Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Page 12
12 MÁNUDAGUR 28. JÚNl2004 Fréttir DV 30 þúsund reknir írakska lögreglan er sögð í henglum og til stendur að reka þrjátíu þúsund lögreglumenn sem allir eru taldir óhæfir og ekki traustsins verðir. Bandaríkjamenn munu ætía að greiða fyrir starfs- lok mannanna - hver brottrekinn lögreglumaður fær að hámarki um 140 þúsund krónur. Það er gert til að letja mennina til að ganga til liðs við and- spyrnumenn en fregnir herma að þúsundir lög- reglumanna hafi þegar gengið slíkum mönnum á hönd. Svipað vandamál er uppi í írakska hernum en þar hafa einvörðungu fimm þúsund menn hlotið þjálfun en talið að þeir þurfi að vera 25 þúsund. Árni hitti dr. Bingu Árni Magnússon félags- málaráðherra er nú í Malaví í Afríku. Þar ræðir Árni við dr. Bingu wa Mut- harika, nýkjörinn forseta. Einnig mun ráðherrann opna nýja sendiskrifstofu íslands í höfuðborg- inni Lilongwe. Að auki ræðir Árni við félagsmálaráðherra Malaví um nánara samstarf í félagsmál- um, einkum er varð- ar velferð barna og fjölskyldna. Fræðslu- verkefni fyrir fullorðna sem hrundið var af stað þegar Árni var formaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnun- ar íslands í Monkey Bay hefur vaxið mjög hratt. Það nær nú til um 50 þorpa. Theodór Júllusson leikari Boðskapur séra Sun Myun Moon fellur mönnum á borð við George Bush eldri og John Ashcroft vel í geð. Moon heldur því nefnilega fram að hommar séu ekkert betri en skítugir rakkar og kynlíf fyrir hjónaband eigi ekki að líðast. Þinghúsið í Washington var notað í þeim vafasama tilgangi að krýna Moon sem „kóng“. Repúhlikanai* krýna séra , Moon sen segisl voro Messias Undarleg „helgiathöfn" för fram í öldungadeild Bandaríkjaþings í mars síðastliðnum þegar Sun Myun Moon, sem er einna frægastur fyrir fjöldabrúðkaup, var krýndur í orðsins fyllstu merkingu. Viðstöddum brá heldur betur í brún þegar Moon stóð á sviðinu með gullkórónuna á höfði og sagðist vera nýr Messías, boðberi guðs á jörðu, og „Sannur faðir“ alls mann- kynsins. Viðstaddir krýninguna voru nokkrir tugir öldungadeildarþing- manna úr bæði Repúblikanaflokkn- um og Demókrataflokknum auk nokkur hundruð gesta. „Keisarar, kóngar og forsetar hafa lýst því yfir á himni og jörðu að séra Sun Myung Moon og enginn annar sé frelsari heimsins, kristur endurborinn og sannur faðir,“ sagði hinn 85 ára kóreski Moon við öldungadeildar- þingmennina og nokkur hundruð aðra gesti sem sóttu samkomuna. Moon lét ekki staðar numið þarna heldur bættí við að hann hefði óskoraðan stuðning manna á borð við Karl Marx, Lenín, Stalín og Hitíer - en allir hefðu þeir farið að kenni- setningum kirkju sinnar, Samein- ingarkirkju Moons. Kirkja Moons hafnar notkun krossins og telur að samkynhneigðir séu ekkert annað en „skítugir rakkar". Eiginkona . Moons, Hak Ja Han Moon, fékk líka kórónu enda er hún að mati Moons „hin sanna móðir" jarðarbúa og saman eru þau heimsforeldrar. Andvígur samkynhneigðum Krýning Moons í húsakynnum þingsins í mars hefur ekki farið hátt og það var fyrst nú í vikunni að bandaríska blaðið Washington Post birti ítarlega frétt um málið. Athöfn- in þykir sýna svart á hvítu hversu mikil áhrif hinn aldraði Moon hefur í stjórnmálalífi Washingtonborgar. Hann er forríkur og á meðal annars íhaldsblaðið í borginni, Washington Times, og fréttaþjónustuna United Press International. Fyrir utan alla þingmennina sem hlýddu á frelsis- boðskapinn voru þar margir nafn- togaðir einstaklingar. Moon hefur í gegnum tíðina skorað mörg prik hjá repúblikönum með harðri andstöðu sinni við sam- kynhneigða og kynlíf fyrir hjóna- band. Moon segir samkynhneigt fólk vera úrhrök og eina leiðin til að stuðla að góðu fjölskyldulífi sé að stunda skírlífi fyrir hjónaband. Margir af leiðtogum Repúblikana- flokksins, þar á meðal George Bush eldri og John Ashcroft, núverandi dómsmálaráðherra, hafa stutt hann dyggilega. Enda kom í ljós að bæði Bush og Ashcroft borðuðu hádegis- verð með Moon nokkrum dögum fyrir krýninguna. Margfalt brúð- kaup Riflega 25 þús- und pör gangaíþað heilaga við athöfn á vegum Sameiningar- kirkjunnarárið 1999. Það dugði ekki minna en Ólymplu- leikvanginn I Seúl til að koma öllum fyrir. Alls hafa um fjórar milljónir manna heitið trúnaði, sátt og samlyndi undir handleiðslu Moons. SunMyung Moonerorðinn84ára: gssss^ Hafðir að fíflum Athöfhin mun hafa gengið þannig fyrir sig að Danny Davis, þingmaður frá Illinois, setti upp hvíta hanska og kom inn í salinn með friðarkórónu á rauðum plusspúða. Moon var síðan krýnd- ur og var með kórónuna þegar hann tilkynnti gestum að hann hefði verið sendur til að frelsa þá sex milljarða manna sem byggja jörðina. Síðan fengu um eitt hund- rað manns ffiðarverðlaun af ýmsu tagi. „Þetta var saklaus veisla og tíl- gangurinn að verðlauna fólk. Ég hafði ekki hugmynd um að Moon myndi halda því ffam að hann væri Messías,“ sagði Danny Davis í viðtali við Guardian. Öðrum öldungadeildarþing- mönnum fannst þetta ekki jafnsak- laust og einkum em demókratamir fúlir yfir málinu. Þeir segjast hafa verið plataðir á samkomuna undir því yfirskini að heiðra ætti fólk fyrir störf að friðarmálum - þess í stað hafi þeir verið hafðir að fi'flum. „Það ergríðarlega góð stemn- ing meðal Siglfirðinga og allt að verða klárt fyrir heimsókn Hákon- Landsíminn krón- prins og Mette-Marit á þriðju- dag. Hér hafa bæjarstarfs- menn unnið á tvöföldum hraða og Ráðhústorgið skart- arorðið sínu fegursta. Svo hafa heimamenn veriö dug- legir að dytta að og fegra um- hverfíð. Það ernáttúrlega ekki á hverjum degi sem við fáum svo tigna gesti. Allt tengist þetta 100 ára afmæli síldveiöa á Siglufirði og vert að benda fólki á að næsti hápunktur há- tíðarhaldanna hefst24.júlí. Þá verða viðstaddir forseti Is- lands, ráðherrar og þingmenn kjördæmisins auk góðra gesta frá Noregi. Það eru auðvitað allir velkomnir að fagna með okkur þá sem nú," segir Theo- dórJúlíusson, sem hefur um- sjón með hinum viðamiklu hátíðarhöldum á Siglufiröi I sumar. íslenskir strætisvagnabílstjórar gera garðinn frægan í Osló Meistarar þrjú ár í röð Lið strætóbílstjóra frá Strætó bs. gerði sér lítið fyrir og vann hina ár- legu norrænu keppni í góðakstri strætóbflstjóra sem að þessu sinni var haldin í Osló fyrr í mánuðinum. íslendingarnir unnu mótið þriðja árið í röð. Það er í fyrsta sinn í sögu þessa móts sem slfkt gerist. Jóhann Gunnarsson liðsstjóri segir jafnframt að þetta sé í sjötta sinn á sl. 20 árum eða svo sem þeir beri sigur úr býtum. „Við erum lang- bestir," segir Jóhann. Alls tóku 30 vagnstjórar frá höf- uðborgum Norðurlanda þátt í mótinu. Eknar em tvær umferðir í tíu þrauta braut, þar sem aksturs- tími og villur í brautinni em reikn- aðar saman. Keppnin var afar spennandi framan af, en íslenska liðið hafði þó 500 sekúndna forskot á hin liðin eftir fyrri umferð. Eftir hlé, þar sem farið var yfir leikaðferðir, var ákveðið að keyra á þetta og í lokin hafði ís- lenska liðið, vel stutt af sínu frá- bæra stuðningsliði, sigrað með tæplega 1300 sekúndna for- skoti. Norðmenn urðu í öðru sæti, Finnar í þriðja, Svíar í Qórða og frændur vorir Danir ráku lestina. Besta árangri fslendinga náði Steindór Steinþórsson, en hann endaði í fjóröa sæti. Hallgrímur Jónsson varð sjöundi, en það munaði aðeins einni sekúndu á honum og Markúsi Sigurðssyni, sem varð áttundi. Rögnvaldur Jónatansson varð tólftí og Þórarinn Söebech, þrett- ándi. Nýliðinn, Bragi Ragnarsson, varð síðan í 21. sæti, sem er vel við- unandi miðað við nýliðaskjálftann sem oft hrjáir menn í fyrstu keppni á erlendri gmnd. Liðsstjórar og dómarar íslenska liðsins voru Hörður Tómasson, Kristján Kjartansson og Jóhann Gunnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.