Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1965, Blaðsíða 19
TlMARIT VFl 1965
75
vinsældum og eru því oft áhöld um, hvort ekki
skuli heldur telja þau til almennra neytenda-
lakka. Þannig er það með Epoxylökkin. Við fór-
um að framleiða þau 1957 og gerðum ráð fyrir
að þau yrðu nær eingöngu notuð á iðnaðarhús-
næði s. s. frystihús, bílaverkstæði o. fl. Epoxy-
lökkin eru að vísu mest notuð af iðnaðinum enn-
þá, en jafnframt seljast þau samhliða öðrum
lökkum í málningarverzlunum.
Ég ætla ekki að þreyta ykkur á að telja upp
iðnaðarlökkin en aðeins nefna Hömruð lökk og
Bökunarlökk, sem notuð eru í margskonar iðnaði.
Enda þótt lökk og málningar séu aðalviðfangs-
efni okkar, vil ég geta þess, að ýmiskonar lím
eru einnig stór þáttur í framleiðslunni, og að
við munum vera langstærstu límframleiðendur
hér á landi. Þegar á öðru ári, þ. e. 1954, hófst
framleiðsla á gólfdúkalími í allstórum stíl. Árið
1957 kom svo Grip trélím, sem er polyvinylacetat-
lím, á markaðinn. Þá voru fyrir á markaðnum
innflutt polyvinylacetattrélím en Grip trélími
tókst á skömmum tíma að sigrast á þeim. Líku
máli gegndi svo um Jötun-Grip, sem er Neoprene-
snertilím, en framleiðsla hófst á því 1962. Aðrar
mikilvægar límtegundir eru Kassagrip á vax-
borna pappakassa undir frystan fisk og Gólf-
flísagrip.
Ein af síðari nýjungum í framleiðslu okkar
er Þanþéttikítti. Það er Thiokol (polysulfið
polymer) kítti. Þan er blandað hvata rétt fyrir
notkun og má þá sprauta með kíttisprautu. Þan
polymeriserast eða ,,vulkaniserast“ á einum eða
fleiri sólarhringum og myndar gúmmí, sem loðir
vel við flestalla byggingarfleti. Það er notað til
að þétta með gluggum og byggingaelementum í
húsum og sem þéttiefni í sprungur. Þan þétti-
kíttið heldur mýkt sinni, f jaðurmagni og viðloð-
un árum eða áratugum saman. Veðrast mjög
lítið og er óuppleysanlegt í flestum efnum.
Loks ætla ég að minnast á síðustu nýjungar
okkar, sem eru ný plastlökk til viðarlökkunar,
en við erum að hleypa þeim af stokkunum núna.
Þelmatt er litlaust, matt plastlakk, sem gulnar
ekki. Þelmatt er með innbyggðum herði og
verður óuppleysanlegt í vatni, áfengi og feiti.
Leifturlakk er annað ljóst plastlakk með inn-
byggðum herði og einnig óuppleysanlegt. Það
hefur mjög mikið slitþol og því sérlega hentugt
á trégólf og parkett.
Málning h.f. hefur haft rannsóknastofu frá
upphafi. Fyrsta rannsóknastofan var að v's
lítil, um 16 m- gólfflötur, og aðallega miðuð við að
gera prófanir á framleiðslunni. Til að byrja með
var enginn efnafræðingur starfandi hér á staðn-
um, en ég var þá ráðgefandi efnaverkfræðingur
við verksmiðjuna. Strax á öðru ári var ráðinn
hingað efnaverkfræðingur og æ síðan hefur verið
starfandi efnaverkfræðingur á rannsóknastof-
unni, framan af einn, og tveir síðustu 4 árin, auk
eins aðstoðarmanns og aðstoðarstúlku.
Vinnuskilyrði voru að vísu léleg framan af, en
jafnskjótt og byggt hafði verið við 1956 var
rannsóknastofan stækkuð í tæpa 60 m2 og nú
s. 1. vor fékk hún þetta húsrými, sem við höfum
nú eða rúml. 100 m2 auk ágætrar og rúmgóðrar
geymslu hér uppi á lofti.