Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1974, Qupperneq 11
DR. ÞORKELL HELGASON :
UM REIKNIFRÆÐIKENNSLU
VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
Dr. Þorkell Helgason stundaði
stcerðfrœðinám við háskólann í Miin-
chen og lauk paðan háskólaprófi 1961
og doktorsprófi frá Massachusetts
Institute of Technology 1971. Starf-
aði sem sérfrceðingur við reiknistofn-
un háskólans frá 1971 þar til hann
var skipaður dósent í stœrðfrœði við
verkfrœði- og raunvísindadeild Há-
skóla Islands 1912. Var forstöðumað-
ur reiknistofu Raunvísindastofnunar
háskólans árinu 1912—llf.
Grein þessari er ætlað að gefa yfir-
lit yfir kennslu í reiknifræðum við
Háskóla Islands en einkum þó innan
stærðfræðiskorar verkfræði- og
raunvísindadeildar. Með reiknifræð-
um er hér átt við eftirtaldar greinar
hagnýtrar stærðfræði: aðgerðagrein-
ingu, rafreiknifræði hvers kyns, tölu-
lega greiningu, tölfræði og líkinda-
fræði.
Sögulegt yfirlit
Sumar af greinum reiknifræðinnar
hafa verið kenndar lengi við háskól-
ann. Þannig mun tölfræði hafa verið
kennd við viðskiptadeild allt frá upp-
hafi. Síðar var tekin upp kennsla í
tölfræði víðar, og er nú svo komið,
að auk nokkurra kennslugreina í
tölfræði fyrir verkfræði- og stærð-
fræðinema eru námskeið í tölfræði
fyrir félagsfræði-. líffræði- og lækn-
isfræðinema auk viðskiptafræðinem-
anna.
Kennsla i rafreikniforritun og
tölulegri greiningu hófst skömmu
eftir að Reiknistofnun háskólans tók
til starfa í árslok 1964 og mun há-
skólinn hafa verið með fyrri skólum
í þessum heimshluta að gera forrit-
un að hluta verkfræðináms. Haustið
1971 var hafin kennsla í rafreikni-
fræði fyrir viðskiptafræðinema. Auk
einnar skyldugreinar eiga viðskipta-
fræðinemar nú kost á tveimur val-
greinum við sitt hæfi.
Kennsla í aðgerðagreiningu hófst
lítillega við viðskiptadeild i kringum
1970. Innan verkfræði- og raunvís-
indadeildar hófst kennsla í aðgerða-
greiningu haustið 1972.
Reiknifræði fyrir
verkfræðinema
Nú skal vikið nánar að kennslu í
reiknifræðum í verkfræði- og raun-
vísindadeild.
Fyrst er þess að geta, að allir
verkfræðinemar sækja kennslugrein,
sem nefnd er töluleg greining og for-
ritun, og er þetta námskeið að jafn-
aði á 2. misseri námsins. Námsefni er
FORTRAN-forritun og síðan helstu
atriði tölulegrar greiningar. Áform-
að er að auka þetta nám.
Þá læra allir verkfræðinemar und-
irstöðuatriði líkindareiknings og töl-
fræði.
Er þá upptalið það, sem verk-
fræðinemar læra í reiknifræðum.
Þess ber þó að geta, að á döfinni er
að gefa kost á nokkru greinavali í
verkfræðináminu og er þá m.a. ætl-
unin, að verkfræðinemar geti sótt
greinar innan þeirrar námsbrautar i
reiknifræðinni, sem nú verður að vik-
ið.
Námsbraut í reiknifræðum
við stærðfræðiskor
Haustið 1972 var stofnað til sér-
stakrar námsbrautar innan stærð-
fræðiskorar í því skyni að veita
þriggja ára menntun til B.S. prófs í
reiknifraeðum.
Um markmið slíkrar kennslu seg-
ir í samþykktum verkfræði- og
raunvísindadeildar, að B.S.-námið
skuli veita undirbúning undir kennslu
í viðkomandi greinum, undir fram-
haldsnám og undir störf strax að
námi loknu. Væntanlega er mest
áhersla lögð á síðasta markmiðsþátt-
inn á reiknifræðinámsbrautinni.
Fyrstu nemendur með B.S.-próf í
reiknifræðum útskrifuðust á þessu
sumri. Það er von þeirra, sem að
námi þessu standa, að nemendur
námsbrautarinnar reynist liðtækir
við fjölbreytileg störf, svo sem á raf-
reiknimiðstöðvum, rannsóknarstofn-
unum, hagfræðistofnunum og víðar.
Námsbrautin í reiknifræðum er i
stórum dráttum skipulögð þannig,
að fyrsta námsárinu er varið til al-
menns stærðfræðináms.
Annað og þriðja námsárið er
helgað sérnámi í hinum einstöku
greinum reiknifræði. 1 stórum drátt-
um eru fjórar kennslugreinar sam-
tímis á námsáætluninni og er ein í
aðgerðagreiningu, önnur i rafreikni-
fræði og tölulegri greiningu, sú
þriðja í tölfræði og líkindafræði, en
sú fjórða er valgrein, sem tekin er
utan þessarar námsbrautar.
Ráðnir hafa verið þrír fastir kenn-
arar, allir dósentar, til að annast
þessa kennslu. Einn þeirra er grein-
arhöfundur og er greinasvið hans
einkum aðgerðagreiningin. Dr. Odd-
ur Benediktsson er dósent á sviði
rafreiknifræðinnar, en auk hans
grípa sérfræðingar reiknistofu
Raunvísindastofnunar háskólans inn
í þá kennslu. Tölfræði kennir dr.
TlMARIT V F I 1974 — 89