Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2004, Blaðsíða 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ2004 19
LANDSBANKA
DEILDIN
KR-FYLKIR 1-1
9. umferð - KR-völlur-10. júlf
Dómari: Ólafur Ragnarsson (2).
Áhorfendur: 1504 Gæði leiks: 3.
Gul spjöld: KR: Bjarni (42.), Kristján
(57.). - Fylkir: Jón B. (58.), Gunnar Þór
(82.).
Rauð spjöld: Engin
Mörk
1-0 Arnar Jón Sigurgeirsson 19.
skot úr markteig Kjartan (frákast)
1-1 Sævar Þór Gíslason 58.
skot utan teigs Ágúst
Leikmenn KR:
Kristján Finnbogason
Jökull Elísarbetarson
GunnarEinarsson
Kristján Örn Sigurðsson
Bjarni Þorsteinsson
Petr Podzemsky
Ágúst Þór Gylfason
Kristinn Hafliðason
(23., Sigurvin Ólafsson
Arnar Jón Sigurgeirsson
(76.,Theodór Elmar Bjarnason
Sigmundur Kristjánsson
Kjartan Henry Finnbogason
Leikmenn Fylkis:
Bjarni Þórður Halldórsson 4
Kristján Valdimarsson 3
(52., Helgi Valur Daníelsson 4)
Valur Fannar Gíslason 4
Þórhallur Ðan Jóhannson 4
Gunnar Þór Pétursson 3
Ólafur Stígsson 4
Finnur Kolbeinsson 2
Jón B. Hermannsson 2
(55. KristinnTómasson 2)
Eyjólfur Héðinsson 2
Sævar Þór Gíslason 4
(82., Þorbjörn Atli Sveinsson -)
Ólafur Páll Snorrason 2
Tölfræðin:
Skot (á mark): 15-8 (7-5)
Varin skot: Kristján 1 - Bjarni 4.
Horn: 3-3 Rangstöður: 5-2
Aukaspyrnur fengnar: 13-15.
BESTUR Á VELLINUM:
Sævar Þór Gíslason, Fylki
Kristinn ekki
illa meiddur
Kristinn Hafliðason, hinn
feiknaöflugi miðjumaður KR-
inga, þurfti að yfirgefa völlinn
snemma leiks á laugardag eftir
að hafa meiðst á öxl. Að sögn
Willums Þórs Þórssonar,
þjálfara KR, fór Kristinn úr Uð
við öxlina en þó ekki hinum
eiginlega axlarlið. Ekki er vitað
nákvæmlega hve lengi Kristinn
verður frá, en meiðslin eru ekki
talin alvarleg og gæti hann vel
orðinn leikfær fyrir Evrópu-
leikinn gegn Sheibourne á
miðvikudag. Arnar Gunnlaugs-
son verður líklega einnig búinn
að jafiia sig fyrir þann leik, en
hann snéri sig á ökkla gegn FH í
síðustu viku.
Barátta Þaö var ekkert gefið eftirþegar
Stjarnan og Fjölnir mættust.
Möguleikar meistaranna
tara minnkandi
„Fljótlega eftir markið gerðu
leikmenn KR það sem þeir gera
svo gjarnan þegar þeir komast
yfir, reyndar alltof gjarnan -
þeir færðu sig aftar á völlinn
Átta liða úrslit í VISA-bikarkeppni kvenna kláruðust um helgina
„Þetta var falleg vippa - segi ekki meira en það,“ sagði Sævar Þór Gíslason,
sóknarmaður Fylkis, glottandi eftir leikinn aðspurður um hvort
jöfriunarmarkið sem hann skoraði undir lok íyrri hálfleiks hafi ekki
einfaldlega verið algjör grís. Hann var ekki á því að viðurkenna að „skotið"
hefði í raun verið misheppnuð fyrirgjöf. „Svona gerist stundum og ég hef
áður skorað svona mark. Er ekki alltaf það fyrsta grís og þau næstu
skipulögð?" bætti Sævar við glettinn.
Hvort sem um var að ræða skot
eða fyrrgjöf var markið afar fallegt
auk þess sem það gæti reynst ekki
síður mikilvægt þegar uppi er staðið á
íslandsmótinu í haust. KR-ingar
þurftu nauðsynlega á ölium þremur
stigunum að halda til að halda sér í
seilingaríjarlægð við toppinn. Byrjun
þeirra í leiknum lofaði góðu og sóttu
þeir stíft að marki Fylkis í upphafi
leiks. Pressa þeirra var verðlaunuð
með marki frá Amari Jóni
Sigurgeirssyni strax á 12. mínútu. Þá
fylgdi hann eftir kraftlausu skoti
Kjartans Henry Finnbogasonar sem
Bjami Þórður Halldórsson í markinu
missti klaufalega frá sér. Fyrstu
mistök þessa efriilega markmanns á
fslandsmótinu staðreynd, en hann
hélt haus og átti eftir að koma sínum
mönnum til bjargar í nokkur skipti
það sem eftir lifði leiks.
Fljótlega eftir markið gerðu
leikmenn KR það sem þeir gera svo
gjaman þegar þeir komast yfir,
reyndar alltof gjaman - þeir færðu sig
aftar á völlinn og virtust halda að eitt
mark nægði. Ósjálfrátt eður ei, þá er
það alltaf jafn mikil synd að sjá þetta
gerast, því KR-ingar Útu virkilega vel
út framan af leik.
Leikmenn Fylkis, sennilega
manna fegnastir að losna undan
pressu KR-inga, gengu að sjálfsögðu á
lagið og komust inn í leikinn. Þó án
þess að skapa sér nein afgerandi færi.
Á 43. mínútu náði Fylkir að jafna með
fyrrgreindu marki Sævar Þórs og
verður að setja spumingamerki við
staðsetningu Kristjáns Finnboga-
sonar í markinu.
Kælisprei, nei takk!
Síðari hálfleikurinn var svohtið
einkennilegur á að horfa. Fátt
markvert gerðist framan af ef undan
er skilin ljót tvífóta tækling Jóns B.
Hermannssonar á Kristjáni Sigurðs-
syni. Ásetningurinn var greinilegur og
fengu takkamir að snúa upp hjá Jóni,
en hann lá sjálfur óvígur eftir.
Kristján, sem undirritaður og
sennilega flestir á vellinum héldu að
væri Ula meiddur, rauk strax á fætur,
hinn reiðasti. Hefði Kristján legið eftir
og Jón staðið, hefði sá síðamefndi
ábyggilega fengið beint rautt spjald,
en á endanum fékk hann aðeins það
gula. Jón var síðan borinn útaf og
kom ekki meira við sögu í leiknum, en
Kristján - tja, annar eins nagli er
vandfundinn.
Spilamennska KR frá því í fyrri
hálfleiknum var á bak og burt og það
vom Fylkismenn sem vom hættulegri
ef eitthvað var og þá sérstaklega
Sævar Þór, sem fékk að leika lausum
hala á köntunum. Það var furðulegt
að fylgjast með KR-ingum. Þeir vom
að sækja á 2-3 mönnum á köflum
þrátt fýrir að staðan væri 1-1 og
leikmenn Fylkis undu sér skiljanlega
vel. Það var ekki fyrr en Theodór
Elmar Bjamason kom inn á í lið KR
sem eitthvað líf gerði vart við sig.
Þessi 17 ára piltur var að fara framhjá
2-3 varnarmönnum Fylkis eins og að
drekka vatn og hefði átt að koma inn
á miklu fyrr. Klárlega einhver
efhilegasti leikmaður sem upp hefur
komið hér á landi í langan tíma. Þessi
kraftur KR-inga kom bara alltof seint
og stórmeistarajafntefli því niður-
staðan.
Nóg eftir
„Við komum hingað til að verja
stig en mér fannst við mun sterkari
aðilinn eftir fyrstu 15 mínútumar. I
heildina er ég nokkuð sáttur og það
var allt annað að sjá til liðsins núna
en gegn Skaganum í síðustu umferð,"
sagði Sævar eftir leikinn í samtali við
DV Sport.
Kristján Sigurðsson var von-
svikinn í leikslok en vildi þó ekki
meina að nóttin væri úti fyrir KR-
inga. „Okkur tókst ekki að skora úr
okkar færum og því fór sem fór. Við
gerðum það sem við ætluðum að gera
- okkur tókst bara ekki að skora."
Ennþá sex stig á milli ykkar og
toppsins og leikjunum fækkar. Fer
þetta ekki að verða oferfítt?
„Nei, nei. Sex stig em tveir leikir.
Það er ekki meira en það. Það getur
allt gerst ennþá."
vignir@dv.is
\ og virtust halda að eitt mark
nægði."
Gull af marki
Sævar Þór Gísla-
son skoraði
magnað mark í
leiknum gegn KR.
Hér sjást Óiafur
Páll Snorrason
ogJónB.Her-
mannsson fagna
Sævari eftir
markið.
IBV, Stjarnan og KR komin í undanúrslit
KR-ingar áttu í miklum erfiðleik-
um með Þór/KA/KS þegar liðin
mættust á Akureyrarvellinum.
KR-ingar höfðu unnið þær 9-0
fyrr í vikunni og það var ekki upp á
teningnum núna. Það má þakka
hversu vel Þór/KA/KS stóð sig í
vörninni og hversu vel Telma Ýr
Unnsteinsdóttir náði að gæta Hólm-
fríðar Magnúsdóttur en hún sást lít-
ið í leiknum.
Þór/KA/KS gekk illa að skapa sér
færi í leiknum en þó undir lokin áttu
Guðrún Soffia Viðarsdóttir skot í
stöngina og Laufey Bjömsdóttir rétt
yfir. KR-ingar náðu að setja mark
rétt undir lok fyrri hálfleiks þegar
Elfa Björk Erlingsdóttir skoraði.
Katrín Omarsdóttir innsiglaði síðan
sigurinn með því að skjóta að marki
á miðjum vallarhelmingi Þór/KA/KS
en Sandra hafði gert sig seka um að
vera komin helst til of langt frá
markinu.
Sanngjarn sigur þótt að KR-stúlk-
ur vildu ömgglega hafa hann stærri
en þær náðu ekki að nýta mörg
þeirra færa sem þær komust í. Mikið
breyttur leikur frá Þór/KA/KS og
greinilegt að Guðrún Soffi'a kemur til
með að styrkja leik þeirra mikið.
Vissi að við myndum vinna
„Við höfðum yfirhöndina allan
tímann og áttum fleiri og betri færi
og vorum hættulegri allan leikinn,
ég vissi að við myndum vinna
þetta", sagði Lilja Kjalarsdóttir, fyrir-
Uði Stjörnunnar, eftir að þær höfðu
lagt Fjölni að veUi, 3-2.
„Við höfum aUtaf staðið okkur vel
gegn betri Uðunum þannig að þetta
verður gaman í undanúrsUtunum og
þau verða spennandi."
Stjarnan átti mörg góð færi í upp-
hafi leiks og leikur Uðsins var góður
fram á við. Varnarleikurinn var hins
vegar slakur og gáfu þær gestunum
úr Fjölni oft ágætis færi. Stjarnan
komst tvívegis yfir en gestirnir svör-
uðu með góðum mörkiun. Sigurinn
Stjömunnar lá þó aUan tímann í
loftinu en sigurmarkið kom þó þeg-
ar aðeins tíu mínútur vom eftir af
leiknum.
Öruggt í Eyjum
Það var veisla hjá ÍBV-stúlkum er
þær fengu Þrótt í heimsókn. Það er
skemmst frá því að segja að
heimastúlkur völtuðu yfir Þróttara
og unnu stórsigur, 8-0.
Margrét Lára Viðarsdóttir og
Bryndís Jóhannesdóttir skomðu tvö
mörk fyrir ÍBV en Mary McVeigh,
Olga Færseth, Sara Sigurlásdóttir og
Elena Einisdóttir eitt hver.
JJ, ÞAÞ, AÓ & U