Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 10

Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 10
ÓLAFUR B. BJÖRNSSON: Nr fékh morgur sigg í lófo — Önnur grein — Enn erum við í Leirunni. MARGIR góðir menn hafa búið í Leir- unni, þótt fæstra þeirra verði hér getið, né saga þeirra rakin. Árið 1644 virðist búa þar Páll Jónsson er mun hafa verið bróðir þess ágæta manns, Þorleifs Jónssonar bónda á Hvals- nesi, sem var mikii hjálparhella Hallgríms Pétin'ssonar á kvalaárum hans í Hvalsnes- sókn. Hefur Hallgrimur sjálfsagt haft mik- ið skjól af Þorleifi, er oflátungar og em- bættismannastórbokkar þar syðra, gerðu honum allt til skapraunar og bölvunar. Á Stóra-Hólmi bjó um 1700 Árni Ja- kobsson, er verið mun hafa sonur Jakobs Helgasonar á Þorkötlustöðum í Grindavík. En systir hans mun hafa verið Kristín í Njarðvík. Þar bjó einnig fyrir miðja 19. öld Ásgrímur Símonarson, bróðir Gisla kaupmanns Símonarsonar, sem rak verzl- un víða. Þeir voru synir Símonar Jóns- sonar i Málmey í Skagafirði og konu hans Margrétar Guðmimdsdóttur Gamalíelsson- ar. Árni andaðist 1847. Árið 1880 gerir síra Sigurður B. Sivert- sen á Otskálum nokkra grein fyrir bú- endum í Leirunni. Þar nefnir hann eftir- farandi persónur: Ekkjuna Kristínu Magn úsdóttur í Melbæ, er hann kallar kvenskör- ung, ráðdeildarsama, greinda og góðgjarna. Á Hrúðurnesi neðra, býr þá Ámi Helga- son ekkill. „Hugvitssamur, vandvirkur, ágætur smiður og einhver hinn mesti iðju- og erfiðismaður, hreinlyndur og ráðvand- ur og guðhræddur en óhraustur. Enginn hefur gjört aðrar eins jarðabætiur og hann, og geta menn séð hans prýðilega frágang á öllu, sem hann leggur hönd á. Hann er greiðamaður og öllum hinn hjálp- arbezti. Föðurætt hans er Moldnúpsættin, en móðurfaðir hans var Ámi Egilsson á Dufþekju, Eldjáms á tJtskálum. I Ráðagerðí býr Gísli Halldórsson, hef- ur hann keypt jörð sina og er mesti áhuga- og atorkumaður, hefur mjög bætt jörðina. er heppinn til sjávar, bráður er hann í skapi, en þó vænn drengur. (Um þennan ágæta mann Gísla Halldórsson, hefur Tryggvi Ófeigsson farið um hann svo- felldum orðum í min eyru: Gisli er einn af merkustu mönnum er ég hefi þekkt. Orðlagður dugnaðarmaður og kappsamur, 46 heppinn formaður og afburða ræðari. Hann var kvæntur stórgáfaðri konu, Elsu Dóró- theu Jónsdóttur. Þau voru foreldrar Is- leifs Gislasonar skálds á Sauðárkróki. Ann- ar sonur þeirra var Guðjón, afburða bjarg- maður, þótt honum yrði hált á því. Það var einu sinni á annan í hvitasunnu, er Guðjón var unglingsmaður, að hann fór í Hólmsberg eftir eggjum og fugli. Hann hrapaði þá og komst við illan leik upp á bjargbrúnina en fótbrotinn, og hafði staurfót jafnan síðan. Guðjón var þekktur kraftamaður og hið mesta snar- menni, þótt svona færi fyrir honum. Guð- jón þessi drukknaði af báti frá Litla-Hólmi við þriðja mann, 12. maí, 1910, í útnyrð- ingsrudda- Hinir tveir, sem fórust, voru: Jóram Jónsson, formaður, frá Litla-Hólms- koti, og Ámi Jónsson, vinnumaður, frá Litla-Hólmi. Dóttir Elsu og Gísla var einnig Dóróthea, sem giftist Þorleifi Þor- steinssyni frá Þórukoti í Njarðvíkum. Þor- leifur var lengi formaður á Suðurnesjum, þekktur sjósóknari og aflamaður. Hann var einnig formaður á Búðum á Snæfells- nesi og bjó jafnframt í Hólkoti, nálægt Búðum. Systir Gísla Halldórssonar var Vilborg í ívarshúsum í Garði, en hún var móðir Kristjönu, konu Halldórs í Vörum. I árslok 1898 voru 173 manns i Leirunni, en nú eru þar aðeins ). Á Stórahólmi býr Vilhjálmur Sigurðs- son. Hann er atorkumaður, en mikið farið aftur frá því að hann bjó eystra. Hann hefur komið hér upp góðum fjárstofni. Sonin- hans, sem nokkur ár hefur verið i siglingum, er nú sagt að sé seztur að i Englandi. Heitir hann Sigurður. (Vil- hjálmur á Stóra-Hólmi var faðir Jóhanns i Kötluhóli. Jóhann rar hinn mesti mynd- armaður eins og hann átti kyn til. Það var einnig kona hans, Margrét Steinsdóttir, frá Stóru-Gröf í Skagafirði. Hiin var móður- systir Margeirs fræðimanns á ögmundar- stöðum). Á Litlahólmi býr Halldór Halldórsson. Hann er geðspakur maður og hægferð- ugur, en lítt hefur honum búnast, svo að hann neyddist til að selja hálfa jörð, sem hann átti í sveit og hana góða, og mun þó varla heita að hann eigi þessa jörð, sem hann nú býr á. Kona hans er Guð- björg, dóttir Sigurðar smiðs Helgasonar. Á Gufuskálum býr meðhjálpari Pétur Jónsson. Kalla má hann sómamann. I 30 ár hefur hann verið djákni og forsöngvari Búhagur hans hefur oft verið erfiður, og hefur þó oft orðið talsverður afli, og jörð þessi með þeim betri, svo að hanu hefur haldið á henni fjórum kúm. Upp komin eru þrjú böm þeirra og sonur hans, Gísli, mannvænlegur og heppinn til sjáv- ar. í Leirunni voru við árslok (1880) 154 menn“. En voru 1874 um 200. Einn af öndvegisbændum í Leirunni um langa hríð var Eiríkur Torfason i Bakkakoti. Hann var fæddur að Hóli í Norðurárdal 31. ágúst 1859. Foreldrar hans voru: Torfi Tímóteusson frá Glitsstöð- um í sömu sveit, og kona hans Guðríður Guttormsdóttir, alinn upp hjá síra Guð- laugi Sveinbjarnarsyni í Hvammi í Norð- urárdal. Eirikur átti 11 systkini, og er hann ehin þeirra á lífi. Eitt þeirra var Guðlaugur Torfason, kunnur skipasmiður í Reykja- vík. Þótt um sveitamenn væri að ræða, voru þeir snemma sendir til sjóróðra. Þann- ig var Eirikur aðeins á 15. ári er hann var sendur til sjóróðra á Akranes. Réri hann þá frá Bakkabæ, með Gunnari, föður Guðmundar á Steinsstöðum og þeirra bræðra. Næsta ár fór hann til róðra suður á Vatnsleysuströnd, og var þá í rauninni alfarinn að heiman. Þegar hann var 31 árs, kvæntist hann heitmey sinni, Sigríði Stefánsdóttur, bónda á Vatnsleysu. Þau byrjuðu búskap í Bakkakoti í Leiru, og bjuggu þar til 1928, er þau fluttu til Reykjavíkur og byggðu laglegt hús við Bárugötu. Þegar Eiríkur settist að í Leirunni. fannst honum þar svo mikil fátæktin, að fólk hefði með herkjum ofan í sig. Þá var róið á vertíðum, en ekki mikið í annari tíma, jafnvel þótt fiskur væri. Þótti Eiríki það undarlegt, því fremur sem jarðrækt og búskapur var þarna næsta lítill. Að vísu gekk fiskur misjafnlega mikið á grunn, og oft var erfitt með beitu. Eiginlega þekktist ekki önnur beita en kræklingur, sem eingöngu var sóttur í Hvalfjörð á ýmsa staði. Bezt þótti beita á Söndunum sagði Eiríkur. Strax er hann kom að Bakka- koti tók hann upp róðra á hvaða tíma sem var þegar gaf, og einhverjar annir ekki hömluðu. Vildi það svo vel til, að á annari vertíð sinni hlóð hann dag eftir dag. Dró það ekki úr róðrum, og fóru fleiri á eftir. Eins og áður er sagt, gekk fiskur mis- mikið og misjafnlega grunnt. Alltaf, eðn oftast, virtist Eiríki vera fiskur í Garð- sjónum. Að sækja þangað, var vitanlega nokkuð langt, en menn settu það ekki fyrir sig, þótt stundum yrði lengi að berja eða krusa. Þannig segir Eiríkur, að AKRANES

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.