Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2004, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ2004 Fréttir DV Arna Magnúsdóttir og Alfreð Gissurarson eru stödd í Palestínu. Þau taka þátt í friðsælum mótmæla- stöðum sem enda engu að síður oftast á því að ísraelsher skýtur á þau gúmmíkúlum, táragasi og hljóðsprengjum. Alfreð horfði á palestínskan ungling skotinn 1 hálsinn og er að vonum sleginn eft- ir atburði helgarinnar því lætin voru mikil fyrir botni Miðjarðarhafsins í gær og fyrradag. Um helgina voru í það minnsta sjö herskáir Palestínumenn drepnir í borginni Nablus á Vesturbakkanum. Aðgerð ísra- elska hersins er aðeins byrjunin á því sem koma skal, segja talsmenn fsraelsstjómar. Þeir ætla sér að leysa upp andstöðu hemáms í borginni en hún hefur verið í herkví í um þrjú ár. íslensku ungmennin Ama Magnúsdóttir og Alfreð Gissurar- son reyndu að komast til Nablus fyrir nokkrum dögum en voru handtekin á fjallvegi og haldið í tvo tíma. Síðan þá hafa 12 óbreyttir borgarar verið skotnir til bana í Nablus af ísraelskum her- mönnum. „Við Arna erum hérna að reyna að gera okkar besta,“ sagði Alfreð þegar DV náði tah af hon- um í gærkvöldi. Þá var hann að koma frá mótmælum í bænum Toul Karim. „Það voru brjáluð læti þar. Þetta voru friðsæl mótmæli en við erum hérna á vegum friðar- samtaka sem hafna öllu ofbeldi. Engu að síður var skotið að okk- ur gúmmíkúlum og táragasi. Fé- lagi minn missti meðvitund og ég sá palestínskan strák fá gúmmikúlu í hálsinn," sagði Al- freð og var að vonum sleginn eftir atburði helgarinnar. Ofbeldisorgía ísraelshers Alfreð hefur dvahð í Palestínu í mánuð ásamt vinkonu sinni Örnu Magnúsdóttur. Hún er ekki vænt- anleg aftur heim til íslands fyrr en 22. ágúst en á morgun þarf Alffeð að smygla sér til Tel Aviv og koma sér heim á klakann. Hann segir að það sé með ólfkindum að hugsa til þess að brátt verði hann heima að horfa á úrslitaleikinn í EM og fái að fara um frjáls ferða sinna. „Hér þarf að sýna skilríki við hvert skref sem þú tekur. Lögregla og her vopnuð á hverju götu- homi. Friðsöm mótmæh verða að ofbeldisorgíu vopnaðra her- manna. Fyrir nokkrum dögum vomm við tU dæmis með frið- sama mótmælastöðu í litlu þorpi. 71 lá eftir slasaður og þurfti að leita aðhlynningar. Palestínsk kona, komin níu mánuði á leið, missti bamið. Við náðum því svo á vfdeó þegar hermennirnir börðu mótmælanda með kylfu aftur og aftur, í andhtið og búk, og spörkuðu í annan þar sem hann lá og baðst vægðar.“ Hrikalega fúlt að yfirgefa Palestínu Þrátt fyrir að ofbeldið hafi haft mikil áhrif á Alfreð, þennan mán- uð sem hann hefur verið ytra, æd- ar hann sér að reyna að minnast fólksins í Palestínu fyrir ótrúlega gestrisni. „Hvert sem maður kemur er manni tekið fagnandi af fólkinu hér. AUir boðnir og búnir til að bjóða þér mat og gistingu og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta er ótrúleg þjóð sem hefur þurft að þola alltof mikið. Það er í raun hrikalega fúlt að þurfa að yfirgefa Palestínu. Ég er búinn að eignast fuUt af góðum vinum hérna og mun örugglega sakna þeirra." „Það verður samt fínt að koma heim í norðanáttína og kæla sig niður," segir Alfreð og lýsir hitan- um í Paiestínu sem nánast óbæri- legum. Hvað þá þegar staðin er mótmælastaða og táragasbrúsi Alfreð Gissurarson og Arna Magnúsdóttir Þau Alfreö og Arna eru stödd í Palest- ínu og taka þátt í friðsælum mótmælum sem Israelsher telur mikla ógn. Þau hafa orö- ið vitni að ótrúlegum hlutum undanfarið. Alfreð er á leið heim en Arna ætlar að dvelja á meðal gestrisinna Palestínumanna fram i ágúst. Myndin var tekin í Palestlnu skömmu fyrir helgi. kemur fljúgandi. Hermenn hlaupa með alvæpni í reykjarmekki og gúmmíkúlur svífa yfir höfðum mótmælenda. Og eins og það sé ekki nóg aUt saman þá eru það hljóðsprengjumar. Þegar Alfreð lýsir þeim má heyra röddina bresta. Þær springa með þvíllkum hvelli að þú missir heym í dágóðan tíma. Líður eins og það hljóti að fara að blæða úr eyrunum á þér. Eina sem heyrist er skerandi suð sem tekur heUu dagana að losna við. En þessu er öUu lokið fýrir Alfreð. Hann er á leið heim tU íslands. Ama og fóUdð í Palestínu og ísrael halda áfram. Að berjast fyrir friði. I__________ Ljósmyndari slasað- ist Sjúkraliðar aðstoða Ijósmyndara sem særð- ist þegar mótmælend- um og ísraelskum her- mönnum lenti saman. .... -** Wm? „r . Erfitt að verjast táragasi Mótmælt var víða í Israel um helgina og þessi mynd var | tekin nálægt Toul Karim á Vesturbakkanum. Mótmælandi hand- tekinn Israelskir her- | menn handtaka ungan „steinkastara" I mótmæl- I um á Vesturbakkanum. ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.