Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Blaðsíða 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 12. JÚU2004 21
Davids til
Inter
Hollenski miðjumaður-
inn Edgar Davids skrifaði í
gær undir þriggja ára
samning við Inter á Ítalíu.
Inter þurfti ekkert aðgreiða
fyrir Davids þar sem sam-
ningur hans við Juventus
var á enda runninn. „Við
erum himinlifandi með að
fá Davids enda er hann
algjör klassaleikmaður,"
sagði Giachinto Facchetti,
forseti Inter. „Hann sýndi
það hjá Barca að hann getur
rifið lið upp í hæstu hæðir
og vonandi gerir hann slíkt
hið sama hjá okkur."
Mills til
Man. City
Vamaijaxlinn Danny
Mills mun að öllum
lflcindum skrifa undir
samning við Man. City í
dag. Mills er einn
margra leikmanna
Leeds sem félagið rifti
samningi við og ásamt
Man. Cityhöfðu
Birmingham, Aston
Villa og Middlesbrough
áhuga á að fá Mflls í
sínar raðir. Mills lék
með Middlesbrough í
fyrra þar sem hann var í
láni.
Mourinho
ekki ánægður
með Crespo
Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, var
mjög óhress með að Heman
Crespo skyldi hafa mætt
degi of seint í undirbúnings-
æfingar Chelsea sem hófust
í síðustu viku. Crespo, sem
var í fríi í Argentínu sagðist
hafa misst af flugvél og
ekkert getað gert. „En ef þú
missir af flugvél er alltaf
hægt að taka rútuna,"
svaraði Mourinho að bragði
en bætti þó við að hann og
Crespo hefðu náð sáttum.
Juninho til
Celtic?
Brasilíumaðurinn
Juninho þykir lfldegur til
að fara frá Middles-
brough til skosku meist-
aranna í Celtic. Umboðs-
maður Juninho segir að
hann langi að fara því að
ekki er víst að hann muni
eiga fast sæti í Middles-
brough þar sem sterkir
sóknarmenn hafa verið
keyptir til liðsins.
Knattspyrnumaðurinn Þorvaldur Makan Sigbjörnsson hefur lagt skóna á hilluna
eftir að í ljós kom að hann gæti verið að stofna heilsu sinni í alvarlega hættu með
því að halda áfram í boltanum. Þorvaldur þjáist af sjaldgæfum kvilla í hægra
heilahveli - kvilla sem hefur leitt fólk til lömunar.
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, knattspyrnumaður hjá Fram í
Landsbankadeildinni, hefur neyðst til að leggja skóna á hilluna.
Þorvaldur fékk endanlega sjúkdómsgreiningu hjá læknum
sínum á föstudag og fékk þá staðfestan sinn versta ótta - eitt
vænt höfuðhögg gæti orsakað lömun og því á Þorvaldur ekki
annarra kosta völ en að hætta knattspymuiðkun.
„Það sem hrjáir mig er að vefur
við hægra heilahvelið er illa
skaddaður eftir nokkur þung
höfuðhögg í gegnum árin," sagði
Þorvaldur þegar DV Sport ræddi við
hann um helgina. Um nokkur
höfuðhögg í gegnum tíðina er að
ræða og segir Þorvaldur að upphafið
af meiðslunum megi rekja tU þess
tíma þegar hann var í atvinnu-
mennsku hjá liði Öster í Svíþjóð fyrir
nokkrum árum. Annað þungt
höfuðhögg hlaut hann síðan í leik
með KA í fyrra, en það sem gerði
síðan útslagið var högg sem hann
Iilaut með Frömurum í upphafi
Landsbankadeildarinnar í ár.
Síðan þá hefur Þorvaldur verið
ýmist fjarverandi í leikmannahóp
Framara eða í liðinu í varla hálfti
leikformi. Síðasti leikur Þorvalds
með Fram var gegn Fylki á Laugar-
dalsvellinum í byrjun júní þegar
Þorvaldur fór af velli snemma í
síðari hálfleik og var fluttur með
sjúkrabfl til aðhfynningar. Þá hafði
Þorvaldur fengið það sem læknar
héldu í fyrstu að væri einhverskonar
mígreniskast, en fljótlega kom í ljós
að hrakandi heilsa Þorvaldar ætti sér
flóknari og alvarlegri orsakir.
Myndatökur leiddu í ljós að æðar og
vefur í kringum heilahvelið væru illa
farin. Þorvaldi var skipað að hvfla sig
á meðan frekari rannsóknir færu
fram en það var síðan á föstudaginn
sem Þorvaldi var tilkynnt að hann
ætti ekki afturkvæmt á knatt-
spyrnuvöllinn ætlaði hann sér að
halda heilsu.
Tíðindin eru mikið áfall fyrir lið
Fram, sem fékk Þorvald til liðs við
sig fyrir keppnistímabilið og ætluðu
honum lykilhlutverk í sóknarhnu
liðsins. Áfallið er þó langmest fyrir
Þorvald Makan sjálfan, sem neyðist
til að hætta á besta aldri, 29 ára
gamall.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði og
„Myndatökur leiddu í
Ijós að æðar og vefur í
kringum heilahvelið
væru illa farin."
mikið áfall," segir Þorvaldur og er
skiljanlega mikið niðri fyrir.
„Það er að sjálfsögðu alveg
hroðalegt að lenda í svona en að
hætta er það eina sem ég hef í
stöðunni. Ég hef þegar misst um
20% af hreyfigetunni í vinstri
helmingi lflcamans og læknarnir
segja að fleiri höfuðhögg gæm
auðveldlega aulcið þá tölu eða
jafnvel valdið allsheijar lörnun,"
segir Þorvaldur.
Þjálfun á næsta leiti
Þorvaldur hefur gegnt þjálfara-
starfi hjá Fram í sumar, bæði sem
aðalþjálfari 2. flokks og aðstoðar-
þjálfari hjá meistaraflokki. Hann
mun verða hægri hönd Jörundar
Áka Sveinssonar það sem eftir lifir
tímabils, en hann er aftur hægri
hönd Ólafs G. Kristjánssonar, ný-
ráðins aðalþjálfara Fram. Þrátt fyrir
að vera lítið farinn að spá í hvað við
taki segir Þorvaldur að hann muni
verða örugglega verða viðloðandi
knattspyrnu áfram í framtíðinni. „Ég
mun setjast á skólabekk í þjálfunar-
fræðum og reyna að hasla mér völl
þar,“ segir hann.
Missir Þorvaldar er mikið áfall
fyrir Landsbankadeildina og
íslenska knattspyrnu. Það er alltaf
mikil synd að sjá þegar leikmenn
neyðast til að ljúka ferlinum á besta
aldri, sérstaklega þegar þeir búa yfir
jafn miklum hæfileikum og
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson. Það
er sjónarsviptir að honum á
knattspyrnuvellinum.
vignir@dv.is
„Ég hefþegar misst um 20% af hreyfigetunni í
vinstri helming líkamans og læknarnir segja
að fleiri höfuðhögg gætu auðveldlega aukið
þá tölu eða jafnvel valdið allsherjar lömun."
Hættur Þorvaldur
Makon nóði ekki a>
koma við sógu i ne
fjorum teikjum Frai
sumar.Her er hanr
með knöttinn gegt
Víkingi i humferö
með og án Þorvaldar Makans
í Landsbankadeild karla sumarið 2004
MAKAN MEÐ
Leikir 4
Mínútur -f ' 261
Mörk skoruð 4*
Mörk fengin á sig 4
Markahlutfall 0
Mín. milli skoraðra marka 65,3
Stig 1 húsi 5
MAKAN EKKI MEÐ
Leikir 5
§|549i
Mörk skoruð 5*
Mörkfengin á sig Hj
Markahlutfall -5
Mín. milli skoraðra marka 109,8
Stig í húsi 1
Framarar skoruöu eitt mark gegn Fyiki eftir aö Þorvaldur Makan var ferinn útaf.
Michael Schumacher er óstöövandi
Hvar endar þetta eiginlega?
Þýski ökuþórinn Michael Schu-
macher er farinn að gera grín að
andstæðingum sínum í Formúlu 1.
Hann fagnaði sínum tíunda sigri í
ellefu keppnum á tímabilinu í gær.
Sigur Schumachers var í raun
aldrei í hættu en Finninn Kimi
Raikkonen andaði aðeins ofan í
hálsmálið á honum um tíma en
meira var það ekki. Schumacher
kom rúmum tveim sekúndum á
undan Kimi í mark og fagnaði hreint
ógurlega. Félagi Schumachers hjá
Ferrari, Rubens Barrichello, hreppti
síðan þriðja sætið.
„Við lögðum upp fína taktflc fyrir
keppnina og þótt við hefðum þurft
að breyta henni eftir fyrsta
þjónustuhléð þá gekk allt upp,“
sagði Schumacher sigurreifur eftir
kappaksturinn. „Þeir þrýstu aðeins á
okkur en það var aldrei neitt
alvarlegt."
Schumacher er kominn með 100
stig í stigakeppninni og Barrichello
er annar með 74 stig. Button er þriðji
með 53 Stig. henry@dv.is