Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 17

Akranes - 01.04.1955, Qupperneq 17
dætrum þeirra, Ingibjörgu og Viktoríu. Þetta ár er þar enn hið sama fólk og hið fyrra árið. Jónas Theódór Sigurgeirsson er f. í Miðvogi 27. desember 1889. sonur Sigur- geirs Guðmundssonar og konu hans Ingi- bjargar Stefánsdóttur. Hún var hálfsystir Eyjólfs Stefánssonar frá Dröngum á Skóg- arströnd, þess er gaf fyrir skömmu út æviminningar sínar og kallaði „Kaldur á köflum“. Sigurgeir var hins vegar ættaður vestan úr Dölum, og var albróðir Krist- jáns heitins á Höfðanum, Guðmundar á Indriðastöðum í Skorradal og þeirra syst- kina. Sigurgeirs og barna hans verður nán- ar getið í sambandi við Geirastaði, er hann b)rggði hér. Jónas hefur gert húsi sínu mikið til góða, lagt í það miðstöð, rafmagn og lagað kjall arann mikið. Þau hjónin hafa og lagt mikla vinnu í umhirðu á lóðinni umhverfis hús- ið, svo og trjá- og blómagarð þótt þar sé erfitt um vik, m. a. vegna ryks af göt- unni. Frá unglingsárum hefur Jónas stundað sjó, fyrst lengi á skútum, á opnum skip- um og á mótorbátum. Árið 1914 byrjaði hann formennsku á m.b. Óðni, er þeir áttu þá Loftur Loftsson og Þórður Ás- mundsson. Hann var einnig með m.b. Eld- ingu fyrir Halldór Jónsson og m.b. Vík- ing og Egil Skallagrimsson fyrir Harald Böðvarsson. Jónas var afburðaduglegur maður, vinnuglaður og fylginn sér, en fyrir rúm- um tveimur árum fékk hann allt í einu svo alvarlega hjartabilun, að hann getur ekki að heiman farið, og ekki gengið eftir sléttri götunni, án þess að taka inn meðul áður. Þetta er hinum mikla þrekmanni mikil raun, þar sem allur hugur stendur til að vinna fyrir sér meðan lífið endist, en ekki tjáir mn að sakast. Það versta er, að slíkum mönnum, sem Jónasi, hættii' um of við að vinna án þess að geta það raunverulega. Sérstaklega slikum mönn- um sem ekki kunna að hlifa sér, þyrfti endilega að sjá fyrir hæfilegum verkefn- um eftir þvi sem mögulegt væri. Þetta þyrfti að athuga miklu betur en gert er, sérstaklega i hinum fjölmennari, vax- c.ndi bæjum, þar sem náin kynning drukknar í hinum vaxandi mannfjölda. Hér í bæ eru nokkrir algerir öryrkjar, sem fá mánaðarlega frá tryggingunum rúmar 500 kr. á mánuði, en þetta segir auðvitað ekki neitt til að lifa af. Hjá Jónasi er þetta t. d. sem næst fyrir kolum lil að kynda húsið að vetrarlagi. t Vinaminni er auðsæ mikil snyrti- mennska utanhúss og innan. Börn þeirra Jónasar og Helgu eru: 1. Ingibjörg, gift Sveini Guðmundssyni frá Kúludalsá. Þau eiga heima ó Skaga- braut 7. Þeirra börn: Framhald á siSu 69 CuiHHir Dul; Tröllið 09 dvergurinn Að sannleikans húsi er langur og villugjarn vegur, vegur, sem hrislast um lýginnar göldrótta skóg, sem pílagrím margan að paradis heimskingjans dregur, 1 paradís þessari tröllið og dvergurinn bjó. 1 heimsókn til sannleikans réðust þeir rauðum á degi. Risinn tók dverginn og bar hann á stálöxlum tveim dagleiðir margar i ófajrð á áttlausum vegi, þvi erfið er för sú að komast til sannleikans heim! Og risinn varð seinstígur: Megin og minni hans þrýtur, hann myrkur og lotinn um villustíg skógarins 'fer, svefnlaust og rökkvað er augað, og andi hans hrýtur, en ánægða forsjón á langþreyttum herðunum ber. Þar ígrundar dvergurinn trúmál og tilveru sína, tilgang og eðli þess lifs, sem í skóginum býr. Um siðspeki og stjórnvizku ljós sitt þar lætur hann skína, er leið sina risinn að hibýlum sannleikans snýr. Svo mælir dvergurinn: „Stjörnurnar vísa oss veginn að veröldum guðanna handan við skógarins þröng, og að paradís andans mér pilagrím vizkunnar lýsa“. — „E-pú“, sagði tröllið, „sú för verður mér nokkuð löng!“ Dvergurinn mælir: — „Vort jarðlíf er barátta og byrði, sem bera vér þurfum um skóginn að áfangastað. Sú fórn er það mesta og eina, sem einhvers er virði“. ..Á“ — sagði tröllið —. ..Hu, fórnin? — Já, laukrétt er það!“ „Þægur og hlýðinn og auðmjúkur áttu að vera, óttastu drottin og vinn fyrir náunga þinn. Með hógværð og stillingu byrðina þína skalt bera“. — ,.Bö-hum“, — sagði tröllið, og lagfærði hiisbónda sinn. Þá mælti dvergurinn: „Ólíkir erum vér bræður! Frá upphafi taldist ég fremri og voldugri þér. — Sá veiki skal þjóna og hlýða þeim ríka, sem ræður“ — „Rétt“, sagði tröllið, „að þjóna var áskapað mér. En er þetta ekki húsið?“ „Ei sé ég þá sjónvillu þina. Hinn svartasti galdur þig blekkir — og förum þar hjá“. Dvergurinn innir. -— Svo ræddi hann við samvizku sína um siðspeki þeirra, er drottna h»r jörð vorri á: „Einn er hér hamar!“ („Já, slikvtr pr stórmenna siður!“) „Steðji er annar!“ („Já, — þú gerist höfðingi hér og með valdhafans drambi og hofmóði horfirðu niður úr hásæti slíku á þann, sem á öxlum þig ber!“) „Sá sterki á réttinn!“ („Vei, líf þitt er loddarans flótti um lýginnar myrkviði reikarðu veginum frá“.) — Hví flý ég þá húsið?“ („I leynum þig lýstur sá ótti að lítill þar yrðirðu gólffjölum sannleikans á!“) I akranes 53

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.