Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNl2004 9
f—
DV Fréttir
tögregla aö störfum læknideildarmenn i
hvitum samfestingum rannsókuðu vettvanginn,
Rannsóknnrlogreglumenn reynclu að komast að
þvi hvað gerðist. i kiólfar þessa var ákveðid að
krefjast gæsluvardhalds yfir konunni.
DV-Myndir Róbert
Bænastund var í Neskirkju í gær vegna morðsins á Hagamel. Séra Örn Bárður Jónsson og séra
Sigurður Árni Þórðarson hjálpuðu fólki að takast á við sorgina.
Sorgin færir okkur saman
„Maður er auðvitað sleginn," segir Örn Bárður Jónsson, sókn-
arprestur í Neskirkju, en mikil sorg hvfldi yfir Vesturbænum í
gær eftir að fréttir af morðinu á Hagamel bárust mflli manna.
Örn Bárður og séra Sigurður Árni Þórðarson voru á staðnum
og veittu þeim sem vildu hjálp á erfiðum tímum.
„Við ákváðum að halda bæna-
snrnd í kirkjunni til að mæta þörfum
fólks til að vinna úr sorg sinni,“ segir
Öm Bárður og tekur fram að fólk leiti
mikið til kirkjunnar á stundum sem
þessum. „í gleði og sorg; lífi og
dauða er kirkjan ávallt til staðar,"
segir hann.
Og það var sorg í andlitum þeirra
sem stóðu fyrir aftan lögreglulínuna
og reyndu að átta sig á því hvað hefði
gerst. í búðum skammt frá var um
fátt annað talað. „Hvernig gat þetta
gerst?“ spurði ein kona sem trúði
varla því sem hún heyrði í fréttum.
Örn Bárður segir eðlilegt að allir
bæjarbúar leggist á eitt við að takast
á við sorgina. „Hún er sammannlegt
fyrirbrigði," segir hann. „Hún vitjar
okkar allra með einum eða öðrum
hætti og er eðlileg viðbrögð við
missi."
Fundur í skólunum
Séra Sigurður Ámi segir að kirkj-
an sé vettvangur fyrir fólk til að ná út
sorg sinni og skelfingu. í gær var
hringt í öll bekkjarsystkini stúlkunn-
ar og í dag átti að halda fund í skól-
unum með starfsfólki sem ræðir síð-
an við nemendur.
í febrúar á þessu ári fómst tvær
ungar stúikur úr Hagaskóla í bflslysi.
Sá atburður setti mark sitt á Vestur-
bæinn og reyndi sérstaklega á Örn
Bárð. „Við munum, eins og þá, fara í
skólana og hjálpa þeim sem þurfa
hjálp að takast á við sorgina," segir
hann. „Á stundum sem þessum
finniim við kannski hvað við mann-
fólkið erum skyld. Sorgin færir okkur
saman."
Bænastund í Neskirkju
í gær var svo bænastund í Nes-
kirkju. Troðfullt var í kirkjunni og
víða mátti sjá jafnaldra stúlkunnar
sem dó fella tár. Örn Bárður hóf at-
höfnina með stuttri ræðu þar sem
hann fjallaði meðal annars um sorg-
ina. „Sorgin er ekki sjúkleg. Hún er
eðlileg viðbrögð við missi. Við skul-
um því leyfa okkur að gráta hér í
kvöld," sagði Örn og minntist svo á
að vegna þess að ekki hefði tekist að
ná í alla ættingja væri ekki minnst á
nein nöfn. „Þeir sem em hér inni vita
þó um hverja ræðir," sagði hann.
„Við höfum mynd af henni í huga
okkar. Eigum þessa stund saman og
huggum hvert annað."