Akranes - 01.04.1955, Síða 28
THcsí og bezl árval af
Vefnaðarvöru,
Glervöru og
Búsáhöldum.
—★—
Mikið af
Barnaleikföngum.
—★—
Verzlið viÖ
Sdinborg
og þér munuö komast aÖ
raun um, aÖ þar geriö þér
bezt kaup.
Komið inn.
Lítið á varninginn.
ANNÁLL AKRANESS
Gjafir og greiðslur til blaðsins,
sem það þakkar innilega:
Sr. Jón N. Jóhannesen 100 kr., Björn J. Björns-
son, verksm.stj.^ Akranesi 100 kr., Kjartan Ólafs-
son, brunavörður, Rvik. 100 kr., Magnús Jónsson,
skólastjóri, Rvik. 100 kr., síra Jón Guðnason, Rvík
100 kr., Halldór Þorsteinsson, útgm., Vörum í
Garði 200 kr., Egill Júliusson, útgm., Dalvik 200
kr., Áheit frá N. N. Akranesi 50 kr., Ágúst Jós-
efsson fyrrv. heilbrigðisfulltrúi, Rvik. 100 kr.
Hjúskapur:
5. marz: Ungfrú Elin Sigriður Sveinsdóttir og
Einar Guðmundsson.
5. d.: Ungfrú Guðrún Bergsdóttir (Arnbjarnar-
sonar) og Gunnar Sveinbjörn Jónsson^ húsasmiður
frá Vestmannaeyjum.
2. apríl: Ungfrú Kristin Hendrikka Jónsdóttir
(Sigmundssonar) og Hörður Aðalsteinn Sumar-
liðason, sjómaður, Reykjavik.
10. april: Ungfrú Sigurbjörg Fjóla Sigurðardóttir
og Samúel Ólafsson, sjómaður, Bárugötu 16.
24. apríi: Ungfrú Stefanía Björg Björnsdóttir,
og Svafar Jakob Stefánsson, sjómaður, Vesturg. 21.
8. mai: Ungfrú Sigurlaug Ragnhildur Karlsdótt-
ir, Vitateig 1 og Hafsteinn Magnússon, sjómaður
s. st.
14. maí: Ungfrú Sigrún Ingibjörg Sveinsdóttir,
Öldugöu 17 i Reykjavik og Ottó Nielsson, sjómað-
ur, frá Skorrastað i Norðfirði, Bjarkagrund 1.
20. mai: Ungfrú Halldóra Björnsdóttir (Jóhanns-
sonar Bjömssonar), Vitateig 1 og Þórður Óskars-
son. skipstjóri, Vesturgötu 70.
Síra Jón M. Guðjónsson gaf öll brúðhjónin
saman.
Dánardægur:
6. marz: Var jarðsettur að Görðum Hannes
Eggertsson, bónda að Hávarðsstöðum i Leirársveit,
Ólafssonar, bróðir Bjarna Eggertssonar á Kringlu
og þeirra systkina. Hann var fæddur 4. nóv. 1908
á Hávarðsstöðum. Hann var ókvæntur, en mjög
mörg hin siðustu ár vinnumaður á Hvítárvöllum,
trúr og dyggur maður.
13. marz andaðist hér Guðbjörg Jónsdóttir frá
Reyni, f. 4. des. 1879 á Sæunnarstöðum í Hallár-
dal í Austur-Húnavatnssýslu. Hún var tápmikil
kona. Hennar verður væntanlega getið í sambandi
við Reyni.
28. marz andaðist Bjami Brynjólfsson frá Bæjar-
stæði, f. 15 /8 1873 í Móakoti í Innri-Akranes-
hreppi. Hann átti heima hér i Skaganum frá 10
ára aldri. Hans verður hér betur getið fljótlega
í sambandi við Bæjarstæði.
8. apríl andaðist hér i sjúkrahúsinu, Kristín Jóns-
dóttir frá Ausu i Andakíl, Eggertssonar, kona
Ólafs Guðmundssonar, en þau bjuggu lengi í Mið-
vogi.
11. apríl andaðist i sjúkrahúsinu hér, Sigriður
Kristjánsdóttir, Heiðarbraut 12, 84 ára að aldri.
Hún var f. 30/10 1870 að Þjóðólfstungu i Bol-
ungarvík. Hún átti heima í Vestmannaeyjum,
Kaupmannahöfn og í Reykjavik. Dvaldi hér á
Akranesi frá 1932. Hún lá rúmföst g seinustu árin.
Hún var vel gefin kona og snyrtileg. Hún giftist
ekki.
16. apríl andaðist i sjúkrahúsinu hér, Ingibjörg
Helga Sigurðardóttir frá Melkoti. Hennar verður
síðar getið í sambandi við Melkot.
29. apríl andaðist Ólafur Þorsteinsson, Vestur-
götu 63, fyrr bóndi á Vatnsenda í Skorradal. Fædd-
ur í Geirshlíð i Flókadal 8. júli 1867. Hann flutti
hingað til Akraness 1929. Ólafur var bróðir Ingi-
bjargar Þorsteinsdóttur á Bjargi.
8. maí var jarðsunginn hér í Görðum, Böðvar
Gíslason, smiðs Böðvarssonar. Böðvar var f. 2g/3
1886, en var um tugi ára dyggur vinnumaður á
Hvanneyri.
Kirkjukórar Akraness og
Borgarness halda hljómleika.
Kóramir héldu sameiginlega söngskemmtanir í
Akranesi á Pálmasunnudag og í Borgarnesi sunnu-
daginn áður.
Söngurinn í Bíóhöllinni hér var í heild sinni
ágætur hjá báðum kórum. I báðum kórunum eru
margar ágætar raddir, góðir söngstjórar, og. sýni-
legt að mikið hefur verið æft,’og auðheyrt að allií'
vildu gera sitt til að þetta færi sem bezt úr hendi.
Líklega má segja að Akraneskórinn sé styrkari,
og ráði yfir meiri tækni. En hitt má fullyrða að
Kirkjukór Borgamess er óvenjulega góður, t. d.
miðað við hve úr fáu fólki er að velja^ þ. e. bær-
inn lítill.
Hér er um mikið menningarstarf að ræða, sem
kostar miklar fómir allra, sem að standa. Þarf að
gera allt, sem hægt er til að hvetja þá og létta
þeim lífið til áframhaldandi iðkunar þessarar dá-
samlegu listar.
Karlakórinn Svanir.
Þeir sungu í Bióhöllinni hinn 17. npril s. 1. við
hinn bezta orðstir og undirtektir. Aldrei þessu vanl
var nú fullsetið hús. Því miður átti sá, er þetta
ritar ekki kost á að heyra sönginn, en af honuin
var mjög vel látið. Lagaval þótti gott og söngur-
inn hinn prýðilegasti.
Um mörg undanfarin ár hefur Geirlaugur
Árnason stjórnað kómum af miklum dugnaði og
fórnfýsi, en nú hefur nýr stjómandi tekið við,
Magnús Jónsson, prests Brandssonar. Er talið, að
honum hafi farizt stjóm kórsins vel úr hendi.
Undirleik annaðist frú Friða Lárusdóttir.
Tónlistarfélag stofnað.
I vetur var stofnað Tónlistarfélag á Akranesi.
Er meining þess að stuðla að eflingu tónlistar 1
bænum á hvem þann hátt, sem tiltækilegastur
reynist til þess og ástæður leyfa.
Fyrstu viðleitni í þessa átt sýndi félagið með
þvi að fá hingað fjóra ágætustu einsöngvara lands-
ins til að halda konsert hér hinn 24. april s. 1., en
það vom: Guðmundur Jónsson, Guðrún Á. Símon-
ar, Þuríður Pálsdóttir og Magnús Jónsson. Það
stóð til að einnig kæmi Kristinn Hallsson, en hann
forfallaðist vegna veikinda.
Húsfyllir var á þessum fyrstu tónleikum félags-
ins og urðu nokkrir frá að hverfa. Söngvurunum
var tekið forkunnar vel því að bæði söngskrá og
söngur, svo og undirleikur var afbragð. Undirleik
annaðist með ágætum Fritz Weisshappel.
Þessi söngur var í heild sinni glæsilegur, þótt
söngur Guðmundar og Guðrúnar bæri af, eins og
vænta mátti.
64
AKRANES