Akranes - 01.04.1955, Page 21

Akranes - 01.04.1955, Page 21
Síðasta veturinn, sem ég var í Flensborg, stofnuðum við skólapiltar leikfélag og lékum þami vetur tvo sjónleiki, er báðir voru þýddir úr erlendum málirm. Aðsókn var góð og einnig við- tökur, svo að nokkur afgangur varð af leiksýningum. Seinna um veturinn var á fundi skólapilta samþykkt tillaga um að fénu, er afgangs varð kostnaði, skyldi varið til styrktar efna- litlum nemendum, er nám stunduðu við skólann. Þetta voru frumdrög að stofnun Nemendasjóðs Flensborgarskólans. VII. Ég gerist kennari — Tónlistin bærir á sér. Næstu veturna tvo var ég farkennari í Villingaholtshreppi. Kennslustarfið féll mér vel; börnin voru siðprúð og mörg vel greind, en aðbúnaður var slæmur, engin upphituai á veru- staðnum og því mjög kalt, og áhaldalaust var með öllu, og háði það kennslunni nokkuð. Fyrri veturinn kenndi ég á níu bæjum, en á fimm hin síð- ari. Stundum fór kennslan fram í baðstofunni, þar sem fólkið sat að vinnu sinni. Vorin 1904—1905, var ég við jarðarbætur í Brautarholti á Kjalarnesi. Seinna vorið fór ég sunnudag einn til kirkju að Saur- bæ. Organistinn, Andrés Ölafsson, söng og spilaði þar, m. a. gullfallegt lag, er hreif huga minn, og minntist ég þess, er faðir minn og síðar bræður hans, höfðu oft farið með það í Stokkseyrarkirkju, á æskuárum mínum. Á heimleiðinni fór ég að hugsa um það, hve gaman væri að geta leikið á hljóðfæri og tók þá ákvörðun um að 'hefja nám í orgelspili, þótt seint væri og öll skilyrði til þess óhagstæð, því að erfiðisvinnu varð ég að stunda vor og sumar og kennslu á vetrum, er stóð yfir allan daginn. Övíða voru hljóðfæri á bæjum til iðkana, lagði ég þó út á þessa braut 25 ára gamall, en hafði skömmu áður aðeins lært að þekkja nótumar. Seinni veturinn, sem ég kenndi í Villingaholtshreppi, ból- aði nokkuð á óánægju meðal bænda út af kostnaði, er leiddi af veru minni þar. Mér leiddist þetta og réðst þá kennari og organisti í Gaulverjarbæjarhrepp, fyrir milligöngu sóknarprests- ins, sér Einars Pálssonar. Var ég næsta illa búinn undir org- anleikarastarfið, þótt aðeins sé miðað við þær kröfur, er þá voru gerðar til slíkra starfa. Þegar lokið var kennslu þennan síðari vetur, fékk ég skjal undirritað af bændum Villingaholtshrepps, þar sem þeir skor- uðu á mig að vera kyrran og buðust til að hækka kennslukaupið. að verulegum mun og buðu mér auk þess ýmiss þægindi, er ég hafði eigi áður notið. Ekki var hægt að sinna tilmælum þessum, þar sem ég var fastráðinn annars staðar, en jafn- an ber að minnast hinnar góðu viðurkenningar, sem mér var með þessu sýnd. í Bæjarhreppnum kenndi ég í tvo vetur. Til þess að kom- ast í nánari kynni við tónlistina, varð ég að fá mér þægilegri lífsstöðu. — Þetta tókst. — Næsta haust, árið 1908, fékk ég kennarastöðu við barnaskólann í Hafnarfirði og einnig tíma- kennslu í söng við Flensborgarskólann. Oft hef ég farið utan, eftir komu mína til Hafnarfjarðar og hlotið tilsögn í ýmsum greinum tónlistar, hjá góðum kenn- urum. Vera mín í Kaupmannahöfn, eins og víðar erlendis, var mér til mikils gagns og ánægju. Heim kom ég frá Höfn rétt fyrir jólin 1913 og kvæntist þá Guðlaugu Pétursdóttur frá Grund í Skorradal. Frá 1908 hef ég fengist við ýmiss konar kennslustörf hér í bæ, mest söngkennslu. Kenndi söng við báða skólanna lengi vel, stjórnaði söngflokkum, árum saman eða þar til heilsan bilaði. Einnig kenndi ég nokkuð á hljóðfæri og hef auk þess haft á hendi organleikarastörf Lengi ])jáðist ég af illkynjaðri liðagigt, en vamn þó alltaf að kennslustörfum, en það háði mjög starfsemi minni. Þetta skánaði þó síðar. Að ýmsu leyti var það óheppilegt, að ég skyldi velja mér söngkennslu að lífsstarfi. Auk heilsubilunar, hef ég alltaf verið sérlundaður, lítill félagsmaður, og um of hneigður fyrir ýmiss konar fræðagrúsk, er þessum störfum eru óskyld og aldrei hefur komið mér eða öðrum að nokkru gagni, svo teljandi sé. VIII. Trú og tilgátur. Oft er talað um, að nú sé litlu trúað hjá því sem áður var, og er ýmsu um kennt.Áður var kirkjan svo að segja einvöld um skoðanir almennings í trúarefnum, en nú er öldin önnur. Mörg félög og stofnamir hafa risið upp á síðari tímum, með alls konar fræðslu, er eigi getur talist í samra'mi við kenningar þær, er kirkjan hefur flutt mönnum. Innan kirkjunnar sjálfrar hefur einnig skotið upp ýmsum skoðunum, er eigi varð vart áður, og hefur sumt af þessu ekki orðið til þess að laða leitandi sálir að trúar- og kristindómsmálum. Sé vitnað í hin fornu trúar sann- indi, koma fræðimennirnir brátt á vettvang með nútima vísindin og segja, að þau samrýmist ekki kenningu kirkjunnar. Af öllu þessu er það bersýnilegt, að margur mútimamaður lætur sig trúmálin litlu skipta. Allir vita þó, að lífsfýsnin er mikils máttug, einnig í trúarefnum, en hvar eru bjargráðin? Skrifað stendur: „Leitið, og þá munuð þér finna“. En hvar á að leita? 1 lífinu sjálfu, náttúrunni. I mannúð og réttlæti. Biblían skýrir frá því að Jesús frá Nazaret, höfundur trú- ar vorrar, hafi verið líflátinn og risið upp á þriðja degi. Á hvern hátt slíkt hefur átt sér stað, er ofvaxið skilningi vorum. Þjóðsögurnar geta um það seint og snemma, að svipir framliðinna manna, séu á reiki í kringum oss. Trúlegt er að sumar þær sagnir séu tilorðnar fyrir áhrif frá sögninni um páskaundrið. Spyrja mætti: Hvað tekur við, er þessu lífi lýkur? Eru jafnvel einhver lönd að skýjabaki, er séu bústaðir framliðinna manna. Sé svo — sem margir vona —- er líklegt að hverjum ]ieim, er þangað leitar, verði ekki bægt frá dyrum, hvað sem kennisetningum líður. IX. Menntamenn. Einn þeirra var Brynjólfur frá Minna-Núpi, þótt eigi væri hann skólagenginn. Þegar ég var að kenna á Loftsstöðum, kom hann þar á haustin og dvaldist nokkra daga. Þar kyntist ég honuiri. Bry'njólfur segir sögur. Á kvöldin safnaðist heimilisfólkið saman í baðstofunni, er Brynjólfur sagði sögur, því að þær kunni liann margar og sagði vel. Siðavandur var hann og urðu allir að hlýða fyrirskipunum hans, meðan söguflutningur fór fram, bæði eldri. sem yngri. Hann sat á innsta rúmi við borð, en á því var bolli með mjólkur blandi, til þess að dreypa á, er hlé varð á sögulestri. Kodda varð hann að hafa undir lendum sér og annan undir fótunum, svo að þægilegri væri setan. Einn af heimamönnum varð að sitja hjá honum og játa sögunni. Allir aðrir urðu að steinþegja, en svo kom sagan. Frásögnin var blátt áfram,ljós og skýr framsetning, laus við allt handapat og hávaðaglamur, en þó var sem leikin væri hver persóna, er fyrir kom í sögv.nni, með iítilsháttar blrebrigðum í rómi og andlitssvip, er gaf hverri persónu það, er henni bar, svo að eigi varð misskilið. Framhald í nœsía blaSi. akranes 57

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.