Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 12.JÚLÍ2004 Fyrst og fremst T3V Hvað átti hann við? Útgáfufélag: Fréttehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjóran lilugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlið 24, Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Drelflng: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. 1 rivað heitir maðurinn sem er kóngulóarmaður- inn? 2 Hvaða leikari hefur leikið hann upp á síðkastið í tveimur myndum? 3 Hver er leikstjóri Spid- erman-myndanna? 4 Hvaða leikkona leikur kærustu Spidermans og hvað heitir persónan? 5 Hvað hétu höfundar upp- runalegu teiknimyndasög- unnar um kóngulóarkarl- inn? Svör neðst á síðunni Bíóorgía Þetta er ugglaust stærsti gagnabankinn á netinu sem helgaður er kvikmyndum. Þar er gífurlegan fjölda kvik- mynda að finna og bæði létt og fljótlegt að slá inn nöfii á Vefsíðan www.imdb.com hafa unnið. Lesendur síð- unnar gefa einkunnir og umsagnir en þurfa fyrst að skrá sig inn. Þótt mest sé um bandarískar myndir er þarna oft að finna furðu- góða umfjöllun um myndir annarra þjóða og a.m.k. lík- legt að þær séu tilgreindar. Einkunnir nokkurra ísl- enskra mynda, af handa- hófi: Böm náttúrunnar 7,5, Hrafninn flýgur 7,4, Kalda- ljós, 101 Reykjavík og Englar alheimsins allar 7,0, Djöfla- eyjan og Benjamín dúfa 6,9, Hafið og Stikkfrí 6,7, íslenski draumurinn 6,6, Opinberun Hannesar 2,8. Ljótur Ljótur var nokkuð algengt mannsnafn á fyrstu öldum fslandsbyggðaren lagðist svo aö mestu af, vegna þess að menn töldu merk- ingu þess einfaldlega vera „ófríöur"og enginn vill skíra barnið sitt nafni því- líkrar merkingar. En það er alrangt því nafnið mun merkja„bjartur“ eðajjós" og er skylt nafnorðunum „Ijós" ogjjómi". Tveir menn á fslandi hétu Ljótur þegar Nöfn fslendinga kom út 1991 en nafnið lifir í sam- setningum eins og„Arnljót- ur"og„Úlfljótur". Málið Það er með hálfum huga að ég hefst handa við að skrifa leiðara þar sem ég þarf að minnast á forsætisráðherra vom, Davíð Oddsson. Ég vildi svo óska þess að fá stundum tækifæri til að skrifa hér um eitthvað sem ekki kallar beinlínis á umfjöllun um þann góða mann. En svona er nú það: Davíð hefúr enn ekki gefið neinar skýringar á þeim orðum sem hann lét falla í frægri heimsókn sinni í Hvíta húsið og fólu í sér að eftir innrás Bandarík- jamanna í írak, þá sé heimurinn betri og ör- uggari staður að lifa í heldur en áður. Þessi yfirlýsing íslensks forsætisráðherra í formlegri heimsókn er með þvílíkuin ein- dæmum að skýringa á henni verður að kref- jast. Á sama tíma og það er orðið ljóst jafnvel ýmsum hinna forstokkuðustu stuðnings- manna Íraksstríðsins i Bandarfkjunum og Bretlandi að stríðið var hafið á röngum og reyndar upplognum forsendum og fram- kvæmd þess hefur farið í þvílíkum handa- skolum að ekki hefúr í áratugi verið ófrið- vænlegra í Miðausturlöndum - og mun sá ófriður því miður eflaust teygja sig í stór- auknum mæli tíl Vesturlanda með enn fleiri hryðjuverkum - þá kem- ur forsætisráðherra frá fslandi og gefur þvflíka yfirlýsingu. Sem þykir slflcum tíð- indum sæta að sjón- varpsstöðin CNN, sem ekki er vön að hirða um skoðanir íslenskra ráða- manna á nokkrum hlut, gerir úr því sérstaka frétt. Enda verða ekki aðrir til að halda þessu fram þessa dagana. Nú má kannski segja sem svo: þetta var bara kurteisishjal hjá Davíð. Hann var náttúrlega í Hvíta húsinu í boði George Bush og það hefði verið dónalegt af honum að segja ekki eitthvað fallegt til að gleðja gestgjafann. En þetta sjónarmið gildir bara ekki þegar um er að ræða grafalvarlegt utanrfldsmál. Davíð verður því að gefa þjóðinni skýr- ingar á því hvers vegna hann hélt þessu fram. Hvort hann trúir þessu sjálfur eða hvort hann talaði þvert um hug sér. Því við verðum að fara að gera stjómmálamönnum okkar grein fyrir því að utanrfldsmál skipta okkur kjósendur Iflca raunverulegu máli - og þeir geta því ekki leyft sér að fara með innantómt fleipur í útlöndum, í trausti þess að enginn hér á landi taki það alvarlega. Illugi Jökulsson Eip-kapítal „Eip er nafnorð en einnig er til sögnin að eipa sem merkirþá að hegða sér undarlega, hoppa og hljóða af kæti eða undrun KATRÍN JAKOBSDÓTTIR færist ekki h'tið í fang á múmum.is þegar hún leitast við að skilgreina nýja teg- und af „auðmagni" eða „kapítali". Fyrstu skilgreininguna má segja að Karl Maix hafi sett fram og fjallaði um eiginlegt fjármagn en síðar setti Pierre Bourdieu fram aðra um svo- nefnt „menningarlegt kapítal" þeirra sem kunna góð skil á menn- ingunni og öllum hennar afkimum. mynd- En nú hefur Katrín sem sagt áttað sig um, leik- á tilvist eins annars auðmagns: urum, Eip-kapítalsins. leikstjór- Hún skýrir það á þessa leið: umog mörgum “EIP ER TÖKUORÐ, tiltölulega nýlegt í málinu. Eip má skilgreina sem fíflaskap, nokkuð átakamikinn, sem fylgja jafnvel hljóð, en frá hljóð- unum er dregin líkingin við apa en hljóð sem fylgja eipi minna þá nokk- uð á hljóð apa. Eip er nafnorð en einnig er til sögnin að eipa sem merkir þá að hegða sér undariega, hoppa oghljóða afkæti eða undrun. Ekki ailir geta eipað. í samfélagi okkar er almennt mikið lagt upp úr svokailaðri „eðlilegri" hegðun ogþeir sem skera sig úr oft iimir homauga (þó að það geti stundum breyst í að- dáun). Eip er tvímælalaust hegðun sem skersigúrfjöldanum ogoftaster eipið meðvitað (ekki framið á fyileríi eða aföðrum slíkum ástæðum). Þeir sem geta eipað ffjálslega og án allra hamla eru tvímælaiaust eig- endur eip-kapítals. Eip-kapítaihefur tii þessa ekki veriö mikiis metið f samfélagi okkar en teikn eru á lofti um að það sé óðum að breytast. Þar fer ríkisstjórn íslands fremst í fiokki. Þar em margir sem ráða yfir miklu auðmagni af þessu tagi. MÁ ÞAR NEFNA GUÐNA ÁGÚSTSSON landbúnaðarráðherra sem líkir gjarnan dægurmálum við Fyrst og fremst merkisatburði íslandssögurmar. Einnig mætti benda á forseta Aiþ- ingis, Haildór Blöndai, sem á það til að hlaupa af fundum án tillits til þess að hann er að stýra þeim (er hér jafnvel komin skýring á athæfi Trampes greifa á þjóðfundinum um árið?). Augljóst má þó telja að sá sem býr yfir mestu eip-kapítali er forsæt- isráðherrann, Davíð Oddsson. Er hér kannski komin vísbending um styrk Davíðs? Hann er ekki ríkur og tilraunir hans til að gerast smá- sagnahöfundur eða jafnvel sálma- skáld hafa hlotið misjafnan hljóm- grunn meðal þeirra sem ráða yfir hinu menningarlega auðmagni. Á 1. Peter Parker -1 Toby Maguire - 3. Sam Raimi - 4. Kirsten Dunst, Mary Jane Watson - 5. Stan Lee og Steve Ditko „Frávik frá orðum stjórnarskrár" „Mín skoðun er sú, að hafna ætti öllum frávikum frá orðum stjórnar- skrár ef frávik ganga í þá átt að rýra vernd borgaranna fyrir ríkisvaldi." Sá sem svo mælir er ekki Eiríkur Tómasson lagapró- fessor og ekki Jónatan Þórmundsson. Þetta skrifaði nefnilega sá góöi maður Jón Steinar Gunnlaugsson í hinni merku bók sinni, „Deilt á dómarana", sem út L « i kom árið 1987. ' Nú er spurningin hvort Jón Steinar hefur skipt um skoðun síðan þá, eða hvort hann telji ekki að aðgerðir ríkisstjórnarinnar upp á síðkastið feli í sér nein „frávik frá orðum stjórnarskrár". sviði eip-kapítals skákar hins vegar enginn honum. Nýjasta dæmið um það er hin ný- stárlega uppfinning hans, að hægt sé að fella frumvörp úr gildi með því að leggja fram nánast samhljóða frumvörp með ákvæði um að hitt sé nú fallið úr gildi. Næsta skref verður auðvitað að fella frumvörp úr gildi með því að bæta ákvæði um slíkt inn í frumvarp sem er NÁKVÆMLEGA EINS og hið fyrra. Mun þá nást svokölluð eip-mettun." HÉR VERÐUM VH) að fá að minna á það sem okkur þykir eitt snilldarlegasta dæmið um „eip- mettun" í bókmenntum en það er smásagan „Pierre Menard, höfund- ur Don Kíkóta" eftir Jorge Luis Borges. Þar segir frá Menard nokkrum sem tók sér fyrir hendur að skrifa meistaraverk Cervantesar upp frá orði til orðs og gefa út undir eig- in nafni en hlaut fyrir hraklega dóma þar sem verk hans þótti bæði gamal- dags og hugmyndasnautt, fáránlegt og illa skrifað. Sömu örlög - í raun- veruleikanum - hlaut kvikmynda- leikstjórinn Gus Van Sant nýlega þegar hann „eipaði" „Psycho" eftir Hitchcock. En Katrín lýkur máli sínu á þessa leið: "Múrinn telur ekki ólíklegt að eip-kapítal eigi eftir að verða mun meira metið í íslensku samfélagi en nú er og auðvitað er sérlega gaman að verða fyrst til að benda á þessa nýju tegund auðmagns og komast þar með í félagsskap þeirra Marx og Bourdieu. Þess vegna em Múrarar reiðubúnir undir þá þróun og vinna nú staðfastlega að því að temja sér meira eip. Til dæmis með greinum á borð við þessa." Nei, Davíð söng ekki neitt Fréttablaðið vakti á laugardag athygli á villandi fullyrðingu í klausu hér I Fyrst og fremst um daginn en þar hafði því verið haldið fram að Davlð Oddsson hafi tekið undirþegar blaðamenn Ftvíta hússins IWashington fóru að syngja afmælissönginn fyrir George W. Bush. Við viðurkennum fúslega að þarna hefurlöngun okkar til að finna sögulegar hliðstæður dregið okkur á asnaeyrunum, en I klausunni var llka fjallað um afmælissöng Marilyn Mon- roe til heiðurs John F. Kennedy. Því eins og Fréttablaðið bendir á tók Davíð vist alls ekki undir sönginn. Við játum á okkur þessi mistök en vitum ekki alveg hvern við ættum að biðja afsökunar. Kannski Bush, kannski Davíð eða kannski bara Fréttablaðið. Að öðru leyti þökkum við þó hlý orð Frétta- blaðsins I okkargarö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.