þjóðin noti vin, og bömin drekki það, jafnvel með, eða fyrir móður- mjólkina. Þótt Frakkland hafi lengi verið stór- veldi. Þótt þjóðinni sé margt vel gefið og þar hafi verið barist fyrir frelsi og fram- förum; er eitt víst óhætt að fullyrða, að síðustu áratugi, hafi þar mátt sjá mörg merki hnignunar- og giftuleysis, sem því miður muni eiga djúpar rætur. I þessum efnum nægir að benda á við- horfin til nýlendnanna. Á vaxandi kommúnisma, sem fyrst og fremst á rætur í skilningsskorti fyrir timanlegri velferð þegnanna og frelsi þeim til handa. Það má benda á vafasaman eða rénandi stjórn- málaþroska einstaklinga og almennings, sem Ijósast má marka i hinum róstusömu og óráðnu stjórnmálum og tiðu stjórnar- skiptum i landinu. Þótt ekki sé fleira nefnt, hljóta slík vandkvæði, öfgar og öfugstreymi — með menntaðri stórþjóð — að liggja alllangt að baki, um áratugi eða aldir. Um langa hríð hafa verið mörg veður í lofti í stjómmálum Frakklands, óstöðugt og á hverfanda hveli. Komu þessar veilur og vandkvæði glögglega fram i síðasta stríði, svo og oft frá stríðslokum, og má segja að þar hafi mátt sjá mörg og skýr sjúkdómseinkenni, svo í opinberu lífi sem einstaklinga. Þar sem hér er inn að ræða margra alda stórveldi, áhrifamikið í heims- málunum, hafa þessi vandkvæði og óvissa í stjórnmálum Frakklands haft hinar al- varlegustu og skaðlegustu afleiðingar i sambandi við hina mikilsverðustu samn- inga á alþjóðavettvangi. Mörgum hefur víst dottið i hug undanfarið: Hvort nokk- uð væri hægt að eiga undir svona sundur- þykku ríki, þar sem svo að segja ekki má reiða sig á neitt frá degi til dags. Þar sem kjörnir ráðamenn velta úr sætum símmi að stuttri sttrnd liðinni. Um mörg undanfarin ár hafa ýmsir leiðtogar þjóð- arinnar bent henni á allt. þetta með al- varlegum orðum og tekið djúpt í árinni. Á þessu ári, þegar allt var á hverfanda hveli í málum Frakklands, óánægja og ótal vandkvæði innávið og vantraust útá- við, kom þar fram á sjónarsviðið all fyrir- ferðarmikill forystumaður að nafni Mend- es-France. Honum var mikill vandi á höndum, því að hér var komið í mikið óefni. Hann hefur gengið tvíefldur til verks. Honum voru ljósar veilurnar mörgu og vandkvæðin, hvar rætur þeirra margra lágu, og hvað gera þurfti fyrst og fremst til að rétta við og komast á réttan kjöl. Hann sagði þjóð sinni óspart og opinskátt til syndanna. Mendes-France sagði, að eitt höfuðmein og alvarlegasta vandamál Frakka væri hin ótakmarkaða, geysilega vinnautn frönsku þjóoarinnar, sem færi sívaxandi og ylli með ári hverju vaxandi vandkvæðum, sem hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar á þjóð- lífið allt og þjóðarsálina, á Frakkland í heild. Hann sagði beinlínis að á þessu sviði þybfti að vera um afturhvarl' að ræða og algera stefnubreytingu, ef þjóðin ætti að rétta við og ná á ný stolti sínu og stöðu meðal þjóðanna. Þetta sagði mesti ráðamaður Frakklands nú. Vínlandsins góða, þar sem „enginn sést fullur“, en allir dre'kka, jafnvel börn- in i reifum. Þarna er sagan sögð hispurs- laust, á síðustu stund, útúr neyð, þegar þjóðin sem heild er komin á fremsta hlunn með að tapa virðingu sinni og frelsi, úr- ættast, og berast fyrir vindi vonleysis i vargakjaft ómenningarinnar. Þessi gáfaði maður Frakklands, sein þekkir vel hin alvarlegustu vandamál þjóð - ar sinnar segir, að ein megin nauðsyn Frakka sé að hætta að drekka, að ein- staklingarnir taki sér fram i þessu efni, og að ríkið i heild reisi beinlinis skorður við hinni ógurlegu vínnautn. Þetta eru aðvör- unarorð leiðtoga tugmilljóna þjóðar á ör- lagastund i lífi hennar á því herrans ári 1954- í hinu heimsþekkta tímariti Reader’s Digest, sem hefur hátt á 18. milljón kaup- enda, var fyrir skömmu mjög athyglis- verð grein um áfengismál Frakka. — Er þetta því athyglisverðara, sem ritið er ekkert bindindisrit. — Þar eru aðeins sett- ar fram staðreyndir, sem ómögulegt er að hrekja. Verða hér tekin upp nokkur sýnis- horn a'f hinu alvarlega ástandi í áfengis- málum Frakka: „Árið sem leið drukku Frakkar fimm sinnum meira en þeir, sem næstir þeim Heimabrugg. Það er lögleyft í Frakklandi, og hafa 3 millj. 250 þús. einstaklingar leyfi til að framleiða áfengi úr vínberjum, eplum, sveskjum, perum, sykurrófum og jafnvel þistlum. Vínsölustaðir eru ])ar svo margir, að einn er fyrir hverja 90 ibúa. Árangui - inn af öllu þessu er 22 áfengissjúklingar á hverja 1000 íbúa í Frakklandi. Frakkar eyða yfir 32 milljörðum (32. 000.000.000) króna á ári fyrir áfenga drykki, eða að meðaltali tíunda hlutanum af tekjum hverrar fjölskyldu. Styrkir — Húsnæðisvandamál — Áróður. Áfengisframleiðendur hafa fengið opin- beran styrk til framleiðslunnar, sem svar- ar 800 milljónum kr. á ári. Nákvæmlega sama upphæð var svo klipin af fjárveit- ingu til að styrkja íbúðarhúsbyggingar. En ófullnægjandi húsnæði heima fyrir, er talin ein megin ástæða aukins drykkju- skapar. — Fransmaðúrinn drollar á vín- veitingastofunni eftir vinnutíma heldur en að fara heim til sin. Áfengisáróðurinn er na^stum hið sterk- asta áhrifavald í frönskum stjórnmálum. Bak við hann standa ýfir tvær milljónir vínyrkja, verkamanna og veitingafólks. Á árinu 1953 hefur áfengisáróðurinn t. d. hjálpað til að steypa tveim ríkisstjórnum, er féllu á málum er snerta áfengi. Nýlega hefur þeirri hugmynd, að vín- ið væri mikil auðlind fyrir Frakkland, ver- ið hrundið í franska þinginu sem heila- spuna einum. Vin og sterkir drykkir nema minna en 6% af útflutningi Frakklands. Vingeymar ríkisstjómarinnar eru yfirfull- ir af nálægt 300 milljónum lítra af áfengi, sem ekki gengur út. Frakkland verður að flytja inn matvæli, meðan meira áfengi streymir úr víngörðum og sykurekrum, sem rekin eru með ríkisstyrk. Mjólk í stað áfengis. Þessar tölur ha'fa orðið rikisstjórninni hvatning til að snúast gegn áfengisáróðr- inum. 1 júlí kom Laniel forsætisráðherra fram mikilli tollhækkun á áfenga drykki. Styrkir til vinyrkju voru lækkaðir, og hann lagði til að fénu yrði varið til að Framhald á síSu 140. 124 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.