Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Qupperneq 11
DV Fréttir MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 11 DOMSTOLL MIÐBÆJARINS Hvað segja þau um Jón Kristjánsson? Kristín Eva Þórhallsdóttir blaðamaður og animator „Þetta erJón Kristjánsson heil- brigðisráðherra. Hann er eflaust ágætur. Hefekki séð hann beita sér neitt sérstaklega mikið i mína þágu samtJ' Gunnar Jónsson bóksali „Jón Kristjáns heilbrigðisráðherra. Virkur og traustur en ég held að hann ráði ekki alveg við embættið. Valur Einarsson verkfræðing- ur „Þetta er hann Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra. Égernú ekk- ert sérstaklega ánægður með hann enda er maðurinn alltoflat- ur við að færa heilbrigðiskerfið i átt til aukins einkarekstrar." Inga Guðbjartsdóttir sóidýrk- andi „Þetta erpólitíkus, örugglega rúss- neskur. Ó, erhann heilbrigðisráðh- erra? Hann sker full mikið niður fyrirminn smekk." Þórður Snær Júliusson stjórn- málafræðingur „Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra. Hann er ekkert spes og ótta- lega grár eitthvað. Ekki gert neitt sem ég er sérstaklega ánægður með. Hann er hægur ihreyfingum, treysti aldrei þannig fólki." Ingi Gunnarsson ellilffeyris- þegi „Já þessi heitirJón Kristjánsson og hann þykist vera ráðherra heil- brigðismála. Hann hefur staðið sig vet og er fínn kall alveg." Birna Þórðardóttir sjálfstætt starfandi sóldýrkandi „Þetta erJón Kristjánsson heil- brigðisráðherra. Flnn kall og sá eini innan rikisstjórnarinnnar sem gerir meira afþvi að vinna en gaspra, veit samt ekki hvort það er að skila sér eitthvað. Er í hóp með Dagnýju Jónsdóttur og fylgir lið- inu í einu og öllu, sem er ekki gott." Palladómar Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra er ekki spáð miklum frama innan Framsóknarflokksins af samherjum sínum. Jón er sagður of linur til að tak- ast á við breytingar á bákninu sem heilbrigðiskerfið sé. Hann er sagður reyna af veikum mætti að verja heilbrigðiskerfið fyrir einkavæðandi hönd sjálfstæðismanna á meðan kostnaður sjúklinga og ríkis aukist. Ráðherra langfjárfrekasta ráðuneytisins skortir áræði til að taka á málum. Jón Kristjánsson er sagður taka hollustu við fóstbróð- ur sinn og formann Framsóknar, Halldór Ásgrímsson, fram yfir hagsmuni umbjóðendanna. Jón hafi vantað kjark til að fara í hart gegn Halldóri þegar enn einu sinni var brotið á öryrkjum. Jón er fulltrúi gamla Framsóknarflokksins en fylgir fræga liðinu. Jón Kristjánsson hefur vermt stól heilbrigðisráðherra frá árinu 2001. Jón er þekktur fyrir að taka nauð- beygður óvinsælar ákvarðanir sem eru honum sjálfum á móti skapi. Jóni er lýst sem rólyndum manni sem vinni sín verk vel - en þeir eigin- leikar eru einnig taldir helsti akkiles- arhæll hans í erfiðu ráðuneyti. Ómerkingur vegna hollustu Af samtölum við samstarfsfólk Jóns er ljóst að hann er gríðarlega vinnusamur í sínum málaflokki. Það er einna helst útkoman úr vinnu Jóns sem gagnrýnd er. Ekki síst sá ágalli að taka hollustu við flokk og foringja fram yfir eigin sannfæringu. Þetta sé að gera Jón að hálfgerðum ómerkingi í augum undirmanna. Skýrasta - og ef til vill svæsnasta dæmið um þetta - er sagt vera þegar Jón samdi stuttu fyrir kosningar í góðri trú við forsvarsmenn öryrkja um tæplega 1500 milljóna kjarabót sem síðan var skorin niður um 500 milljónir við hávær mótmæli öryrkja. Brast kjarkur í öryrkjamáli Gríðarlegar deilur sköpuðust við fjárlagagerð þessa árs vegna öryrkja- málsins. Jón viðurkenndi að lending þess væri sér á móti skapi. Hann laut í gras fyrir fjármálaráðherra og fékk ekki stuðning flokksforystu sinnar. Mörgum þótti skrýtið að Jón skyldi láta það yfir sig ganga að Hall- dór Ásgrímsson, í samkrulli við Árna Magnússon, skyldi koma honum í þá stöðu sem skapaðist í kjölfar öryrkja- samningsins, en þeir Árni og Halldór ákváðu að einungis yrði staðið við hluta þess samkomulags sem Jón hafði gert um kjarabætur öryrkja. Heimildir DV herma að Jóni hafi brostið kjarkur í öryrkjamálinu. Nær hefði verið hjá honum að hóta afsögn eða fara gegn ákvörðun Halldórs. Þessi vandræði Jóns eru síður en svo þau einu. Landspítalinn og niður- skurður þar, sem Jón mun hafa vitað að gengi ekld, er talið enn eitt dæmið um að hann sé ekki á réttri hillu. í klóm sérfræðinganna Sömu sögu er að segja af stefnu- mörkun og því markmiði Jóns „að standa vörð um heilbrigðiskerfið" eins og hann hefur sjálfur kallað það. Þrátt fýrir að Jón telji sig standa í bar- áttu við Sjálfstæðisflokkinn um hugs- anlega einkavæðingu og aukna kostnaðarhlutdeild sjúklinga heimtar kerfið á sama tíma sífellt meira fé af fjárlögum og sjúklingum sjálfum. Jóni hefur að sögn hvorki lánast að mynda sátt né heildstæða stefiiu í heilbrigðismálum. Hann er einnig sakaður um að hafa ekki náð árangri gegn sérfræðingaveldi kerfisins, sér- staklega millistjómendum sem drottni þar enn eftir eigin höfði. Austfirðingar höfnuðu honum Halldór Asgrímsson var þar til í síðustu kosningum fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins á Austur- landi og naut þar dyggrar aðstoðar Jóns sem þá var annar maður á lista flokksins. Ljóst má vera að Jón hagi seglum sínum eftir vindum for- mannsins í flestum málum - spili með liðinu. Jón hefur lengstum þótt leika næsta ömggan bolta á pólitískum ferli sínum og er sagður hafa notið þess mjög að sitja lengst af í skjóli Halldórs. Þegar Halldór tók þá ákvörðun í kjölfar kjördæmabreytinga að bjóða sig ffam í Reykjavík var ljóst að slag- urinn um efsta sætið á lista flokksins í hinu nýja Norðausturkjördæmi yrði milli Valgerðar Sverrisdóttur og Jóns. Það kom mörgum á óvart þegar Jón tilkynnti að hann hyggðist mæta Valgerði í prófkjöri um efsta sætið á lista flokksins. Staða Valgerðar var þó síður en svo sterk í hennar gamla kjördæmi. Jón hefði að öllu eðlilegu átt að eiga stuðning stórs hóps Aust- firðinga og hluta Norðlendinga í efsta sætið. Jón reiknaði þó ekki með því að Austfirðingar persónugerðu lang- þráða virkjun sína og álver við Valg- erði og því fór sem fór. Barði í borð flokksmanna Heimildir herma að Jón hafi síður en svo verið sáttur við úrslitin og fundist hann svikinn af sfnum mönn- um eystra. Framsóknarmenn unnu þó góðan sigur í meðbyr álverssamn- inganna. Jón er sagður hafa verið orðinn mjög þreyttur á ríkisstjómarsam- starfinu við lok síðasta kjörtímabils enda þá búinn að fá smjörþefinn af því hvemig ágreiningur flokkanna um leiðir í heilbrigðismálum batt hendur hans. Til marks um þetta er sagt að hann hafi á fundi framsóknar- manna í Reykjavík barið hnefa í borð, hækkað róm sinn og viðhaft hörð orð um samstarfsflokkinn. Menn kunn- ugir Jóni segja að það geri hann ör- sjaldan. Jón mun þó ekki hafa sett sig upp á móti frekara samstarfi flokk- anna þegar ljóst var að Halldór Ás- grímsson yrði forsætisráðherra. I—----------------- 1 Jon Kristjánsson I Heilbrigðisráðherra I er sagður taka holl- fá&’ I ustu við HaiidórÁs- | J' J grímsson framyfír -vgf-r-rTza&Sl ei9lr sannfærinmi nn Þreyir þorrann Framtíð Jóns í stjómmálum er á huldu. Flestir viðmælendur DV telja hann að mörgu leyti síðasta geirfugl- inn í flokknum; framsóknarmann af gamla skólanum sem haldi á lofti fé- lagslegum áherslum í anda fortíðar. Ekki er talið að Jón þurfi að kvíða 15. september sérstaklega því hann haldi ráðuneytinu svo lengi sem stjóm Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks heldur velli. Kunnugir segja þó að auðveldasti leikur formannsins við stólaskiptin væri að setja Jón af og Áma Magnús- son inn í stað hans. Siv Friðleifsdóttir ætti þar með von í félagsmálaráðu- neytinu. Jón bíða nú emi erfiðari mál úrlausnar og er beðið eftir þvi hvem- ig honum takist í slag sínum um aukafjárveitingar við fjármálaráð- herra sem hefur hingað til ekki reynst Jóni vel. Hann mun því þreyja þorr- ann í ráðuneytinu áfram þó ekki sé búist við því að mildlla breytinga sé að vænta þar í bráð. helgi@dv.is Skjaldarmerkin Einkunnaskalinn 1 skjaldarmerki - Falleinkunn, þingsæti jafnvel ekki verðskuldað 2 skjaldarmerki - Öruggt þingsæti en lítið að gera í Stjórnarráðið 3 skjaldarmerki - Á friðarstóli í aug- um samherja sinna en á rangri hillu samkvæmt andstæðingum sínum 4 skjaldarmerki - Á réttri hillu 5 skjaldarmerki - Hinn fullkomni ráðherra Alitsgjafar DV um Jón Kristjánsson Rangur maður á röngum stað Jón Kristjánsson er að sögn álitsgjafa DV Ijúfur og góður gaur sem ekki er að höndla það embætti sem hann er I nú. Jón er ekki talinn hafa risið hátt I þessu stærsta og fjárfrekasta ráðuneyti okkar. Hann sé einfaldlega of góður gaur til að leysa þau vandamál sem hangi yfir heil- brigðismálum á fslandi.Texti hljóm- sveitarinnar Green Day:„Nice guys fin- ish last," eða „Góðir gaurar tapa" á vel við um Jón. „Ljúfmenni sem ætti ekki að vera iráð- herrastói, og alls ekki I heiibrigðisráðuneytinu sem er erfíðasta ráðuneytið." „Alltofgóður til að vera i stjómmálum. “ „Er rangur maður á röngum stað." „Stendur með liðinu, er þar á bekknum með Dagnýju." „Bóngóður maður og mannasættir sem eru eiginleikar sem mættu vera meira afinnan þessarar rikisstjórnar." „Hefur sýnt að hann getur hoggiö á hnúta, gerði það sem settur umhverfisráðherra i Þjórsárversdeilunni, mætti gera það í heil- brigðisþjónustunni." „Væri fint efjón færi að útlista stefnu okkar i heilbrigöismálum, á að einkavæða eða ekki?" Jón hefur ekki náðað réttlæta fyrir mér hvað peningarnir eru að fara !." „Hefur ekki náð að beisla sérfræðingaveld- ið sem tröllríður öllu.' „Hann verður seint veggspjaldadrengur fyrir heiibrigði og hreysti.' „Heftekið eftirþvi að menn nenna ekki að rífast við hann enda er hann Ijúfur og góður drengur." „Hefur enga útgeislun og heillar ekki, skil ekki hvað hann er oft endurkjörinn." „Brenndist mjög illa á þessu fjárveitinga- máli slnu og beið skaða af." „Þetta karisma hans að styggja engan er ekki að virka fyrir þetta ráðuneyti." „Virðist, ólíkt mörgum, hafa ákveðin prinsipp sem hann stendur á, til dæmis neitar hann alveg að einkavæða I heilbrigðiskerf- inu." „Góður maður en stendur frammi fyrir mjög erfiðum úriausnarefnum i heilbrigðis- málum. Hann er í stöðugum reddingum, og kemst aldrei i þá langtimahugsun sem þarf." „Heiðarlegur, sanngjarn og traustur, en full daufur, stundum svo daufur að hann nær ekki ígegn." „Mikill sáttasemjari og virtist hafa náð sátt við umhverfísverndarsinna um Þjórsárver og öryrkja um bótaupphæðir. Bæði mál þóttu bera honum gott vitni, en svo kom í Ijós ágreiningur umþaðhver lausnin raunveru- lega var, og virtist sem Jón hefði ekki klárað málin nógu vel.“ „Er kjarkmaður, annars hefði hann varla hætt sér I kviksyndi heilbrigðismálanna. ’ „Enginn stormsenter, enginn Ronaldo I stjórnmálum. Hann hefur á séryfírbragð trausts bakvarðar sem vill helst ekki hætta sér mikið í sóknina.' Álitsgjafarnir okkar Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsmaöur og fyrrverandi þingkona, Krist- ján Kristjánsson umsjónarmaður Kastljóssins, Hildur Helga Sigurðardóttir biaðamaður, Róbert Marshall fréttamaður á Stöð 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.