Akranes - 01.10.1954, Page 27

Akranes - 01.10.1954, Page 27
með skemmtilegum viðræðum og frásögnum um starfið i Guðs ríki, bæði í sjómannastarfimi í Leith og i K.F.U.M. í Reykja- vik. Þegar svo burtfarartiminn kom, vildi Ester litla ékki fara og lét það í ljós á sinm barnslega hátt, og oss hinum eldri var víst svipað innanbrjósts, er vér kvöddum þetta yndislega heimili. •— Séra Schiibeler varð nokkrum árum seinna prestur í fátækra- hverfi utan til í Osló og gat sér mikinn orðstír fyrir sitt dug- mikla og erfiða starf. Hann dó eitthvað mn 1940. — Eftir að Willemoes var lagður a'f stað, höfðum vér ágæta siglingu norður með Skotlandi, og segir ekki af ferðum vorum, þangað til vér komum um kvöld inn í Pentlandsfjörðinn á milli Kataness og Orkneyja, er það allbreytt sund með stríðum strainn- um. Það kvöld, sem vér sigldum þar í gegnum, fengum vér mót- straum og sótsvarta þoku, og tók það því langan tíma að komast í gegnum sundið, sem er 10 km á breidd og 28 km á lengd. Það var mjög einkennileg sigling. Ég hef aldrei á æfi minni heyrt annan eins „koncert“ eins og þá. Fjöldi af skipum voru þar á ferðinni og þeyttu þau þokulúðra sína, hvert í kapp við anmað, með alls konar hljómblæ, og „sírenur“ frá ströndum, frá vitum og duflum, drimuðu undir, svo að úr því varð samfelldur lát- laus gnýr, sem ekki er unnt að lýsa. Einu sinni skaut upp stór- um, svörtum skipsskrokk svo nálægt, að hægt var að grilla í 'hanm gegnum þokuna og um leið og báknið mjakaði sér áfram, rak það upp ámátleg gaul og hvarf svo í þokuna. Ég stóð allan timann niðri á þilfarinu og hlustaði á allan þennan hávaða og hrikalega „hljómleik" með nokkurs konar nautnaræsingi far- þega, sem ekki hefur neina ábyrgðarkennd, en hvort skipstjór- inn og skipsmennirnir hafa skemmt sér og notið hinna marg- vislegu hljómbrigða, skal ég ekkert segja um. — Loksins kom- umst vér út úr þokunni út í hið víða Atlantshaf, og þá fór ég upp að sofa, og er ég vaknaði var ekkert að sjá nema himinn og haf. — Síðan sigldum vér þar sem leiðin lá, unz vér komum til Vestmannaeyja. Þar kvaddi ég skipið og mína kæru vini, því að ég ætlaði að dvelja þar nok'kra daga, var þó í mér þakklætis- og saknaðarkennd, því að ég var búinn að fá heimilistilfinningu á Willemoes eftir þessa ágætu ferð, sem öll hafði verið eitt fagurt ævintýri, sem ég var þakklátur Guði og skipstjóranum fyrir. Um leið og ég var kominn upp í fjöruna, beið mín mikil gleði. Ungur maður vindur sér að mér með umföðmun og innilegum kossi. Varð ég ekki litið undrandi, er ég þekkti þar fermingar- son minn frá Winnipeg, Gretti Ásmundsson, sem ég hafði ékki séð síðan haustið 1915. Varð þar fagnaðarfundur með okkur og pabba hans, sem ávallt hafði verið mér vinur-í dvöl minni vestan hafs. Þetta var mér óvænt gleði, sem ég bý að enn í dag; það fer um mig eins og hlýr straumur, þegar mér dettur í hug þessi gleðistund í fjörunni í Vestmannaeyjum. Því miður varaði hún stutta stund, því að þeir feðgarnir fóru út í Willemoes á leið til Reykjavíkur, en ég held, að ég verði í þessu sambandi að minn- ast á álika gleði, sem barst mér nú í sumar (1952, 28 árum eftir að ég hitti Gretti Ásmundsson Jóhannsson). Þá hitti ég á Akur- eyri nafna hans, Gretti Eggertsson frá Winnipeg, sem eirmig ávallt hefur verið mér kær minning frá Winnipegdvöl minni. Hann var þá nokkru yngri en nafni hans. Ég varð glaður að mæta sömu vináttu og hlýju hjá honum, eins og nafna hans. — Og voru þó í sumar, er ég hitti hann á Akureyri, liðin 37 ár frá samfundi okkar í Winnipeg. Það er stór þáttur í lífshamingju minni, hve margir, já næstum óteljandi drengir og unglingar, sem ég hef kynnzt á vegferð minni hér heima, í Vesturheimi og í Danmörk, hafa um áratugi haldið tryggð og vináttu við mig allt fram að þessum tíma. — Það yrði stór syrpa, ef ég ætti og gæti skrifað upp aðeins nafnaregistur yfir þá. Guð blessi þá alla, hvar sem þeir eru. — Þetta er nú útúrdúr, sem þeir er þetta kynnu að lesa, verða að afsaka. — Nú sný ég mér aftur niður í fjöruna í Vestmannaeyjum i júní 1924 og held svo sögu minni áfram. Willemoes hafði lagzt fyrir utan Eiðið, og þar kom ég í land; síðan hélt ég yfir Eiðið inn til bæjarins í fylgd með Steini klæðskera Sigurðssyni, sem kom að sækja mig. Varð xnikill fagnaðarfundur, er ég kom heim til þeirra Steins og Kristinar, systur minnar, og sá allan barna- hópinn þeirra, Friðrik, Ásmund, Sigurð, Jóhannes og þann yngsta, sem nýlega var 'fæddur, og dæturnar, Guðrúnu, önnu og Auði, ein dóttirin, Margrét, var dáin. Alltaf þótti mér gaman að koma til Vestmannaeyja, meðan þau bjuggu þar, Kristín systir mín og Steinn mágur minn. Hann lét sér engu síður annt um að gjöra mér allt til yndis, meðan ég dvaldi þar. Það hefur stundum verið sagt, að köld væri mága- ástin, en ekki þurfti ég af því að segja, því að Steinn hefði ekki getað reynzt mér betur, þótt við hefðum verið skilgetnir bræður, enda var hann ágætismaður og vel virtur a*f öllum, sem þekktu hann, vandaður og vel kristinn maður. — Á heimili þeirra varð óg brátt sem heima. — Á öðrum degi eða svo kallaði ég saman drengi og hélt með þeim fundi og smá- samkomur, og hugðist ég með þvi imdirbúa K.F.U.M. i Eyjum. Samt hrapaði ég að engu, en ákvað að koma aftur um haustið til frekari aðgjörða. Ég þóttist vera vel birgur af hjálparmönn- um, er til þess kæmi, að af félagssmyndun yrði. Því fyrir utan Stein mág minn var um þær mundir í Vestmanneyjum Páll læknir Kolka og Björg Guðmundsdóttir, kona hans, en þau voru áhugamikil um kristilegt starf frá Reykjavík. Eins og sjá má á „Starfsárunum“‘, I. bindi, var Páll einn af mínum beztu og kærustu drengjum á skóladögum hans í Reykjavík, og Björg hafði verið frá fyrstu byrjun í K.F.U.K. Hvar sem þau hafa verið, hefur heimili þeirra verið mér sem mitt heimili væri. — Þá ber mér að geta um einn vin, sem ég átti þá í Vestmanna- eyjum. Það var minn kæri bekkjarbróðir frá 1886—1889, séra Jes Gíslason, og var frá þeim skólaárum okkar rótgróin velvild okkar á milli. Mér var mikil gleði að heimsækja hann, ekki aðeins sakir fornrar vináttu, heldur og af því, að hann var svo skemmtilegur og ljúfur, og átti ég þar margar unaðsstundir hjá þeim hjónunum. Það dró nú heldur ekki úr unaðinmn, að séra Jes átti son, sem hét Friðrik, ekki heitinn í höfuðið á mér, en samt nafni minn, og var hann mér mjög ástúðlegur og kær. Enn á ég eftir einn ótalinn af þeim, sem gjörðu mér þessa Vestmannaeyjadvöl mína svo hugfangandi, að mér fannst hún bera af Lundúnaverunni. Það var og skólabróðir minn, Halldór Gunnlaugsson, héraðslæknir. Hann var í 2. bekk latínuskólans er ég var í 6. bekk, og var ég nokkurs konar heiðursfélagi í 2. bekk þann vetur. Ég hef áður minnzt á hann í „Undirbúnings- árum“ minum bls. 227. Ég var heimagangur hjá honum þessa daga, og staðfestist þá vinátta okkar. Það var prýðisheimili, og frúin stórmenntuð kona, en synir þeirra efnilegir og skemmti- legir drengir. Stendur þessi Vestmannaeyjadvöl mín fyrir mér sem samfelldir sólskinsdagar; en hvort það var sólskinið ytra eða innra, eða þá hvort tveggja, er mér ekki fyllilega ljóst, en tíminn leið allt of fljótt, og ég varð að fara í byrjun júlí. Hlakk- aði ég mjög til að koma heim, þvi að ég vissi, að í júlí var ráð- gert að fara í vikudvöl með drengi upp í Vatnaskóg. — Var í mér undarlegt sambland af tilhlökun eftirvæntingarinnar og nokkurs konar glímuhrolli við að hugsa til þessa nýja ævintýris, sem leggja átti út í. Svo kom ég glaður heim úr þessari elleftu utanför minni, og var mér vel fagnað að vanda. AKRANES 135

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.