Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 4

Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 4
sögunnar. Konungur leggur undir sig lön-d og lausafé í ótrúlega rikum mæli og skipar hér öllu að vild sinni. Þegnar hans og hagsmunaklíkur heimafyrir, sjá hér marg- víslega leik á borði um gróða, völd og vegtyllur, og allt stefnir beina leið að einu marki, hinni alræmdu einokun verzlunar- innar árið 1602. Einokunin segir fljótt til sín á tvo vegu, þar sem erlend vara hækkar stórlega í verði, en innlendar framleiðsluvörur lækka að sama skapi. Refsingar eru lagðar við verzlun við erlenda menn, en hagur ein- staklinga og þjóðar rýrnar nú stórlega og viðnámsþróttur gegn ofríki og kúgun þverr. Það má gera sér í hugarlund hver áhrif þetta hefur haft á hag landsmanna, þar sem það, sem inn var flutt, hækkaði stórlega í verði, en stóraukin útflutnings- verðmæti þeirra lækkuðu, en til að kóróna svo allt saman fór hagnaðurinn af verzl- uninni allur á erlendar hendur. Landsmenn líta upp. Þegar langt er komið fram á 18. öld fara ýmsir að rumska. M. a.-stjórnin, sem vaknar við vondan draum og þykir tekj- urnar orðnar litlar af landinu. Þá erum við svo heppnir, að nokkrir mikilhæfir landar skipa ýmsar mikilvægar stjómar- stöður, bæði hér heima og í Kaupmanna- höfn. Það verður meira samspil og skiln- ingur milli þessara aðila heima og heim- an. Ýmsir mikilhæfir fremdarmenn sjá nú, hve allt er hér illa komið, og á fyrst og fremst rætur sinar að rekja til verzl- unaránauðarinnar beint eða óbeint. Marg- ir þessara manna berjast hraustlega fyrir bættri verzlun og telja algert frelsi þar fyr - ir öllu. Samhliða þessu dynja svo yfir þjóð- ina enn aðrar hörmungar, svo sem Móðu- harðindin, þar sem tugir þúsunda manna og fénaðar horféll, enda mun sjaldan eða aldrei hafa verið hér ömurlegra yfir að líta en fyrir aldamótin 1800. Til hinna skeleggu frumherja verzlunarfrelsisins má telja þessa miklu og mikilhæfu menn: Skúla Magnússon, Magnús Stephensen og Jón Eiriksson, sem í konungsgarði var útvörður landsins um þetta leyti, en svo mæddur af árangurslitlu erfiði fyrir verzl- tmarfrelsi og viðreisn landsins, að hann beinlínis styttir sér aldur. Afleiðingin af allri þessari baráttu hinna hugdjörfu manna, varð þó til þess að fyrsta skrefið til verzlunarfrelsis var stigið, er verzlunin var gefin frjáls við þegna Danakonungs 1787. ísinn var brotinn. Með afnámi hinnar algeru einokunar 1787 var stórt spor stigið í rétta átt, enda sagði það fljótt til sín og hefði þó gert það enn hraðar og betur, ef þar ‘hefðu ekki Magnús Stephensen, konferensrnt). K____________________________________2 komið annarleg öfl til, sem fslendingum voru óviðráðanleg. Það voru Napóleons- styrjaldirnar, er orsökuðu siglingateppu til fslands. Á þeim erfiðu tímum var Magnús Stephensen landinu betri en eng- inn, eins og oft áður, fyrr og síðar, er hann raunverulega upphóf siglingateppuna með samningum við Englendinga, og kom hing- að vörum á síðustu stundu, er þeirra var orðin mikil þörf. Barátta Magnúsar í veral- unarmálunum var áratuga löng. Árið 1816 lagði hann fram tillögur um að verzlun- in verði gefin frjáls við allar þjóðir Norð- urálfu, og að íslendingar verði sérstaklega styrktir til verzlunar. Þegar eftir 1787 hyggja nokkrir fram- takssamir íslendingar á að faíra verzl- unina inn í landið og draga hana smátt og smátt úr höndum Dana. Var það þó eng- inn leikur eins og á stóð. Danir höfðu að- stöðuna, íslendingana vantaði bæði efni og kunnáttu á þessum nýja vettvangi, en þar að auki áttu þeir visan fjandskap danskra verzlana og kaupsýslumanna, sem fannst frá sér tekin bæði gróðavon, áunn- in eða sjálfsögð réttindi til þess að reka einir alla verzlun á fslandi. Þegar eftir lausn hinna mestu fjötra í verzluninni mátti sjá batamerki í hækk- uðu afurðaverði. Og eins og áður er sagt fóru íslendingar sjálfir að hugsa til verzl- unarreksturs. Einn þeirra fyrstu, og sem marka nokkur veruleg spor á þeirra braut, var Bjami Sivertsen í Hafnarfirði. Hinar föstu dönsku verzlanir ömuðust auðvitað við hinum innlendu kaupmönnum, og einnig lausakaupmönnum, sem hingað vildu sigla. Fram um 1830, er því frjáls verzlun við alla þegna Danakonvmgs frem- ur í orði en á borði. Eftir það fer verzl- unin hins vegar batnandi, þvi að þá er lausakaupmönnum leyft að sigla til lands- in; og verzla þar sem þeim sýnist. Sá, sem fór með fullan sigur af hólmi. Eftir 1830 koma nýir vaskir menn til sögunnar. Þeir hafa eldmóðinn í hjarta og framtíðina fyrir sér, en byggja traust- iega á þeim grunni, sem fyrir var, og sækja langt til nýrra og gamalla sögulegra skjal- festra raka. Fjölnismenn koma fram á sviðið með foringjann mikla að fararstjóra og málflutningsmanni. Þeir sameinuðust sem einn maður um kröfur Magnúsar Stephensens, og eru þegar bornar fram á hinu endurreista alþingi, en margvíslega verið unnið að undirbúningi málsins áð- ur. Þar átti og Jón Sigurðsson góðan liðs- mann og mikilsmetinn, þar sem var tengdasonur Magnúsar Stephensen og bróðursonur hans, Hannes prófastur Step- hensen á Ytra-Hólmi, sem var fyrsti þing- maður Borgfirðinga, eftir að Alþingi var endurreist, en Hannes varð einnig fræg- ur af skeleggri baráttu sinni fyrir hinum sögulega Þjóðfundi 1851, þar sem hann var einn af þremur, er sagt var að dansk- ir dátar ættu að skjóta, ef í hart færi. Siðan er þetta linnulaus barátta hjá Jóni Sigurðssyni, er endar með algerum sigri, er lögin um siglingar og verzlun á Islandi eru undirrituð af konungi 15- april 1854, og tóku gildi hinn 1. apríl 1855. Eitt hundrað ár eru liðin. Samkv. þessum lögum var öllum frjálst að verzla við Islendinga og þeim jafnfrjálst að verzla við aðrar þjóðir. Að dómi allra þeirra, er að unnu, var þetta fyrsta skil- yrðið fyrir því að landsmenn gætu notið hinna hagstæðustu verzlunarkjara á hverj- um tíma, hvort sem um væri að ræða kaup á erlendum varningi eða sölu á framleiðslu landsmanna. Þrátt fyrir þennan algera sigur i verzlunarbaráttunni, átti það aö vonum langt í land að verzlunin yrði algerlega innlend, og lengi var utanríkis- verzlimin að mestu eða öllu leyti í hönd- um Dana. Smátt og smátt verða Islend- ingar þó aðsópsmeiri í verzluninni. Sum- um þeirra var ljóst að ekki væri úr vegi að leita viðskiptasambanda við fleiri þjóðir en Dani. Þeir töldu, sem rétt var, að það væri stórt spor i þá átt að draga úr of miklum áhrifum og hagsmunum Dana af verzluninni. Til þessa skilnings má t. d. vafalaust rekja viðleitni Þorláks Ö. John- sons til að ná verzlunarsamböndum við Englendinga, en Þorlák má telja einn af frumherjtmum í íslenzkri verzlunarstétt, og einn af þeim, sem gerðu garðinn fræg- an. Fleiri merrn mætti nefna í þessu sam- bandí, svo sem Geir Zoega, Ásgeir Sig- AKRANES 40

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.