Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ2004 Fréttir DV Olíugjaldið lögfest Olíugjaldsfrumvarp fjár- málaráðherra varð að lögum fyrir helgi, en þar er gert ráð fyrir upp- töku olíugjalds með litun gjaldJErjálsrar olíu og núverandi þungaskattskerfi lagt niður. Auk olíugjalds verður tekið upp kílómetragjald á ökutæki sem eru 10.000 kg eða meira að heildarþyngd, önnur en bifreiðar til fólksflutninga. Meginmarkmið laganna er að gera dísilknúnar fólksbif- reiðar að álitlegri kosti fyrir einstaklinga og samræma skattíagningu dísil- og bens- ínbifreiða. Handteknirá stolnum bíl Fjórir menn voru handteknir af lögreglunni í Reykjanesbæ í gær eftir að bifreið sem þeir höfðu stolið hafnaði utanvegar við Vogaveg á Reykjanes- brautinni. Mennimir, sem vom taldir ölvaðir, sluppu án teljandi meiðsla en reyndu að forða sér á hlaupum þeg- ar þeir urðu lögreglu var- ir. Þeir náðust þó allir. stolnum bíl Lögreglan í Hafnarfirði hafði um helgina afskipti af ökumanni vegna gruns um ölvun við akstur. ökumað- urinn var færður á lögreglu- stöð þar sem skýrsla var tek- in af honum. Þegar maður- inn var stöðvaður kom í ljós að bifreiðin sem hann var á hafði verið tilkynnt stolin fyrr um daginn. Málið telst upplýst. Viðskíptabann á fsrael? Jón Hákon Magnússon framkvæmdastjóri „Ég held aö það eigi ekki að setja viðskiptabann á ísrael vegna þess að það mun ein- ungis gera illt verra. Eina lausn- in er að setja þressu á Bush Bandarlkjaforseta vegna þess að það er hann sem framlengir iífSharons í pólitíkinni." Hann segir / Hún segir „Ég er mjög fylgjandi við- skiptabanni á Israel. Aðallega vegna þess að ég tel þetta einu leiðina til þess að koma á frið- samlegan háttí veg fyrir þau mannréttindabrot og þjóðar- morð sem þar eru í gangi og ég er mjög fylgjandi því að þessi leið verði farin." Katrín Jakobsdóttir varaformaður VG Guðni Ágústsson varar sjálfstæðismenn við að fara á taugum. Kristinn H. Gunnars- son stendur ekki að skattalækkunum þegar velferðarkerfið er skorið niður. Mikil ólga og hótanir hafa einkennt stjórnarsamstarfið eftir að þingi var slitið fyrir helgi. Verulegur titringur er ríkjandi milli stjórnarflokkanna, Sjálfstæð- isfiokks og Framsóknarflokks, vegna þess að framsóknarmenn hleyptu ekki í gegn þingmáli um skattalækkanir fyrir þinglok. Sjálfstæðismenn á borð við Pét- ur H. Blöndal, Sigurð Kára Krist- jánsson, Guðlaug Þór Þórðarson og Gunnar I. Birgisson hafa opinber- lega húðskammað Framsóknar- flokkinn fyrir andstöðuna og jafn- vel talað um svik við kjósendur. Þetta kemur í beinu framhaldi af verulegum væringum milli flokk- anna vegna fjölmiðlafrumvarpsins og gremju sjálfstæðismanna með mótatkvæði Kristins H. Gunnars- sonar og hjásetu Jónínu Bjartmarz í því máli. Fram- sóknar- menn svara ásökun- um sjálf- stæðis- manna Kristinn H. Gunnarsson Hafnar skattalækkun meðan velferðarkerfið er skorið niður. ________ um svik í skattalækkunarmálum fullum hálsi. „Það hafa miklar til- finningar farið af stað eftir harða og að mörgu leyti ósvífna pólitíska umræðu síðustu vikurnar. Það hef- ur reynt mikið á menn og það er greinilegt að þessum mönnum hef- ur sárnað mjög að geta ekki gengið út í sumarið með prentaða útfærslu af skattalækkunum upp á vasann. En menn mega ekki fara á taugum," segir Guðni Ágústsson, varafor- maður Framsóknarflokksins Miklar tilfinningar segir Guðni Framsóknarmenn vildu ekki leggja fram tillögur um skattalækk- anir án þess að hafa um leið stefnu gagnvart fjárskorti í velferðarkerf- inu og gagnvart mögulegri þenslu og verðbólgu. Guðni segir að þessi atriði verði að hafa í huga áður en ákveðið verður hvernig standa eigi við stjórnarsáttmálann. „Við erum vissulega að skoða hluti eins og að lækka tekjuskatts- hlutfallið um 4 prósentustig, skoða eignaskattinn og virðisaukaskattinn. For- menn flokkanna og flokk- arnir sjálfir klára þau mál vafalaust fyrir haustið. En það verður að skoða þetta í sam- hengi við annað.“ Guðni á hér við að staðinn verði vörður um velferð- arkerfið. „Við vilj- um ekki útfæra þetta nema klárt liggi fyrir hvernig við verjum heilbrigðiskerf- ið og skólakerfið við áföllum vegna fjár- skorts. Einnig þarf að ígrunda aðvörunarorð spekinga um að skattalækkanir geti við núver- andi þenslukringumstæður hleypt verðbólgu af stað.“ Aðspurður hvort það hrikti í stoðum stjórnarsamstarfsins segir Guðni að augljóst sé að hin harða umræða síðustu vikna hafi hleypt miklum tilfinningum upp á yfir- borðið. Ekki samið um niður- skurðinn Kristinn H. Gunnarsson læt- ur sér svikatal sjálfstæðismanna í léttu rúmi liggja. „Það er ekki Framsóknarflokksins að efna kosningaloforð Sjálfstæðis- flokksins. Við vitum hvað stend- ur í stjórnarsáttmálanum og það liggur fyrir að það hefur staðið til að útfæra skattalækkanir í tengsl um við kjarasamninga. Þeim er ekki lokið, frekar en kjörtímabilinu. Kristinn segir að skattalækk- anir séu ekki stefna sem hann vilji standa að á sama tíma og verið sé að skera velferðar- kerfið nið- ur um jafn- vel tugi milljarða króna. „Það er verið að skera niður í Landspítala - háskólasjúkra- húsi og það er verið að leggja til aðgangshindranir á háskóla- og fram- haldsskólastigi. Um þetta hefur ekki ver- ið samið og þessar aðgerðir eru langt umfram það sem eðlilegt get- ur talist. Við þurfum að ræða þessi mál og ná niðurstöðu áður en við útfærum tillögur í skattamálum. Auk þess blasir við að það er spáð mik- illi þenslu árin 2005 til 2007 og það gæti virkað eins og að hella olíu á eld verðbólgu og viðskipta- halla að lækka skatta undir slíkum kringum- stæðum.“ fridrik@dv.is Guðni Ágústsson Hin harða um- ræða s/ðustu vikna hefur hleypt mik - um tilfinningum upp á yfirborðið. Kortaþjófur á Litla-Hrauni segir mannréttindi brotin á sér Réttarfarið hér eins og í grínmynd Fanginn Ondobo Ndzana, sem í febrúar sl. var dæmdur í 9 mánaða fangelsi fyrir kortaþjófnað, fjársvik og fleiri sakir, fullyrðir í kvörtunar- bréfi sem hann hefur sent Mann- réttindaskrifstofu íslands að mann- réttindi haf! verið gróflega brotin á sér eftir handtöku hans og félaga hans í desember síðastíiðnum. Hann fullyrðir að dómari málsins, Jónas Jóhannesson, saksóknarinn Eyjólfur Kristjánsson og skipaður verjandi sinn, Jóhannes Albert Sæv- arsson, hafi í raun unnið saman gegn hagsmunum sínum. Ndzana segir að samvinna Eyj- ólfs og Jóhannesar hafi verið eins og um fullkomna samverkamenn væri að ræða, þeir væru augljóslega vinir, þar sem samskipti með augngotum og gríni dygðu oft á tíðum. Þetta eru skemmtikraftar og réttarkerfið á ís- landi er líkara Hollywood-grínmynd en nokkru öðru, segir Ndzana. Hann kvartar yfir að hafa verið haldið of lengi áður en hann var færður fyrir dómara, að gæsluvarð- hald og einangrunarvist hans hafi verið óþarflega löng og hann segir fullum fetum að Jóhannes Albert hafi á engan hátt gætt hagsmuna sinna og aldrei mótmælt ákvörðun- um Eyjólfs. Ndzana bendir á að Jó- hannes Albert virðist vera skipaður verjandi í svo gott sem öllum málum er varða útíendinga sem teknir eru í Ondobo Ndzana Gefur skipuðum verjanda sinum ekki háa einkunn. umdæmi Eyjólfs. Ndzana segir hann og Eyjólf augljóslega vera mikla vini og ísland augljóslega vera lögreglu- ríki. Ekiðáhótel Talsverðar skemmdir urðu á hótelinu á Fáskrúðsfirði á föstu- dag þegar ekið var á það. öku- maðurinn var sextán ára réttinda- laus unglingur sem þar að auki var grunaður um ölvun. Ökumað- urinn lét sig hverfa af vettvangi eftir atburðinn ásamt farþegum en lét skömmu síðar vita af því sem fram hefði farið. Bílinn end- aði inni í eldhúsi hótelsins þar sem veggur gaf sig með þeim af- leiðingum að vatnslagnir fóru í sundur. Talsvert tjón varð vegna vatnsleka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.