Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAQUR 28. JÚNÍ2004 Fréttir 0V Auðir nenntu ekki í klefa Talsverður fjöldi þeirra sem skilaði auðu í forseta- kosningunum á laugardag mun ekki hafa haft fyrir því að líta inn í kjörklefann sjálfann. Þessi hópur mun ein- faldlega hafa tek- ið við sínum kjörseðli af starfsmönnum kjördeilda og stungið seðlinum rakleitt ofan í kjörkassann. Slfkar aðferðir eru ekki leyfilegar í leynilegri kosn- ingu því hver kjósandi á að ganga frá atkvæði sínu hul- inn öðrum mönnum inni í kjörklefa. Þeir sem beittu aðferðinni sluppu þó að sögn með tiltækið gegn illu augnaráði kjördeildarstarfs- mannanna. Hrísey og Ak- ureyri eitt Kosið var um samein- ingu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar um helgina samhliða kosning- um til forseta. Sameiningin var samþykkt með yfir- burðakosningu í Hríseyjar1 hreppi þar sem 124 greiddu atkvæði. Alls samþykktu 116 sameiningu, en 8 voru á móti. A Akureyri greiddu þrír fjórðu at- kvæði með sameining- unni sem þar með er staðfest. En eins og fram hefur komið hef- ur slæm fjárhagsstaða Hríseyjarhrepps auk bágs ástands í atvinnumálum reynst eyjaskeggjum erfið. Nú ætla þeir sér stóra hluti með nágrönnum sínum Akureyringum. Sameining öðlast formlega gildi þann 1. september. Skemmtilegasta liöiðáEM Sverrir Bergmann Magnússon tónlistarmaður „Ég held að það séu ábyggi- lega Tékkarnir. Þeir eru helvíti góðir. Að mínu mati eru þeir ekki að koma á óvart. Þeir hafa verið meðal fimm bestu liða i heimi nokkuð iengi. Þeir pakka ekki í vörn og spila sóknarbolta. Annars held ég að Tékkarnir muni vinna mót- ið. Þeireru góð liðsheild en Pa- vel Nedved ber af. Hann er hrikaiega góður." Hann segir / Hún segir „Mér finnst Portúgaiar ótrú- iega skemmtilegir. Ronaido er ótrúlega góður og Gomez mjög sætur. Svo var leikurinn við Englendinga náttúriega geðveikur. Það skemmtileg- asta við liðið erkannski hvað leikmennirnir eru tækniiegir. Ég vona að þeir fari alla leið. Þetta er búið að vera gott mót. Skemmtilegir leikir og mikil barátta." Embla Sigríður Grétarsdóttir fótboltakona Ungur íslendingur, Þórir Jónsson, situr nú í Vestre-fangelsinu eftir að hafa verið dæmdur fyrir kókaínsmygl í Kaupmannahöfn. Er þekktur hérlendis fyrir þátt sinn í Stóra e-töflumálinu árið 1999. Þórir Jökull Þorsteinsson sendiráðsprestur hefur aðstoðað Þóri að ósk fjölskyldu hans. íslenskur kókaínsmyglari í árs fangelsi í Dnnmnrku VmJr /riskomað I ™allviðmi9eftirað nann var handtekinn i n°J°9AbaðmÍ9umað aðstoða hann “ Ungur Islendingur, Þórir Jónsson, var nýlega dæmdur í 13 mán- aða óskilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi í Frederiksberg í Kaupmannahöfn fyrir kókaínsmygl. Þórir Jónsson, 22 ára íslending- ur, var handtekinn af dönsku fíkni- efnalögreglunni fyrr í vor á hóteli í borginni með hátt í 200 grömm af kókaíni í fórum sínum. Þórir var dæmdur í gæsluvarðhald og með- an á því stóð kom Þórir Jökull Þor- steinsson, sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn, honum til að- stoðar að ósk fjölskyldu Þóris. Þórir Jónsson er þekktur hérlendis fyrir þátt sinn í Stóra e-töflumálinu árið 1999. Sendiráðsprestur til aðstoðar „Fjölskylda Þóris kom að máli við mig eftir að hann var handtek- inn í vor og bað mig um að aðstoða hann,“ segir Þórir Jökull Þorsteins- son prestur í samtah við DV. „Það var einkum um að ræða að koma til hans fötum meðan hann sat í gæsluvarðhaldi í Vestre-fangelsinu og einnig láta hann vita að hann væri ekki einn í heiminum." Þórir Jökull segir enn fremur að hann hafi síðan hitt nafna sinn Jónsson einu sinni síðar en það var þegar gæsluvarðhald yfir honum „Fjölskylda Þórís kom að máli við mig eftir að hann var handtek- inn í vor og bað mig um að aðstoða hann." var framlengt fram að dómsupp- kvaðningu sem var í upphafi mán- aðarins. Það sem þeim fór á milli er hinsvegar bundið trúnaði. Samkvæmt heimildum DV var talið að tveir aðrir íslendingar í Kaupmannahöfit væru tengdir þessu máli en lögreglunni tókst ekki að sanna hlutdeild þeirra. Stóra e-töflumálið Sem fyrr segir er Þórir þekktur hérlendis sem einn af sakboming- unum í Stóra e-töflumálinu 1999. Um var að ræða smygl á tæplega 4.000 e-töflum til landsins og hlutu sex menn dóm vegna þess. Þórir Jónsson var tekinn með 400 e- töflur í fórum sínum og hlaut hann tveggja ára fangelsi sem hann afplánaði á Kvíabryggju. Hæstiréttur kvað upp þyngsta dóm sem um getur í fikni- efnamáli yfir höfuðpaumum í þessu máh þegar Guð- mundur Þóroddsson var dæmdur í sjö ára fangelsi. Upp komst um málið í desember 1999 er hrað- sending frá Hohandi barst j hingað th lands. Gmnur vaknaði um að hún inni- héldi fíkniefni og í fram- haldi hófst umfangsmikh rannsókn með símhlerunum, handtökum, húsleitum og varð- haldsúrskurðum. Sex menn vom sem fyrr segir viðriðnir málið og hlutu þeir ahir þunga dóma. ■ ' jí* 91 • ,..w ... ' r- Héraðsdómur ÞórirJónsson var dæmduri héraðsdómi i 1 Frederiksberg fyrir skömmu. I Þórir J< I steinssi I skyida Þ, I máiivið, I hann var Ungur framsóknarmaður telur sig hafðan að fifli Formannsefni sömdu um helmingaskipti Ungir ffamsóknarmenn héldu sambandsþing á Nesjavöhum um helgina. Kjósa átti til formanns á þinginu og hafði Sauðkrækingurinn Jón Einarsson stigið upp gegn sitj- andi formanni. í kjölfar framboðs Jakobs Hrafns- sonar afréð Jón að draga ffamboð sitt tU baka enda segist hann þá hafa trúað því að Jakobi tækist að feUa Hauk Loga Karlsson, sem Jón hefur gagnrýnt harðlega. í kjölfarið lýsti Jón yfir eindregnum stuðningi við Jakob. „Ég studdi náttúrulega Jakob til að fara í formanninn og var að von- ast tU að losna við Hauk en ég setti það þó ekki sem neitt sem skUyrði. Það var þó minn skUningur," sagði Jón Einarsson í samtali við DV, er hann var á leið suður á sambands- þingið. Jóni brá því nokkuð í brún þegar hann frétti af því degi fyrir þingið að Jakob hefði samið við Hauk Loga um helmingaskipti emb- ættisins næstu tvö árin þar sem Haukur mun gegna emb- ætti áfram næsta árið en Jakob taka við að ári. Jón taldi sig hafa verið fíflaðan af Jakobi enda hafði jón Einarsson Telur Jakob Hrafnsson hata fariðábakviðsig með þvl að semja um áframhatdandi setu Hauks Loga á for- mannsstólií SUF. þráfaldlega lýst því yfir að hann vUdi Hauk Loga úr embættinu vegna óánægju með störf hans á for- mannsstóli og gefið út harðorðar yf- irlýsingar um nauðsyn þess að feUa Hauk strax í ár. „Mín óánægja er einfaldlega tengd innra starfi ungliðahreyfing- arinnar og þá ekki síst starfinu úti á landi sem er því miður ein rjúkandi rúst. Mér finnst líka talsvert vanta upp á að samband- :A láti meira í sér heyra við þingflokkinn ef ástæða er tíl en það hefur núver- andi formaður ekki gert þrátt fyrir að umdeild ’ mál hafi komið upp í ? formannstíð hans,“ segir Jón. Jakob Hrafnsson er bróðir Björns Inga Hrafnsson- ar, aðstoð- armanns Halldórs Ásgríms- sonar. Með þessari ákvörð- un telja þeir sem tU þekkja næsta öruggt að Birni Inga sé að takast að tryggja sig í sessi sem framtíðarleiðtoga flokks- ins enda sé stuðningur ungliðhreyf- ingar vel þeginn þegar vahð er á lista og ekki síst tíl að tryggja stöðu og áhrif innan flokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.