Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ2004 23 Jð gefnm okkur Okkur flnnst það nniitm nm ílililliP Mlli ijililiff liilili 1111 ' ** jk * f 'C ■ - \ ~ - i Í ’ " 's:S'-'=fsÍ!SiR»giíS»WS:tó(i‘f!fWi^^iK|?sf5!^œspS«^œ _______________ mat,nsinn ***» enZ ™Pitt °Vz!LT»u* y y*yTVtraUm«'*rVU Þá‘ M ,ð toi t>au L'LÞett* var mi mill‘ m ir ma .. ^U vel Iam J°9 skrlt- ^^’SSsr**5^ * mí Saknaði sólariiuiai Matt Damon segir veru sína í Þýskalandi hafa verið afar notalega fyrir utan veðrið. Leikarinn naut þess að geta spókað sig um | óáreittur en saknaði sólar- innar. Hann dvaldi við tökur j á The Bourne Supremacy í1 nokkra mánuði í Berlín. „Berlín er mjög myrk borg. Myrkrið bjó til réttan tón fyrir myndina en fór illa með sálartetrið," sagði Damon. „Nokkurra mánaða sólar- leysi getur ekki verið hollt fyrir j neinn." Gestir veitingastaðar í Los AngeltS ráku upp stór augu þegar WlfíOtta Rydtrfór aö hágráta fyrir framan þá. Leikkonan var úti að borða með vinum sin- um þegar einhver hringdi í farsímann hennar. Eftir há- vaðarifrildi ísímann brotnaði Ryder niöur. Vinkonur leikkonunnar reyndu hvað sem þær gátu til aö róa hana en hún öskraði á þær aö láta sig í friði og lokaði sig svo inni á kló- settinu. Nokkrum mínút- um seinna hljóp Winona útaf veitingastaðnum. S 'r>\M’(! Myl'aÍSo mm jj V_\ ■ : >.f r' ÖtSlÉk .v víigi-; ÍHi SPtjpý'fe- i 4 '1 1 ] t ^ iÉtík \ WS^m WlÉllmml Ær ■y ^ Þín eigin Playboy-höll Ef þig hefur einhvem tímann langað til að lifa Kflnu líkt og Hugh Hefner þá er tækifærið skammt undan - í sýndarveruleika. Nýr X-box leikur „Playboy: The Mansion," veitir tölvu- leikjanotendum möguleika á að byggja upp þeirra eigin klámiðnað og búa í glæsiviflu líkt og Hefner. Því meiri pening sem þú aflar, því fallegri og kynþokkafyllri verða fyrirsæturnar og stjörnumar sem þú færð að bjóða í boðin þín. Og líkt og Hugh Hefher sem heldur því fram að hann sofi hjá sjö mismunandi fyrir- sætum mun leikurinn bjóða upp á það að þú getir valið þér Playboy-kamnur sem falla að eigin smekk. „Það er bæði nekt og kynlíf í leiknum," segir talskona Pfayboy. - „Okkur langaði til að finna hálfmerkingarlaust nafn sem segði ekki neitt um hljómsveltina né tón- listina svo að þannig kom þetta nafn til," segir Bene- dikt Reynisson gítarleikari í hljómsveitinni Skátum sem hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarið. Auk Benedikts eru í hljómsveitinni Björn Kolbeinsson bassaleikari, Ólafur Steinsson gítarleikarl, Pétur Már Guðmundsson á trommum, og Markús Bjarnason sem syngur. „Hljómsveitin hefur verið til síðan 2002 en ann- ars vorum við að fá nýjan söngvara, Markús. Hann er samt ennþá I hljómsveitinni Sofandi, en þeir eru sof- andi um þessar mundir svo að hann spilar með okk- ur á meðan. Ég veit eiginlega ekki hvernig maður á að skilgreina þessa tegund tónlistar. Þetta er ein- hverskonar nýbylgjupönk, við fílum allir Fugazi og The Fall en llka bara allan fjandann. Við gefum okk- ur ekki út fyrir að vera neinir snillingar á hljóðfærin, okkur er svo sem al veg sama h vort að við erum þétt- ir eða þannig lagað. Okkur finnst það mikilvægara að einlægnin skíni frekar I gegn." Skátar hafa komið fram á tónleikum I málningargöllum undanfarið og Benedikt er spurður út f þá hugmynd. „Hugmyndin var fyrst að koma fram I Skátabúningum en okkur fannst það frekar hallærislegt. Hins vegar reynum við yfirleitt að vera eins, okkur finnst það meira fynd- ið en að það sé eitthvaö konseft." Hyggur hljómsveitin á einhverja útgáfu? „Við tókum upp sjö lög á dögunum og af þeim ætlum við að gefa sex út i haust. Okkur var boðinn samningur af Grandmother Records sem er islenskt útgáfufyrirtæki. Graveslime hefur áður komiö út á því merki og líklega kemur þetta út þar. Ef ég má koma því að þá verður Grandmoter Records-hátið I ágúst, þar sem fram munu koma auk Skáta, Glasam- ar, Further than Far Far og Campfire Backtracks." Auk þess að vera gltarleikari I Skátum er Bene- dikt einnig umsjónarmaöur útvarpsþáttarins Karate á X-inu. Hvernig myndi Benedikt lýsa þeim þætti fyr- irþeim sem ekki hafa hlustað? „Karate er svona kynningarþáttur á framsækinni tónlist sem hefur veríð í gangi og er í gangi í dag. Óháð stefnum og tíma. Ég spila hipp hopp, raftón- list og rokk og er þannig ekki fastur í neinu. Þú hefur elnnig veriö að flytja inn tónlist og selt á fömum vegi. „Ég og Birkir höfum verið að flytja inn plötur og flökkum á milli staða og seljum þetta hverjum sem vill. Við erum ekki að tapa á þessu en við erum það lélegir ( bókfærslu að við erum ekki að græða á þessu. Við höfum verið með bása í Kolaportinu og auglýsum þetta á póstlista hjá okkur. Svo sendum við mikið á dordingul og rokk.is. E-mail addressurnar okkar eru þar ef fólk vill komast (sam- band við okkur. Svo er Birkir með heimasíðu dor- dingull.com/gagnauga." Hvað er svo næst á dagskrá? „Það er eiginlega ekkert planað. Ætlum að klára umslagið á disknum, gefa hann út og halda áfram að búa til músík."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.