Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2004, Síða 19
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ2004 1 9
Töpuðu stórt í
fyrsta leiknum
íslenska kvennalands-
liðið í körfubolta lék þrjá
vináttulandsleiki gegn
Englendingum um helgina.
Fyrsti leikurinn fór fram í
Keflavík á föstudagskvöldið
og íslenska liðið átti aldrei
möguleika í leiknum, sem
tapaðist með 24 stigum,
77-101. Erla Þorsteins-
dóttir og Hildur Sigurðar-
dóttir skoruðu báðar 22 stig
og Signý Hermannsdóttir
varmeð 16 stigog 12
fráköst. íslenska liðið
spilaði ekki góða vörn og
enska liðið nýtti meðal
annars 53% þriggja stiga
skot sinna (8af 15).
Allt annað lið
og góður sigur
Það var allt annað að sjá
til íslenska liðsins í öðrum
leiknum sem fram fór í
Grindavík á laugardaginn.
íslenska liðð hafði góða
forustu allan leikinn og
náði mest 22 stiga forskoti í
þriðja leikhluta og vann
leikinn loks með 9 stigum,
85-76.
Signý Hermannsdóttir
skoraði 16 stig, tók 9 fráköst
og varði 5 skot, Alda Leif
Jónsdóttir var með 15 stig,
10 fráköst og 4 stoð-
sendingar og Erla Reynis-
dóttir var með 15 stig. Auk
þeirra skoruðu tvær til
viðbótar yfir 10 stig, Birna
Valgarðsdóttir var með 13
og Erla Þorsteinsdóttir
gerði 11 stig og varði 6 skot.
Þá var Hildur Sigurðardóttir
með 9 stig og 6 stoð-
sendingar.
Naumttapí
lokaleiknum
íslenska landsliðið
tapaði síðan mjög naum-
lega í þriðja leiknum, sem
bar þess merki að liðin voru
að spila í þriðja sinn á
innan við tveimur sólar-
hringum. Enska liðið vann
leikinn 58-53 og þar með
tvo af þremur leikjum
helgarinnar. Hildur Sigurð-
ardóttir var með 13 stig og
12 fráköst, Alda Leif
Jónsdóttir skoraði 10 stig og
gaf 5 stoðsendingar, Birna
Valgarðsdóttir var með 9
stig og Erla Þorsteinsdóttir
skoraði 8 stig og tók 8
fráköst.
íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er öruggt með sæti í umspilinu fyrir EM
eftir stórsigur í Ungverjalandi, 5-0, á laugardag. Þrátt fyrir það stefnir íslenska
liðið á annað sæti í riðlinum því það gefur auðveldari mótherja í umspilinu.
fslenska liðið er í fínum málum eftir leikinn gegn Ungverjum en
þær vilja meira. Annað sætið í riðlinum gerir það að verkum að
liðið fær veikari andstæðing í umspili og um leið eru þær nær
drauminum um að komast í lokakeppni Evrópumótsins. Ef liðið
leikur eins og það gerði í Ungverjalandi eru allar líkur á því að
það takmark náist.
íslenska liðið byrjaði leikinn gegn
Ungverjum með miklum látum og
Jiin magnaða Margrét Lára
Viðarsdóttir kom íslenska liðinu yfir
eftir aðeins 12 mínútna leik. Olga
Færseth bætti síðan öðru marJd við
úr vítaspyrnu fjórum mínútum fyrir
leikhlé og staða íslenska liðsins í
leikhléi var mjög vænleg.
íslensku stúlkurnar létu kné
fylgja kviði í síðari hálfleik og Olga
skoraði þriðja mark íslenska
liðsins og sitt annað á 54.
mínútu. Hún hafði ekki sagt
sitt síðasta orð í leiknum því
þrennan var fullkomnuð hjá
henni sex mínútum síðar.
Það var síðan stalla
hennar í ÍBV-liðinu, Margrét
Lára Viðarsdóttir, sem rak
síðasta naglann í kistu
Ungverja með fimmta
marki íslenska liðsins á 62.
mínútu. 5-0 lokatölur fyrir
fsland og ÍBV-stúIkumar sáu
um að gera öll mörkin.
Sanngjörn úrslit
Helena Ólafsdóttir landsliðs-
þjálfari var að vonum kampakát
er DV Sport heyrði í henni
hljóðið.
„Úrslitin gefa
algjörlega rétta mynd
af leiknum því við
vorum mildð betri
„Það er
mikilsam-
heldni í þessu
liði og margir
leikmenn að stíga
virkilega upp og leika
vel. Þetta lið ersem einn
maður og það fleytir
okkur mjög langt."
og grimmari frá upphafi og
hefðum í raun getað
unnið enn stærra því
við fengum fullt af
fínum færum," sagði
Helena og bætti við
að það hefði verið
mikilvægt
að
Þrenna
hjá Olgu
Olga
Færseth átti
stórleik með
Islenska
landsliðinu I
Ungverjalandi og
skoraði þrjú mörk.
Þetta var fyrsta
þrennan hennarOlgu
með íslenska
landsliðinu.
byrja leikinn mjög sterkt.
„Við ákváðum að vera mjög
aggressívar alveg frá upphafi. Koma
þeim í opna skjöldu og gera þeim
það ljóst að þær ættu eldcert
möguleika í leilcnum. Það tókst vel
því við settum mark snemma og það
var álcveðinn léttii fyrir okkur.
Marlcmiðið var einnig að halda
hreinu og það tókst líka og við
erum alsælar með úrslitin í
leiknum."
Mikil samheldni
Helena var geysilega
ánægð með vinnusemi liðsins
og samheldni í leiknum og
hún hefur trú á því að
stelpurnar geti gert
enn betur.
„Það er mikil
samheldni í
þessu liði og
margir leikmenn
að stíga virkilega
upp og leika vel.
Þetta lið er sem
einn maður og
það fleytir okkur
mjög langt," sagði
Helena, sem var að
sjálfsögðu ánægð
með að vera örugg inn í
umspilið en hún vill
meira. „Annað sætið er
ekki tryggt sem við
stefndum að og við ræddum
á fundi eftir leikinn að við
þyrftum að halda áfram. Við
ætlum okkur annað sætið og
vonandi kemur það á
miðvikudag."
Orðnar spenntar
Á miðvikudag leikur íslenska
liðið gegn því franska á
Laugardalsvelli. Franska liðið er
klárlega sterkasta liðið í riðlinum en
íslenska stelpurnar hafa trú á því að
þær geti velgt frönsku meyjunum
undir uggum.
„Leikurinn leggst mjög vel í
okkur en við erum farnar að hlakka
til leiksins og getum ekki beðið eftir
að hann verði flautaður á. Leikurinn
hérna úti nægir stelpunum ekki og
við erum ekkert orðnar saddar. Við
ætlum að láta Frakkana hafa fyrir
hlutunum því það er langt síðan við
töpuðum á heimavelli."
henry@dv.is
GÓÐ STAÐA í RIÐLINUM
Efsta liðið fer beint á EM, liðið í
öðru sæti í umspil og þau tvö lið í
þriðja sæti með bestan árangur
komast einnig þangað.
Staðan í 3. riðli:
Frakkland 5 5 0 0 22-1 15
fsland 6 4 1 1 23-6 13
Rússland 5 2 2 1 11-6 8
Ungverjal. 7 1 1 5 6-24 4
Pólland 7 0 2 5 6-31 2
Leikir sem eru eftir í 3. riðli:
Island-Frakkland 2.jún(
(sland-Rússland 22. ágúst
Frakkland-Rússland 26. sept.
Pólland-Frakkland 3. okt.
Rússland-Ungverjaland 3. okt.
FYRSTA ÞRENNA OLGU
Olga Færseth skoraði slna fyrstu
þrennu fyrir landsliðið (Ungverja-
landi um helgina og í fyrsta sinn
hafa tvær landsliðskonur skoraði
þrennu á sama árinu því Margrét
Lára Viðarsdóttir, sem skoraði tvö
mörk í leiknum, skoraði þrennu
gegn Skotum í fyrsta leik ársins.
Mörk Olgu fyrir ísland:
1994 Holland (úti) 1
1994 Grikkland (úti) 1
2000 Úkraína (heima) 1
2000 Rúmenía (úti) 1
2001 Rússland (heima) 1
2001 (talía (heima) 2
2002 Rússland (úti) 1
2002 England (heima) 1
2003 Ungverjaland (heima) 1
2003 Póllandi (úti) 1
2004 Ungverjaland (úti) 3
Þrennur fyrir fsland:
ÁsthildurHelgadóttir 1994
4 mörk gegn Grikkjum á útivelli
Rakel ögmundsdóttir 2000
4 mörk gegn Rúmenum heima
Margrét Lára Viðarsdóttir 2003
3 mörk gegn Pólverjum heima
Margrét Lára Viðarsdóttir 2004
3 mörk gegn Skotum heima
Olga Færseth 2004
3 mörk gegn Ungverjum úti
Markahæstu landsliðskonurnar:
LÁsthildurHelgadóttir 18
2. Olga Færseth 14
3. Margrét Lára Viðarsdóttir 10
4. Ásta B. Gunnlaugsdóttir 8
4. Margrét Ólafsdóttir 8
6. Rakel ögmundsdóttir 7
EM-draumur stelpnanna fjarlægist
Eins marks tap í Ásgarði
Kristfn sterk Kristín Guðmundsdóttir átti
fínan leik gegn Tékkum og skoraði sex mörk.
Draumur íslenska kvennalands-
liðsins í handlcnattleik um að
komast í úrslitakeppni EM í
Ungverjalandi er frekar fjarlægur
eftir að stelpumar töpuðu fyrri
leiknum í umspili gegn Tékkum í
Ásgarði um helgina, 26-27.
Það var vel mætt á leikinn í
Garðabæ og fín stemning í stúkunni
þegar leikurinn fór fram. Mikið
jafrtræði var með liðunum nánast
allan leikinn en tékknesku
stúlkurnar voru þó alltaf skrefi á
undan. Til marks um hversu jafn
leikurinn var þá munaði mest þrem
mörkum á liðunum. Islenska liðið
náði einu sinni forystu en það var í
stöðunni 6-5.
Lokatölur voru síðan 26-27 sem
er ekkert veganesti fyrir íslenska
liðið fýrir seinni leikinn sem ff am fer
í Tékklandi um næstu helgi. Aftur á
móti er miði möguleiki og íslenska
liðið getur meir en það sýndi í
þessum leik.
Berglind fris Hansdóttir átti
stórkostlegan leik í íslenska markinu
og átti stóran þátt í því að liðið
tapaði ekld stærra. Inga Fríða
Tryggvadóttir var verulega sterk í
síðari hálfleik þar sem hún skoraði
sjö mörk en hún nýtti öll skot sín í
leiknum og fiskaði þar að auki eitt
víti. Kristín Guðmundsdóttir átti
einnig fínan leik.
Mjög fúll
„Eg er mjög fúll með þessa
niðurstöðu," sagði Stefán Arnarson
landsliðsþjálfari í leikslok. „Við
vorum ekki nógu góðar." hemy@dv.is
ÍSLAND-TÉKKLAND 26-27
(SLAND:
Mörk (skot): (nga Fríða Tryggva-
dóttir 8 (8), Kristín Guðmundsdóttir
6 (11), Guðrún Hólmgeirsdóttir 3
(3), Dagný Skúladóttir 3 (3), Jóna
Margrét Ragnarsdóttir 3 (5),
Hrafnhildur Skúladóttir 3/2 (8/2),
Rakel Dögg Bragadóttir 0 (1), Drífa
Skúladóttir 0 (2), Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 0 (3).
Varin skot: Berglind Iris Hansdóttir
20/1 (47/3) 42%.
Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Dagný
3, Guðrún 2, Hrafnhildur).
Vitanýting: 2 af 2 vítum (100%).
Fiskuð víti: Rakel, Inga Frfða.
Brottvísanir: 6 mínútur.
Best á vellinum: Berglind (ris
Hansdóttir.
Dómarar: A. Marreros og J. Gil frá
Portúgal. (6).